Hvatti til að tollum yrði aflétt af íslenskum fiski 21. mars 2006 20:46 MYND/Pjetur Sigurðsson
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra heimsótti í dag fyrirtæki í sjávarútvegi á Humberside svæðinu í Bretlandi og hitti að máli bæði borgarstjórann í Hull og bæjarstjórann í Grimsby. Á fundi með hagsmunaaðilum í sjávarútvegi hvatti sjávarútvegsráðherra þá til að leggja Íslendingum lið í að þrýsta á Evrópusambandið að aflétta tollum sem eru á nokkrum íslenskum sjávarafurðum, sem fluttar eru út til sambandslandanna. Jafnframt því að aflétt yrði útflutningsálagi á ferskan fisk frá Íslandi. Þá fór ráðherra yfir aðgerðir Íslendinga til að stemma stigu við ólöglegum og óábyrgum veiðum á karfa á Reykjaneshrygg, svokölluðum sjóræningjaveiðum. Þær aðgerðir virðast þegar hafa skilað árangri og fælt stórtækustu útgerðina frá því að gera þar út næsta vor og sumar. Ráðherra hvatti fundarmenn til að hafa varann á gagnvart ólöglega veiddum fiski og versla ekki með slíka vöru. Heimsókn sjávarútvegsráðherra til Bretlands lýkur á fimmtudag á fundum með Ben Bradshaw sjávarútvegsráðherra Bretlands, Bill Wiggin skuggamálaráðherra Íhaldsflokksins í sjávarútvegsmálum og að lokum hittir Einar K. Guðfinnsson þingmenn sem eiga rætur að rekja til sjávarplássa víðsvegar um Bretland og láta sjávarútvegsmál sig miklu varða.
Fréttir Innlent Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira