Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hætta rannsókn á meintum sauðaþjófnaði Rannsókn á meintum sauðaþjófnaði, sem hófst með húsleilt í Nesjum í Hornafirði skömmu fyrir síðsutu jól, hefur verið felld niður. Ríkissaksóknari hefur staðfest þá ákvörðun lögreglustjórans á Eskifirði. 6.8.2008 08:27
Norður Kórea á langt í land George Bush lofsamaði stjórnvöld í Suður Kóreu í ræðu sem hann hélt í morgun, en sagði að nágrannar þeirra í norðri þurfi að vinna mikið verk áður en hann íhugi að taka Norður Kóreu af listanum yfir öxulveldi hins illa. 6.8.2008 08:25
Maxim Gorky í sinni hinstu Íslandsferð Rússneska skemmtiferðaskipið Maxim Gorky kemur í sína síðustu ferð til Reykjavíkur í dag, en eftir þessa ferð verður skipinu lagt og því breytt í hótel. Það hefur siglt um noðrurslóðir í 32 ár,komið rúmlega 130 sinnum við hér á landi á því tímabili og flutt hingað um 85 þúsund farþega. 6.8.2008 08:23
Solzhenitsyn jarðaður Útför rússneska andófsmannsins og rithöfundarins Alexanders Solzhenitsyn fór fram í morgun. Rithöfundurinn lést á Sunnudag, 89 ára gamall og verður hann jarðaður að eigin ósk í Donskoy klaustrinu í Moskvu. 6.8.2008 08:21
Stálu milljónum kreditkortanúmera Bandarísk yfirvöld hafa ákært ellefu manns í tengslum við þjófnað á yfir fjörutíu milljón kreditkortanúmerum í stærsta máli af því tagi í sögunni. Um var að ræða alþjóðlegt gengi tölvuglæpamanna sem brutust inn í tölvur bandarískra stórverslana og náðu þannig í upplýsingar um kortanúmer og lykilorð milljóna viðskiptavina. Fólkið seldi upplýsingarnar síðan áfram til annara glæpamanna. 6.8.2008 08:19
Sleppa föngum í skiptum fyrir lík Ísraelar slepptu í morgun fimm palestínskum föngum úr haldi. Þetta var gert eftir að samkomulag náðist við Hesbolla samtökin í Líbanon fyrr í vikunni en Ísraelar fá í staðinn lík tveggja ísraelskra hermanna sem féllu í átökunum á Landamærum Ísraels og Líbanon árið 2006. 6.8.2008 08:17
Síðustu gestirnir farnir úr Eyjum Síðustu þjóðhátíðargestirnir yfirgáfu Vestmannaeyjar með Herjólfi í gærkvöldi og þar með lauk þessari fjölmennustu þjóðhátíð til þessa. Talið er að hátt í þrettán þúsund manns hafi sótt hátíðina. Fjölmennt var í Herjólfi þessa síðustu ferð og bílaþilfarið var fullt. 6.8.2008 08:17
Bankaránum fjölgar mikið í Svíþjóð Bankaránum hefur fjölgað mjög í Svíþjóð á þessu ári og ræningjarnir grípa frekar til ofbeldis en áður. Á síðasta ári voru framin eða gerð tilraun til að fremja fjörutíu bankarán í landinu en það sem af er þessu ári hafa ránin og ránstilraunirnar verið sextíu og sex og þó eru næstum fimm mánuðir eftir af árinu. Nú þegar er um sextíu og fimm prósenta aukningu á milli ára að ræða. 6.8.2008 08:10
Tekinn af lífi í Texas þrátt fyrir mótmæli Alþjóðadómstólsins Mexíkanskur maður, Jose Medellin, var í nótt tekinn af lífi í ríkisfangelsinu í Texas í Bandaríkjunum. Mál mannsins, sem sakaður var um að myrða og nauðga sextán ára gamalli stúlku, hefur vakið mikla athygli en Hæstiréttur Bandaríkjanna vísaði í nótt áfrýjunarbeiðni hans á bug. Skömmu síðar var hann tekinn af lífi með eitursprautu. 6.8.2008 08:06
