Erlent

Kyndillinn í Peking

Kínverskar klappstýrur bíða eftir kyndlinum í torgi hins himneska friðar.
Kínverskar klappstýrur bíða eftir kyndlinum í torgi hins himneska friðar. MYND/AP

Kyndilberar hlaupa nú síðasta spottann með Ólympíueldinn í gegnum Peking en Ólympíuleikarnir verða settir í borginni á föstudag. Kyndillinn hefur nú ferðast hundrað og fjörutíuþúsund kílómetra og farið um sex heimsálfur á leið sinni en lagt var af stað með logann frá Grikklandi þann tuttugasta og fjórða mars síðastliðinn.

Mestan hluta leiðarinnar hafa hlaupararnir mætt hópum mótmælenda sem vakið hafa athygli á bágborinni stöðu Kínverja í mannréttindamálum. Í morgun voru fjórir mótmælendur handteknir í Peking en þeir voru að mótmæla framferði Kínverja í Tíbet. Fólkið, sem var frá Bretlandi og Bandaríkjunum hafði strengt stóra borða á milli rafmagnsstaura sem á stóð frelsið Tíbet.

Eldurinn mun nú ferðast um helstu staði Peking borgar næstu þrjá dagana en það var körfuboltastjarnan Yao Ming sem hljóp með logann um torg hins himneska friðar í morgun við mikil fagnaðarlæti viðstaddra. Um áttahundruð íþróttamenn munu taka þátt í að ferja kyndilinn um götur borgarinnar áður en sjálfur Ólympíueldurinn verður tindraður á opnunarathöfninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×