Fleiri fréttir Eldur í kjarnorkuveri Eldur kviknaði í kjarnorkuveri í Vestur-Japan í morgun. Stjórnendur versins segja þó enga hættu á því að geislavirk efni leki út. Tveir starfsmenn voru fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar. 22.3.2006 13:45 Flugmálastjórnir settar undir einn hatt Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli verður lögð niður í núverandi mynd og starfsemi hennar flutt undir Flugmálastjórn Íslands. Samgönguráðherra segir hægt að ná fram mikilli hagræðingu með þessum hætti en segir þetta ekki þurfa að hafa mikil áhrif á það fólk sem þar vinnur. 22.3.2006 13:32 Kínverjar hjálpa við þróun bóluefnis Kínverjar hafa ákveðið að afhenda Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni sýni úr dýrum sem sýkt eru af fuglaflensu. Stjórnvöld í Peking hafa verið sökuð um að liggja á sýnum líkt og ormar á gulli til að tryggja forskot kínverskra vísindamanna í þróun á bóluefni. 22.3.2006 13:30 Misheppnað bankarán í Þýskalandi Bankarán fór út um þúfur í Þýskalandi með eftirminnilegum hætti í morgun. Lögregla beið ræningjanna eftir að hafa fengið nafnlausa ábendingu og þeir hrökkluðust því á flótta án þess að festa hönd á nokkrum ránsfeng. 22.3.2006 13:15 Fylgi við aðild Íslands að ESB minnkar Færri segjast hlynntir aðild Íslands að Evrópusambandinu en undanfarin ár, samkvæmt nýrri Gallup-könnun. Þeim sem vilja taka upp evruna fjölgar hins vegar töluvert frá síðustu könnun. 22.3.2006 13:00 Mátti ekki svara fyrir sig Forsetinn átti ekki að svara fyrir sig þegar Morgunblaðið gagnrýndi Mónakóferð forsetans á síðasta segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og ritstjóri Fréttablaðsins. Hann segir að með því hafi forsetinn farið gegn stjórnskipulegri stöðu sinni. 22.3.2006 12:45 ETA leggur niður vopn Frelsissamtök Baska, ETA, hafa lýst því yfir að þau munu leggja niður vopn sín fyrir fullt og allt, frá og með föstudeginum. Þetta kom fram í basknesku dagblaði í morgun en ekki er búið að staðfesta áreiðanleika yfirlýsingarinnar. 22.3.2006 12:30 Síminn selur líklega sinn hlut í Kögun Skoðun, dótturfélag Dagsbrúnar, hefur keypt fimmtíu og eitt prósent hlutafjár í Kögun. Síminn, sem er stærsti hluthafinn í Kögun, hafði sýnt áhuga á að leiða fyrirtækið en mun nú líklega fara út úr fyrirtækinu. 22.3.2006 12:07 Aðstandendafélag aldraðra stofnað Stofnfundur Aðstandendafélags aldraðra verður haldinn í Félagsheimili eldri borgara í Hafnarfirði á sunnudaginn. Félagið verður opið öllum sem láta sig hagsmunamál aldraðra varða. 22.3.2006 11:15 Fjölmargir skila skattframtali rafrænt Alls hafa rúmlega sextíu þúsund manns skilað inn skattframtali á Netinu. Frestur til að skila inn skattframtölum til ríkisskattstjóra rann út á miðnætti. 22.3.2006 11:00 Afsagnar krafist Enn er þrýst á um afsögn Thaksins Shinawatras, forsætisráðherra Tælands. Mörg þúsund mótmælendum tókst að stöðva umferð í viðskiptahverfi Bangkok í gær og sátu um sendiráð Singapor. 22.3.2006 10:45 Stórt verslunarhúsnæði í Reykjanesbæ Smáratorg, sem rekur meðal annars Rúmfatalagerinn, hyggst reisa 26 þúsund fermetra verslunarhúsnæði í Reykjanesbæ. Félagið hefur þegar fest kaup á lóð í bænum en áætlað er að framkvæmdir hefjist strax á næsta ári og að verslunarhúsnæðið verði tilbúið árið 2008. Landið sem Smáratorg hefur tryggt sér var áður var nýtt undir körtubraut við Reykjanesbrautina. Að sögn Agnesar Geirsdóttur, framkvæmdastjóra Smáratorgs, sem kynnti hugmyndina á framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar fyrir tæpum tveimur vikum hyggst