Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Framlög til þróunarsamvinnu við Srí Lanka þrefölduð Fiskveiðifloti Srí-Lankamanna þurrkaðist nánast út í hamförunum á dögunum og tekið getur allt upp í áratug að rétta hag þjóðarinnar á ný. Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að verja 75 milljónum króna til þróunarsamvinnu á Srí Lanka. </font /></b /> 12.1.2005 00:01
Ekki hægt að kjósa alls staðar Það verður ekki hægt að kjósa alls staðar í Írak þann 30. janúar. Þetta sagði Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar, í gær. Skiptir þá engu þótt fimmtíu þúsund hermönnum verði bætt við öryggissveitir Íraka fram að kosningunum. 12.1.2005 00:01
Þrír látnir á Bretlandseyjum Þrír hafa farist í miklu óveðri sem gekk inn á norðanverðar Bretlandseyjar í nótt. Víða hafa raflínur rofnað og eru tugir þúsunda manna án rafmagns og víða er varað við flóðahættu á Englandi, í Wales og Skotlandi. Veðurhamurinn náði líklega hámarki nú í morgun og fer vindhraðinn upp í fjörutíu metra á sekúndu. 12.1.2005 00:01
Varað við aðgerðum uppreisnarmanna Ríkisstjórn Indónesíu hefur ítrekað viðvaranir sínar um að hjálparstarfsmenn á Ache-héraði kunni að vera í hættu vegna aðgerða uppreisnarmanna. Þrátt fyrir að helsti hópur uppreisnarmanna í landinu segist ekki ætla að ráðast á hjálparstarfsmennina hafa þeim eigi að síður borist hótanir undanfarna daga. 12.1.2005 00:01
Þjóðaratkvæði um stjórnarskrá ESB Spænska þingið samþykkti í gær einróma að vísa stjórnarskrá Evrópusambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu. Spánverjar verða þar með fyrstir Evrópuþjóða til þess að greiða atkvæði um stjórnarskrána sem á að gera stofnanir Evrópusambandsins skilvirkari. 12.1.2005 00:01
Kannabisefni í bíl og heima Um hundrað grömm af kannabisefnum fundust hjá manni sem stöðvaður var á bíl sínum í vesturborginni undir kvöld í gær. Kannabisefni fundust í bílnum og síðan við húsleit heima hjá honum. Megninu hafði verið pakkað í litlar umbúðir eins og seldar eru á götunni og er maðurinn grunaður um að hafa ætlað að selja efnið. 12.1.2005 00:01
Íslendingar og Færeyingar semja Færeyingar og Íslendingar hafa gengið frá gagnkvæmum veiðiheimildum í lögsögum landanna. Færeyingar fá að halda áfram að veiða 5600 tonn af bolfiski í íslenskri lögsögu í ár eins og undanfarin og þá mega færeysk skip veiða ákveðið magn af uppsjávarfiski í íslenskri lögsögu og íslensk skip á móti í færeysku lögsögunni. 12.1.2005 00:01
Hlupu uppi tölvuþjóf Skjót viðbrögð lögreglunnar á Akureyri við boðum frá þjófavarnakerfi í verslun Office One í bænum urðu til þess að hún gómaði þjóf sem stolið hafði fjórum fartölvum að andvirði um níu hundruð þúsund krónur. Þegar lögregla kom á vettvang sást til þjófsins á harðahlaupum og tóku lögreglumenn þá líka til fótanna og eltu hann. 12.1.2005 00:01
David Beckham til liðs við UNICEF Nýskipaður velgjörðarsendiherra UNICEF, David Beckham, mun taka þátt í sjónvarpsherferð Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna til stuðnings fórnarlömbum flóðanna í löndunum við Indlandshaf. 12.1.2005 00:01
