Erlent

Bankaránum fjölgar mikið í Svíþjóð

Bankaránum hefur fjölgað mjög í Svíþjóð á þessu ári og ræningjarnir grípa frekar til ofbeldis en áður. Á síðasta ári voru framin eða gerð tilraun til að fremja fjörutíu bankarán í landinu en það sem af er þessu ári hafa ránin og ránstilraunirnar verið sextíu og sex og þó eru næstum fimm mánuðir eftir af árinu. Nú þegar er um sextíu og fimm prósenta aukningu á milli ára að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×