fyrirtækið reisa sams konar verslunarhúsnæði í Reykjanesbæ og á Selfossi. Vinna að teikningum á húsunum er á frumstigi en fyrstu teikninga er að vænta í maí. Á lóðinni í Reykjanesbæ verður gert ráð fyrir 23 þúsund og fimm hundruð fermetra verslunarhúsi þar sem Rúmfatalagerinn verður að finna, stóra matvöruverslun ásamt minni verslunum. Þá er gert ráð fyrir 1500 fermetrum undir bensínstöð á svæðinu og þúsund fermetrum undir veitingastað en ekki er ljóst hver það verður. Aðspurð segir Agnes að ef allt gangi að óskum verði ráðist í framkvæmdirnar í bæði Reykjanesbæ og á Selfossi á næsta ári og er áætlað að þeim ljúki haustið 2008. Eins og kunnugt er hafa menn töluverðar áhyggjur af atvinnumálum á Suðurnesjum eftir að bandarísk stjórnvöld tilkynntu að dregið yrði verulega úr starfsemi varnarliðsins á næstu mánuðum Agnes segist ekki geta spáð fyrir um hversu margir fái vinnu í hinum nýju verslunum í Reykjanesbæ enda vinna að verkefninu skammt á veg kominn. Þá bendir hún á að verslanirnar verði ekki opnaðar fyrr en á haustdögum 2008. 22.3.2006 10:30 Forsætisráðherra Frakklands sagður taka áhættu Til átaka kom milli mótmælenda og óeirðalögreglu við Sorbonne-háskóla í París í gær. Tekist er á um nýja vinnulöggjöf þar í landi og telja stjórnmálaskýrendur að forsætisráðherra landsins leggi stjórnmálaferil sinn að veði með því að draga ekki í land í málinu. 22.3.2006 10:15 Launavísitalan hækkar Launavísitala hefur hækkað um 8,6% síðastliðnum tólf mánuði. Launavísitala febrúarmánðar er 284,4 stig og hækkaði um 0,6% frá fyrri mánuði. Launavísitala sem gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána í apríl 2006 er 6222 stig að því fram kemur á vef Hagstofunnar. 22.3.2006 10:08 Æðsti klerkur Írana vill ræða við Bandaríkjamenn Ali Khamenei, æðsti klerkur í Íran, leggur blessun sína yfir hugsanlegar viðræður Bandaríkjamanna og Írana um ástandið í Írak en varar Bandaríkjamenn við því að reyna að ráðskast með Írana. 22.3.2006 10:00 Mengunarslys í Norðurárdal Mengunarslys varð í Norðurárdal í gærkvöldi þegar ker með rafgeymum féll af vörubifreið sem ók þar um. 22.3.2006 09:45 Teknir með fíkniefni Tveir ökumenn voru teknir með fíkniefni í höfuðborginni í nótt. 22.3.2006 09:30
Sjá næstu 50 fréttir
Eldur í kjarnorkuveri Eldur kviknaði í kjarnorkuveri í Vestur-Japan í morgun. Stjórnendur versins segja þó enga hættu á því að geislavirk efni leki út. Tveir starfsmenn voru fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar. 22.3.2006 13:45
Flugmálastjórnir settar undir einn hatt Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli verður lögð niður í núverandi mynd og starfsemi hennar flutt undir Flugmálastjórn Íslands. Samgönguráðherra segir hægt að ná fram mikilli hagræðingu með þessum hætti en segir þetta ekki þurfa að hafa mikil áhrif á það fólk sem þar vinnur. 22.3.2006 13:32
Kínverjar hjálpa við þróun bóluefnis Kínverjar hafa ákveðið að afhenda Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni sýni úr dýrum sem sýkt eru af fuglaflensu. Stjórnvöld í Peking hafa verið sökuð um að liggja á sýnum líkt og ormar á gulli til að tryggja forskot kínverskra vísindamanna í þróun á bóluefni. 22.3.2006 13:30
Misheppnað bankarán í Þýskalandi Bankarán fór út um þúfur í Þýskalandi með eftirminnilegum hætti í morgun. Lögregla beið ræningjanna eftir að hafa fengið nafnlausa ábendingu og þeir hrökkluðust því á flótta án þess að festa hönd á nokkrum ránsfeng. 22.3.2006 13:15