Fyrstu frímerki ársins að koma út Fyrstu frímerkin og fyrsta smáörkin sem Íslandspóstur gefur út á þessu ári koma út á morgun. Eyjar við Ísland eru myndefni á tveimur frímerkjum og eitt frímerki er gefið út til að minnast þess að 100 ár eru síðan skipulögð skógrækt hófst á Íslandi. Þá er gefin út smáörk í tilefni þess að safnhús Þjóðminjasafns Íslands hefur verið opnað að nýju. 12.1.2005 00:01
85% landsmanna í þjóðkirkjunni Um 85 prósent landsmanna eru skráð í þjóðkirkjuna, en það eru 6 prósentum færri en fyrir áratug. Á sama tíma hefur fjöldi þeirra sem standa utan trúfélaga nánast tvöfaldast. 12.1.2005 00:01
Bakkavör leggur til níu milljónir Starfsmenn Bakkavarar Group og félagið sjálft ætla að styrkja hjálparstarf á hamfarasvæðunum í Asíu um níu milljónir króna. Tvær og hálf milljón safnaðist meðal starfsmanna, félagið lagði fram jafn mikið á móti og ákveðið var að verja áætluðum kostnaði við árshátíðarhald starfsmanna líka til söfnunarinnar. 12.1.2005 00:01
Útlán Íbúðlánasjóðs dragast saman Útlán Íbúðalánasjóðs skreppa saman ansi hratt og engin aukning hefur orðið á útlánum sjóðsins þrátt fyrir rýmri lánaheimildir og samstarf við sparisjóði. Frá því bankarnir hófu innrás sína á íbúðalánamarkað hafa þeir lánað tæpum 90 prósentum, eða 103 milljörðum, meira til íbúðarkaupa en Íbúðalánasjóður. 12.1.2005 00:01
Einn lést í árás á herjeppa á Gasa Stefna hins nýja forseta Palestínu varð fyrir áfalli í morgun þegar palestínskir byssumenn gerðu ísraelskum herjeppa fyrirsát í grennd við landnemabyggð gyðinga á Gasaströndinni. Þeir drápu einn landnema og særðu þrjá hermenn. 12.1.2005 00:01
Rannsókn enn í höndum Þjóðverja Rannsókn á fíkniefnafundinum um borð í togaranum Hauki í Bremerhafen á fimmtudag er enn algerlega í höndum þýsku lögreglunnar og hefur enginn verið yfirheyrður vegna málsins hér á landi. 12.1.2005 00:01
Eiturlyfjum smyglað í hundum Fíkniefnabarónar í Kólumbíu eru farnir að nota gæludýr til þess að koma varningi sínum á milli landa. Fíkniefnunum er troðið inn í dýrin. 12.1.2005 00:01
Enn óvíst með atvinnuleyfi Engin svör fást hjá Vinnumálastofnun við því hvort gengið verði frá atvinnuleyfum í dag fyrir 54 Kínverja sem Impregilo hefur óskað eftir að ráða til starfa. Impregilo ætlar að sækja um leyfi fyrir að minnsta kosti 230 útlendinga. 12.1.2005 00:01
Vilja að Annan sæti ábyrgð Bandaríkjamenn hafa ítrekað kröfu sína um að Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, verði dreginn til ábyrgðar fyrir stjórnleysið sem einkenndi framkvæmd Sameinuðu þjóðanna á samkomulaginu um að Írakar fengju að selja olíu fyrir mat og aðrar nauðsynjar. 12.1.2005 00:01
Verð á mjólkurkvóta rýkur upp Verð á mjólkurkvóta er rokið upp úr öllu valdi og íhuga ýmsir bændur að bregða búi og selja kvótann, en aðrir neyðast til þess. Lítri af varanlegum mjólkurkvóta kostaði 210 krónur í janúar í fyrra en er nú kominn upp í 355 krónur og hefur lítrinn því hækkað um 145 krónur, sem er langt umfram allar hækkanir í landinu. 12.1.2005 00:01
Umdeildar reglur bíða gildistöku Umdeildar breytingar á reglum ferðaþjónustu fatlaðra aldraða taka ekki gildi fyrr en settar verða reglur um akstursþjónustu aldraðra, að sögn Bjarkar Vilhelmsdóttur borgarfulltrúa. 12.1.2005 00:01