Kyndillinn í Peking Kyndilberar hlaupa nú síðasta spottann með Ólympíueldinn í gegnum Peking en Ólympíuleikarnir verða settir í borginni á föstudag. Kyndillinn hefur nú ferðast hundrað og fjörutíuþúsund kílómetra og farið um sex heimsálfur á leið sinni en lagt var af stað með logann frá Grikklandi þann tuttugasta og fjórða mars síðastliðinn. 6.8.2008 07:59
Sluppu út úr brennandi húsi í Svarfaðardal Tveir karlmenn, sem búa að Hofsárkoti í Svarfaðardal sluppu ómeiddir út úr brennandi íbúðarhúsinu í nótt, en húsið gjör eyðilagðist. 6.8.2008 07:21
Raunverulegur vilji til samninga skýrist á morgun Kjaranefnd Ljósmæðrafélags Íslands hittir samninganefnd ríkisins í fyrsta sinn í þrjár vikur á fundi í fyrramálið. Guðlaug Einarsdóttir, formaður félagsins, segir að ljósmæður standi enn fast á sínum kröfum sem snúist aðallega um að fá menntun sína og störf metin að verðleikum í samræmi við aðrar stéttir í þjónustu hins opinbera með svipaða menntun. 5.8.2008 21:42
Gengisfall krónunnar kemur afar illa við marga námsmenn erlendis Staða íslenskra námsmanna erlendis er slæm og framtíð þeirra óljós í vetur vegna gengis krónunnar og svimandi hárra yfirdráttarvaxta. Samband íslenskra námsmanna erlendis segir þetta ólíðandi og sjónarmið lánasjóðsins úrelt. Fyrirframgreiddar mánaðargreiðslur séu eina svarið. 5.8.2008 19:22
Stjórnvöld í Íran hætt að grýta fólk til dauða Háttsettur aðili innan íranska réttarkerfisins hefur gefið það út að héðan í frá muni stjórnvöld og dómstólar í landinu hætta að fylgja dauðarefsingu eftir með því að grýta fólk til dauða. 5.8.2008 22:10
Þorgerður Katrín: Bloggfærsla Bjarna innistæðulaus Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, harðneitar því að fyrir liggi tilbúið stjórnarfrumvarp um Seðlabankann og að Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, fari á eftirlaun en þessu heldur Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins, fram á bloggsíðu sinni í dag. 5.8.2008 18:28
Olíuverð heldur áfram að lækka Olíuverð á heimsmörkuðum heldur áfram að lækka. Olíufatið stóð í dag í 118 Bandaríkjadölum, sem er um 30 dölum lægra en það var hæst fyrir mánuði síðan. 5.8.2008 19:14
Skemmdir í Hallgrímskirkjuturni verri en reiknað var með Steypuskemmdirnar í Hallgrímskirkjuturni eru mun verri en áður var reiknað með. Áætlað er að viðgerðir kosti meira en hundrað milljónir króna umfram það sem upphaflega var talið. 5.8.2008 18:34
Guantanamo réttarhöld mögulega dæmd ómerk Fyrstu réttarhöldin í sérstökum bandarískum hérdómsstól í Guantanamo-fangabúðunum gætu verið dæmd ómerk vegna óskýrleika á skilgreiningu á því hvað sé glæpur og hvað sé stríðsglæpur. 5.8.2008 16:53
Sjö tilkynningar um innbrot um helgina Sjö tilkynningar um innbrot um verslunarmannahelgina hafa borist lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 5.8.2008 16:28
Þingmaður segir Davíð á leið á eftirlaun Þingmaður Framsóknarflokksins segir að fyrir liggi tilbúið stjórnarfrumvarp um Seðlabankann og að Davíð Oddsson seðlabankastjóri fari á eftirlaun. 5.8.2008 16:15
Stálgirðingar settar upp við landamæri BNA og Mexíkó Stálgirðingar hafa verið settar upp á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó vestur við El Paso en girðingarnar eru ný leið til öryggisráðstafa við landamærin. 5.8.2008 15:27