Fylgi við aðild Íslands að ESB minnkar Færri segjast hlynntir aðild Íslands að Evrópusambandinu en undanfarin ár, samkvæmt nýrri Gallup-könnun. Þeim sem vilja taka upp evruna fjölgar hins vegar töluvert frá síðustu könnun. 22.3.2006 13:00
Mátti ekki svara fyrir sig Forsetinn átti ekki að svara fyrir sig þegar Morgunblaðið gagnrýndi Mónakóferð forsetans á síðasta segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og ritstjóri Fréttablaðsins. Hann segir að með því hafi forsetinn farið gegn stjórnskipulegri stöðu sinni. 22.3.2006 12:45
ETA leggur niður vopn Frelsissamtök Baska, ETA, hafa lýst því yfir að þau munu leggja niður vopn sín fyrir fullt og allt, frá og með föstudeginum. Þetta kom fram í basknesku dagblaði í morgun en ekki er búið að staðfesta áreiðanleika yfirlýsingarinnar. 22.3.2006 12:30
Síminn selur líklega sinn hlut í Kögun Skoðun, dótturfélag Dagsbrúnar, hefur keypt fimmtíu og eitt prósent hlutafjár í Kögun. Síminn, sem er stærsti hluthafinn í Kögun, hafði sýnt áhuga á að leiða fyrirtækið en mun nú líklega fara út úr fyrirtækinu. 22.3.2006 12:07
Aðstandendafélag aldraðra stofnað Stofnfundur Aðstandendafélags aldraðra verður haldinn í Félagsheimili eldri borgara í Hafnarfirði á sunnudaginn. Félagið verður opið öllum sem láta sig hagsmunamál aldraðra varða. 22.3.2006 11:15
Fjölmargir skila skattframtali rafrænt Alls hafa rúmlega sextíu þúsund manns skilað inn skattframtali á Netinu. Frestur til að skila inn skattframtölum til ríkisskattstjóra rann út á miðnætti. 22.3.2006 11:00
Afsagnar krafist Enn er þrýst á um afsögn Thaksins Shinawatras, forsætisráðherra Tælands. Mörg þúsund mótmælendum tókst að stöðva umferð í viðskiptahverfi Bangkok í gær og sátu um sendiráð Singapor. 22.3.2006 10:45
Stórt verslunarhúsnæði í Reykjanesbæ Smáratorg, sem rekur meðal annars Rúmfatalagerinn, hyggst reisa 26 þúsund fermetra verslunarhúsnæði í Reykjanesbæ. Félagið hefur þegar fest kaup á lóð í bænum en áætlað er að framkvæmdir hefjist strax á næsta ári og að verslunarhúsnæðið verði tilbúið árið 2008. Landið sem Smáratorg hefur tryggt sér var áður var nýtt undir körtubraut við Reykjanesbrautina. Að sögn Agnesar Geirsdóttur, framkvæmdastjóra Smáratorgs, sem kynnti hugmyndina á framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar fyrir tæpum tveimur vikum hyggst fyrirtækið reisa sams konar verslunarhúsnæði í Reykjanesbæ og á Selfossi. Vinna að teikningum á húsunum er á frumstigi en fyrstu teikninga er að vænta í maí. Á lóðinni í Reykjanesbæ verður gert ráð fyrir 23 þúsund og fimm hundruð fermetra verslunarhúsi þar sem Rúmfatalagerinn verður að finna, stóra matvöruverslun ásamt minni verslunum. Þá er gert ráð fyrir 1500 fermetrum undir bensínstöð á svæðinu og þúsund fermetrum undir veitingastað en ekki er ljóst hver það verður. Aðspurð segir Agnes að ef allt gangi að óskum verði ráðist í framkvæmdirnar í bæði Reykjanesbæ og á Selfossi á næsta ári og er áætlað að þeim ljúki haustið 2008. Eins og kunnugt er hafa menn töluverðar áhyggjur af atvinnumálum á Suðurnesjum eftir að bandarísk stjórnvöld tilkynntu að dregið yrði verulega úr starfsemi varnarliðsins á næstu mánuðum Agnes segist ekki geta spáð fyrir um hversu margir fái vinnu í hinum nýju verslunum í Reykjanesbæ enda vinna að verkefninu skammt á veg kominn. Þá bendir hún á að verslanirnar verði ekki opnaðar fyrr en á haustdögum 2008. 22.3.2006 10:30
Forsætisráðherra Frakklands sagður taka áhættu Til átaka kom milli mótmælenda og óeirðalögreglu við Sorbonne-háskóla í París í gær. Tekist er á um nýja vinnulöggjöf þar í landi og telja stjórnmálaskýrendur að forsætisráðherra landsins leggi stjórnmálaferil sinn að veði með því að draga ekki í land í málinu. 22.3.2006 10:15
