Erlent

Stormurinn Omar breyttist í fellibyl í nótt

Hitabeltisstormurinn Omar breyttist í fellibyl í nótt í Karabíska hafinu.

Omar er nú staddur undan ströndum Puerto Rico og er vindhraðinn búinn að ná 120 kílómetrum á klukkustund. Búið er að gefa út viðvörun vegna Omars í Puerto Rico en talið er að fellibylurinn nái landi þar fyrir helgina.

Mikil úrkoma er talin fylgja í kjölfar Omars og jafnvel að úrkoman nemi 50 sentimetrum á sumum svæðum. Omar er fimmtándi hitabeltisstormurinn sem fær nafn síðan í júní síðastliðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×