Tjáir sig ekki um hugsanlega málsókn Ólafar Magnús Már Guðmundsson skrifar 5. ágúst 2008 15:15 Hanna Birna Kristjánsdóttir er oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna, tjáir sig ekki um hugsanlega málsókn Ólafar Guðnýjar Valdimarsdóttur, fráfarndi varaformanns skipulagsráðs og fyrrverandi aðstoðarmanns borgarstjóra. Hanna Birna ítrekaði það sem hún hefur áður sagt að sé alfarið ákvörðun samstarfsflokksins að skipa Magnús Skúlason í stað Ólafar Guðnýjar í skipulagsráð. ,,Ég á ekki von á öðru en að venju samkvæmt virði borgarráð þá ákvörðun." Nýverið ákvað Ólafur F. Magnússon að víkja Ólöfu Guðnýju úr skipulagsráði þar sem hún nyti ekki lengur trauts hans. Í framhaldinu ákvað Ólafur að skipa Magnús í hennar stað í ráðið. Í hádegisfréttum Stöðvar 2 kom fram að Ólöf Guðný útilokar ekki að sækja skaðabætur til borgarinnar vegna ákvörðunar Ólafs. Dögg Pálsdóttir, hæstaréttarlögmaður og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur ástæðuna sem Ólafur hefur gefið upp nægi ekki. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum verði málefnalegar ástæður að liggja fyrir.
Tengdar fréttir Útilokar ekki skaðabótamál á hendur borginni Ólöf Guðný Valdimarsdóttir útilokar ekki að sækja skaðabætur til borgarinnar vegna ákvörðunar borgarstjóra að reka hana úr skipulagsráði. Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður telur yfirvofandi brottrekstur brot á sveitarstjórnarlögum. 5. ágúst 2008 12:15 Ólöf Guðný rekin úr skipulagsráði Ólöf Guðný Valdimarsdóttir mun að öllum líkindum víkja úr skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Hún sagði við Vísi í morgun að Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hafi haft samband við hana í gær og hann hafi tilkynnt henni að hann myndi tilnefna nýjan fulltrúa hennar á næsta fundi borgarráðs. Borgarráð muni svo kjósa um málið. 29. júlí 2008 09:24 Ólöf segir Ólaf fara með fleipur Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður Ólafs F Magnússonar borgarstjóra og fráfarandi varaformaður skipulagsráðs borgarinnar, segir borgarstjóra fara með fleipur og hafa dregið umræðuna niður á plan sem ekki sé embættinu sæmandi. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 31. júlí 2008 19:26 Tjáir sig ekki um málefni Ólafar Guðnýjar Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, tjáir sig ekki á þessari stundu um ástæður þess að Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, varaformaður skipulagsráðs, víkur úr ráðinu. 29. júlí 2008 21:28 Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira
Útilokar ekki skaðabótamál á hendur borginni Ólöf Guðný Valdimarsdóttir útilokar ekki að sækja skaðabætur til borgarinnar vegna ákvörðunar borgarstjóra að reka hana úr skipulagsráði. Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður telur yfirvofandi brottrekstur brot á sveitarstjórnarlögum. 5. ágúst 2008 12:15
Ólöf Guðný rekin úr skipulagsráði Ólöf Guðný Valdimarsdóttir mun að öllum líkindum víkja úr skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Hún sagði við Vísi í morgun að Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hafi haft samband við hana í gær og hann hafi tilkynnt henni að hann myndi tilnefna nýjan fulltrúa hennar á næsta fundi borgarráðs. Borgarráð muni svo kjósa um málið. 29. júlí 2008 09:24
Ólöf segir Ólaf fara með fleipur Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður Ólafs F Magnússonar borgarstjóra og fráfarandi varaformaður skipulagsráðs borgarinnar, segir borgarstjóra fara með fleipur og hafa dregið umræðuna niður á plan sem ekki sé embættinu sæmandi. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 31. júlí 2008 19:26
Tjáir sig ekki um málefni Ólafar Guðnýjar Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, tjáir sig ekki á þessari stundu um ástæður þess að Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, varaformaður skipulagsráðs, víkur úr ráðinu. 29. júlí 2008 21:28