Launavísitalan hækkar Launavísitala hefur hækkað um 8,6% síðastliðnum tólf mánuði. Launavísitala febrúarmánðar er 284,4 stig og hækkaði um 0,6% frá fyrri mánuði. Launavísitala sem gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána í apríl 2006 er 6222 stig að því fram kemur á vef Hagstofunnar. 22.3.2006 10:08
Æðsti klerkur Írana vill ræða við Bandaríkjamenn Ali Khamenei, æðsti klerkur í Íran, leggur blessun sína yfir hugsanlegar viðræður Bandaríkjamanna og Írana um ástandið í Írak en varar Bandaríkjamenn við því að reyna að ráðskast með Írana. 22.3.2006 10:00
Mengunarslys í Norðurárdal Mengunarslys varð í Norðurárdal í gærkvöldi þegar ker með rafgeymum féll af vörubifreið sem ók þar um. 22.3.2006 09:45
Leiðsla verður lögð Rússar hafa heitið Kínverjum því að leggja rúmlega 4.000 km langa leiðslu svo hægt verði að flytja jarðgas til svæða á Kyrrahafs-ströndinni. Þetta kom fram eftir fund Hu Jintao, forset Kína, og Vladimírs Pútíns, Rússlandsforseta, í Peking snemma í morgun. 22.3.2006 09:15
Vill aðstoð Breta við að þrýsta á Evrópusambandið Sjávarútvegsráðherra hvetur hagsmunaaðila í sjávarútvegi í Bretlandi til að leggja Íslendingum lið í að þrýsta á Evrópusambandið að aflétta tollum sem eru á nokkrum íslenskum sjávarafurðum. Ráðherrann er nú staddur í heimsókn í Bretlandi. 22.3.2006 09:01
Breska lögreglan rannsakar verkamannaflokkinn Breska lögreglan rannsakar nú hvort verkamannaflokkur Tonys Blairs, forsætisráðherra, hafi brotið gegn lögum um stjórnmálaflokka. 22.3.2006 09:00
Þriggja mánaða fangelsi fyrir að stela málverki og skjalatösku Karlmaður var í gær dæmdur í þriggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa stolið málverki á Hótel Loftleiðum fyrir um fjórum árum og skjalatösku í verslun Pennans í fyrra. 22.3.2006 08:30
Hæstiréttur staðfesti áframhaldandi gæsluvarðhald Hæstiréttur staðfesti í gær áframhaldandi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Litháa sem handtekinn var nýverið í tengslum við innflutning annars Litháa á fíkniefnum hingað til lands. Um var að ræða mikið magn amfetamíns í vökvaformi. 22.3.2006 08:09
Náttúruminjasafn Íslands eitt þriggja höfuðsafna Náttúruminjasafn Íslands verður eitt þriggja höfuðsafna á Íslandi ásamt Þjóðminjasafninu og Listasafni Íslands nái nýtt frumvarp menntamálaráðherra þar að lútandi fram að ganga. Í framhaldinu stendur svo til að finna Náttúrugripasafninu nýjan stað. 22.3.2006 08:00
Vill persónulega liðveislu fyrir fatlaða hér á landi Persónuleg liðsveisla fyrir fatlaða er hagkvæmara fyrir ríkið en rekstur stofnana fyrir fatlaða og skilar sér margfalt til þeirra sem hennar njóta. Reynsla af persónulegri liðveislu fyrir fatlaða hefur gefið góða raun í Danmörku en þar ráða fatlaðir sjálfir sína aðstoðarmenn. 22.3.2006 08:00
Ráðherra telur sig vanhæfan til að skipa hæstarréttardómara Björn Bjarnason dómsmálaráðherra telur sig vanhæfan til að skipa í embætti hæstarréttardómara sem auglýst hefur verið til umsóknar. Þetta kemur fram á heimasíðu ráðherrans. 22.3.2006 07:35
Nærri 58 þúsund manns hafa skilað inn framtölum á Netinu 57.656 höfðu skilað inn skattframtali á Netinu í kvöld klukkan níu en frestur til að skila inn framtölum til ríkisskattstjóra rennur út á miðnætti. Þetta kemur fram á heimasíðu ríkisskattstjóra, rsk.is. 21.3.2006 22:15