Tjáir sig ekki um hugsanlega málsókn Ólafar Hanna Birna Kristjánsdóttir tjáir sig ekki um hugsanlega málsókn Ólafar Guðnýjar Valdimarsdóttur, fráfarandi varaformanns skipulagsráðs og fyrrverandi aðstoðarmanns borgarstjóra. 5.8.2008 15:15
Saka Frakka um aðild að þjóðarmorðum í Rúanda Þrjátíu og þrír franskir stjórnmálamenn og yfirmenn í franska hernum studdu og komu að þjóðarmorðunum í Rúanda árið 1994 og það þarf að draga þá til ábyrgðar. 5.8.2008 15:06
Þýskar lögreglukonur fá „skotheld brjóstahöld“ Þýskar lögreglukonur fá á næstunni það sem þýskir fjölmiðlar kalla skotheld brjóstahöld. 5.8.2008 14:37
Pakistönsk kona sökuð um tengsl við al-Qaida Pakistönsk kona hefur verið flutt frá Afganistan til Bandaríkjanna þar sem hún á yfir höfði sér ákæru fyrir að reyna að myrða fulltrúa á vegum Bandaríkjastjórnar. 5.8.2008 14:08
Davíð Smári ákærður fyrir þrjár líkamsárásir Davíð Smári Helenarson, betur þekktur sem Dabbi Grensás, verður ákærður fyrir þrjár líkamsárásir sem komist hafa í fréttirnar undanfarin misseri. Ákæra á hendur honum verður þingfest 1. september. 5.8.2008 13:40
Eru landlaus og án ríkisfangs Þeir palestínsku flóttamenn sem eru á leið hingað til lands eru niðjar Palestínumanna sem flúðu land sitt við stofnun Ísraelsríkis árið 1948 og settust að í Írak. Þeir fengu hins vegar ekki ríkisfang í Írak og eiga þess vegna ekkert ríkisfang né landsvæði tið að hverfa til að sögn Lindu Björk Guðrúnardóttur sem sér um undirbúning að komu flóttamannanna til Akraness. 5.8.2008 13:30
Sýknaður af ákæru um árás á eiginkonu og dóttur Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í dag karlmann af ákæru um líkamsárás gegn konu sinni og uppeldisdóttur á heimili þeirra í júlí í fyrra. 5.8.2008 12:53
Bush á leið á Ólympíuleika í Kína George Bush Bandaríkjaforseti er nú á leið til Kína þar sem hann verður við setningu Ólympíuleikanna á föstudaginn. 5.8.2008 12:45
Hundruð votta Solzhenitsyn virðingu sína Hundruð manna hafa í morgun vottað Alexander Solzhenitsyn virðingu sína en lík hans liggur nú á viðhafnarbörum í sal rússnesku vísindaakademíunnar. 5.8.2008 12:30
Góðri grásleppuvertíð að ljúka Einhverri bestu grásleppuvertíð í manna minnum er að ljúka. Verð fyrir hrognin hefur stigið jafnt og þétt í sumar og hefur aldrei orðið hærra í krónum talið. 5.8.2008 12:24
Útilokar ekki skaðabótamál á hendur borginni Ólöf Guðný Valdimarsdóttir útilokar ekki að sækja skaðabætur til borgarinnar vegna ákvörðunar borgarstjóra að reka hana úr skipulagsráði. Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður telur yfirvofandi brottrekstur brot á sveitarstjórnarlögum. 5.8.2008 12:15
Í haldi fyrir að hafa kveikt í tjöldum í Eyjum Maður situr í fangelsi í Vestmannaeyjum grunaður um að hafa kveikt í tjöldum þjóðhátíðargesta í Herjólfsdal í gærkvöldi. Slökkvilið slökkti í fjölda tjalda á svæðinu í gærkvöldi og reykurinn var svo mikill að fólk átti erfitt um andardrátt. 5.8.2008 12:10
Dæmdur fyrir að kýla dyravörð og hóta lögreglu Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás og hótanir í garð lögreglumanns. 5.8.2008 11:45
Fíkniefnaeftirlit skilaði góðum árangri á Akranesi Lögreglan á Akranesi lagði hald á um 20 grömm af marijúana, 15 grömm af amfetamíní og lítilræði af hassi og kókaíni við fíkniefnaeftirlit um verslunarmannahelgina. 5.8.2008 11:27
Palestínsk flóttakona segir ástandið í Al-Waleed búðunum skelfilegt 29 palestínskir flóttamenn eru væntanlegir til Íslands frá Al-Waleed flóttamannabúðunum á landamærum Íraks og Sýrlands. Á fréttavef Reuters er grein um þessar búðir og viðtal við Wedad, 30 ára gamla ekkju sem er á leið hingað til lands. Hún segir ástandið í búðunum skelfilegt og mjög erfitt fyrir börn sín. 5.8.2008 11:23
Dómsmálaráðherra leiðrétti forseta Íslands Björn Bjarnson leiðréttir Ólaf Ragnar Grímsson á vefsíðu sinni og gerir athugasemdir við söguskoðun Ólafs. 5.8.2008 10:32
Snarpur skjálfti í Sichuan-héraði Jarðskjálfti upp á sex á Richter skók Sichuan-hérað í suðvesturhluta Kína laust fyrir klukkan tíu í morgun að íslenskum tíma. 5.8.2008 10:28
Vill ísbirni af lista yfir dýr í útrýmingarhættu Ríkisstjóri Alaska hyggst höfða mál á hendur bandarísku alríkisstjórninni vegna þeirrar ákvörðunar að setja ísbirni á lista yfir dýr í útrýmingarhættu. Vill ríkisstjórinn að dómstólar ógildi ákvörðunina. 5.8.2008 10:06
Of feitur til að deyja Maður einn á dauðadeild í Ohio í Bandaríkjunum hefur tekið til nýstárlegra varna í áfrýjun sinni. Lögfræðingar hans segja að ekki sé hægt að taka hann af lífi vegna þess að hann sé of feitur. 5.8.2008 08:43
Mbeki þvertekur fyrir að hafa tekið við mútum Tabo Mbeki, forseti Suður Afríku, þvertekur fyrir að hann hafi þegið mútur frá þýsku vopnaframleiðslufyrirtæki. Ásakanir um mútuþægni forsetans eru settar fram í Suður Afríska blaðinu Sunday Times en blaðið segir að Mbeki hafi greitt forsetanum fyrir að tryggja að sala á þremur kafbátum gengi í gegn. Forsetinn og talsmenn hans segja ekkert hæft í fréttinni og í sama streng tekur þýska fyrirtækið. 5.8.2008 08:40
Edouard stefnir á Texas Óveðrið Edouard stefnir nú hraðbyri að Texas ríki í Bandaríkjunum og sækir í sig veðrið með hverri klukkustundinni. Stormurinn færist nú Norð-vestur eftir Mexíkóflóa og er búist við því að hann nái styrk fellibyls um miðjan dag. Íbúar Texas búa sig nú undir að óveðrið gangi á land en um fimm og hálf milljón manna búa á svæðinu þar sem búist er við að stormurinn fari yfir. 5.8.2008 08:36
Obama vill ganga á varaforðann Barack Obama, forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum, vill láta veita 70 milljónum olíutunna úr varaforða landsins til þess að stemma stigu við hækkandi olíuverði í heiminum. 5.8.2008 08:34
Rignir á Dani Miklar rigningar eru nú í Danmörku en í gær var úrkoman á nokkrum stöðum álíka mikil og venja er í öllum ágústmánuði. Á Norður-Jótlandi var úrkoman um 60 millimetrar í gær og á Skagen var hún 70 millimetrar. 5.8.2008 08:29
Clinton vill meira fé í baráttuna við HIV Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, kallar eftir auknum fjárframlögum í baráttunni við alnæmi í heiminum. Alþjóðleg ráðstefna um sjúkdóminn stendur nú yfir í Mexíkó og þar sagði Clinton að auka þurfi framlög um fimmtíu prósent á næstu tveimur árum til þess að unnt sé að standa straum af lyfjagjöf til þeirra sem smitast hafa. 5.8.2008 08:25