26 þúsund fermetra verlsunarhúsnæði í Reykjanesbæ Smáratorg, sem rekur meðal annars Rúmfatalagerinn, hyggst reisa tuttugu og sex þúsund fermetra verslunarhúsnæði í Reykjanesbæ. Félagið hefur þegar fest kaup á lóð í bænum en áætlað er að framkvæmdir hefjist strax á næsta ári og að verslunarhúsnæðið verði tilbúið árið 2008. 21.3.2006 22:07
Mikill áhugi á matreiðslu í Rimaskóla Matreiðsluáhugi í Rimaskóla er með því mesta sem þekkist í grunnskólum landsins en árlega taka tugir nemenda þátt í kokkakeppni skólans. Kokkameistarakeppnin var haldin í þriðja skiptið í dag og óhætt er að segja að þar leynist margur meistarakokkurinn. Heimilisfræði er valfag í 9. og 10. bekk og er fagið vinsælasta valfag skólans en 89 nemendur eru í matreiðslu. 21.3.2006 22:00
Bandóðir Búddamunkar Lögreglan á Sri Lanka þurfti að loka götum til að hemja meira en hundrað æsta Búddamunka í mótmælagöngu að sendiráði Norðmanna í Colombo á Sri Lanka. Munkarnir kröfðust þess að Norðmenn drægju sig tafarlaust út úr friðarviðræðum í landinu. 21.3.2006 21:32
Um 200 manns handteknir í Hvíta-Rússlandi Lögregla í Hvíta-Rússlandi hefur handsamað yfir tvö hundruð manns síðan á sunnudag en fólkið tók þátt í að mótmæla forsetakosningunum sem fram fóru á sunnudag. Talið er að um 300 manns séu enn á Októbertorgi í miðborg Minsk, höfuðborgar landsins, þar sem fólkið mótmælir framkvæmd forsetakosninganna og úrslitum þeirra. Töluvert hefur þó fækkað í hópnum vegna mikilla kulda og snjókomu. 21.3.2006 21:30
Eigum að berjast gegn stríðsvélinni Stjórn Ungra vinstri grænna fagnar því að Bandaríkjaher skuli loksins vera á förum og krefst þess að stjórnvöld hugsi gáfulega og taki forystu sem friðelskandi þjóð. Í á´lyktun sem stjórnin sendi frá sér segir að þrátt fyrir að Ísland sé að losna við stríðstól úr landi þá sé ætlun Bandaríkjahers að nota þessi tól til að myrða fólk í öðrum löndum. Segir ennfremur að Ísland eigi að berjast gegn stríðsvélinni en ekki verahuglaust, sérhlífið og sjálfselskt. 21.3.2006 21:15
Þjónusta fjölmennasta atvinnugreinin á Íslandi Framlag þjónustu til landsframleiðslu eykst ár frá ári og þjónusta er fjölmennasta atvinnugreinin á Íslandi. Iðnaðar-og viðskiptaráðherra segir mikilvægt að efla ólíkar starfsgreinar til að auka sveigjanleika í efnahagslífinu. 21.3.2006 21:00
Hvatti til að tollum yrði aflétt af íslenskum fiski Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra heimsótti í dag fyrirtæki í sjávarútvegi á Humberside svæðinu í Bretlandi og hitti að máli bæði borgarstjórann í Hull og bæjarstjórann í Grimsby. Á fundi með hagsmunaaðilum í sjávarútvegi hvatti sjávarútvegsráðherra þá til að leggja Íslendingum lið í að þrýsta á Evrópusambandið að aflétta tollum sem eru á nokkrum íslenskum sjávarafurðum, sem fluttar eru út til sambandslandanna. Jafnframt því að aflétt yrði útflutningsálagi á ferskan fisk frá Íslandi. 21.3.2006 20:46
Stjórnarliðar gengu út af fundi franska þingsins Mikil dramatík ríkti á vikulegum fundi franska þingsins í dag en stjórnarliðar gengu út af honum þegar nýja vinnulöggjöfin var rædd. Reiði braust út þegar þingmaður sósíalistaflokksins sakaði forsætisráðherrann um sjálfselsku í þessu máli. Evrópsk málefni áttu upphaflega að vera umræða þingfundarins. Þingmenn stjórnarandstöðunnar vildu hins vegar halda áfram umræðunni um nýju vinnulöggjöfina. 21.3.2006 20:36
Vöknum með AFA Stofnfundur Aðstandendafélags aldraðra, AFA, verður haldinn í Félagsheimili eldri borgara í Hafnarfirði á sunnudaginn. Félagið verður opið öllum sem láta sig hagsmunamál aldraðra varða og er ætlað að vekja Íslendinga til umhugsunar um málefni aldraðra. 21.3.2006 20:05
Hagkaup greiði starfsmanni bætur vegna slyss Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Hagkaup til þess að greiða starfsmanni bætur vegna slyss sem hann varð fyrir á lager verslunarinnar í Kringlunni. Maðurinn féll til jarðar þegar álstigi sem hann notaði við tiltekt gaf sig með þeim afleiðingum af maðurinn handleggsbrotnaði og hlaut varanlegt heilsutjón. 21.3.2006 19:15
Skýrsla Danske Bank er full af rangfærslum Hlutabréf þriggja stærstu bankanna hríðféllu í dag eftir að skýrsla Danske Bank um íslensk efnahagsmál var birt. Ingólfur Bender, hagfræðingur, segir skýrsluna fulla af rangfærslum. 21.3.2006 19:08
Vaktakerfi flugumferðarstjóra verður breytt Flugmálastjórn segist vilja stytta vaktir í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík, en fimm ára samningaviðræður hafi ekki skilað árangri. Því komi til greina að breyta vaktakerfinu einhliða. Ágreiningurinn sé fyrir félagsdómi og reynt verði að fá félagsdóm til að útkljá öll deilumál aðila. 21.3.2006 19:05
Lægsta tilboð í Héðinsfjarðargöng 5,7 milljarðar króna Tékkneskur verktaki, Metrostav, í samstarfi við Háfell, átti lægsta tilboð í Héðinsfjarðargöng, upp á 5,7 milljarða króna. Tilboð þeirra reyndist 720 milljónum króna undir kostnaðaráætlun. 21.3.2006 19:02
Hátt í 55 þúsund hafa skilað framtölum á Netinu Frestur til að skila inn skattframtölum til ríkisskattstjóra rennur út á miðnætti í kvöld en klukkan sex höfðu 54.780 skilað inn framtali á Netinu samkvæmt upplýsingum á heimasíðu ríkisskattstjóra, rsk.is. 21.3.2006 19:01
Kemur til greina að Nató taki við varnarhlutverki Framkvæmdastjóri NATÓ telur koma til greina að sambandið taki við varnarhlutverki Bandaríkjamanna hér á landi. Í gær ræddi hann málefni Íslands við George Bush, forseta Bandaríkjanna, Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra, og Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra. 21.3.2006 18:57
Höfundur Draumalandsins stendur við ummælin Höfundur Draumalandsins dregur ekkert í land, þótt Alcoa kalli hann ósannindamann. Alcoa sé umsvifamikill þáttakandi í hönnun og þróun á stríðsvélum, ekki aðeins venjulegur hráefnisframleiðandi. "Alcoa framleiðir til dæmis Tomahawk eldflaugarnar, Bradley skriðdreka sem eru svona allra ljótustu djöflarnir sem við sjáum í Íraksmyndunum. Við erum hluti af mjög stóru og grimmu samhengi," segir Andri Snær sem skrifaði bók sína til að stinga á kýlum í samfélaginu. 21.3.2006 18:55
Segir suma fjölmiðla og stjórnarandstöðu hlaupa á eftir erlendum rangfærslum Forsætisráðherra sagði á Alþingi í dag að það væri áhyggjuefni hversu viljugir sumir fjölmiðlar og stjórnarandstaðan hefðu verið að hlaupa á eftir rangfærslum erlendra aðila um íslensk efnahagsmál. 21.3.2006 18:54
Fráleitt að Alfreð bjóði orku til álvers í Helguvík Vinstri grænir í Reykjavík segja fráleitt að Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, bjóði orku til álvers í Helguvík án samráðs við stjórn Orkuveitunnar eða borgarstjórn. Alfreð segir að nýtt álver sé langáhrifaríkasta aðferðin til að bæta atvinnuástandið á Suðurnesjum og það eina sem er fast í hendi. 21.3.2006 18:49
Neitar að tjá sig um brottför hers í Írak George Bush, Bandaríkjaforseti, vill ekkert segja til um hvenær herafli Bandaríkjanna verði farinn frá Írak. Bush var spurður um málið á blaðamannafundi í dag. Bush sagði það verða ákveðið af framtíðarforsetum og framtíðarstjórnum Íraks en Bush lætur af embætti árið 2009. Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna hefur sagt góð tíu ár taka að koma á friði í Írak og þangað til verði Bandaríkjaher í landinu. 21.3.2006 18:15