Koma sér fyrir á hættulegu svæði Fórnarlömb flóðbylgjunnar á Srí Lanka eru nú að snúa aftur til síns heima, stjórnvöldum til mikils ama. Fólkið kemur sér á ný fyrir á svæði sem talið er stórhættulegt. Ofgnótt er af sumum neyðarvarningi en annan sárvantar. 12.1.2005 00:01
Heilbrigðisráðherra selur aðgerðir Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að taka tilboði fjögurra heilbrigðisstofnana um kaup á tæplega 650 aðgerðum sérstaklega. Ákvörðun ráðherra er liður í að draga enn frekar úr bið eftir þessum aðgerðum. Heildarkostnaður er nær 90 milljónum króna. 12.1.2005 00:01
Ekkert fararsnið á Alfreð Alfreð Þorsteinsson, formaður borgarráðs, segir ekkert fararsnið á sér úr borgarpólitík. Hann blæs á þau sjónarmið samflokksmanna sinna í Framsóknarflokknum að tími sé kominn til að hann snúi sér að öðrum verkefnum og segir gagnrýnina eiga rætur að rekja til vonbrigða þeirra með eigin framgöngu. 12.1.2005 00:01
Samstillt átak þarf til Íbúðalánasjóður segir að með samstilltu átaki sveitarfélaga, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, sé hægt að draga úr þrýstingi á íbúðaverð með aukinni lóðaúthlutun. 12.1.2005 00:01
Áskoranir í gang Aðstandendur söngleikjarins Hársins gáfu á dögunum ágóða sérstakrar aukasýningar Hársins til Landssöfnunarinnar "Neyðarhjálp úr norðri". KB banki tvöfaldaði framlag leikhússins og nam upphæðin 3,5 milljónum króna. Aðstandendur Hársins skora á aðstandendur Héra Hérasonar, sem nú er sýndur í Borgarleikhúsinu, að leggja söfnuninni lið. 12.1.2005 00:01
Rasmussen hyggst boða til kosninga Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hyggst boðað til kosninga í næsta mánuði eða níu mánuðum á undan áæltun. Rasmussen mun vilja nýta þann meðbyr sem skoðanakannanir sýna að flokkur hans, Venstre, hafi nú. 12.1.2005 00:01
Bera saman epli og appelsínur Hallur Magnússon, sviðsstjóri hjá Íbúðalánasjóði, segir að greiningardeild Íslandsbanka beri saman epli og appelsínur, þegar hún segir að bankarnir hafi veitt 120 milljarða í verðtryggð íbúðalán en íbúðalánasjóður 17 milljarða frá því bankarnir hófu samkeppni við Íbúðalánasjóð í lok ágúst. 12.1.2005 00:01
Álver Alcoa fari í umhverfismat Álver Alcoa í Reyðarfirði þarf að fara í gegnum nýtt, sjálfstætt umhverfismat samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í dag. Dómurinn ómerkti úrskurð umhverfisráðherra frá árinu 2003 sem staðfesti ákvörðun Skipulagsstofnunar um að 322 þúsund tonna álver þyrfti ekki að sæta umhverfismati. 12.1.2005 00:01
Mugison Vestfirðingur ársins 2004 Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, Mugison, er Vestfirðingur ársins 2004 samkvæmt vali lesenda bb.is. Örn Elías hefur staðið sig frábærlega á tónlistarsviðinu á undanförnum árum og sérstaklega á því síðasta, en þá gaf hann m.a. út plötuna Mugimama, Is This Monkeymusic? sem fjölmargir gagnrýnendur hafa valið bestu plötu ársins. 12.1.2005 00:01
Viðvörunarbúnaður til í júní 2006 Sameinuðu þjóðirnar áætla að viðvörunarbúnaður vegna flóðbylgna verði kominn í gagnið fyrir júní 2006 í löndunum við Indlandshaf. Talið er að ef slíkur búnaður hefði verið í löndunum, þar sem flóðbylgjan á annan dag jóla reið yfir, hefði mátt bjarga mörgum þúsundum manna, en um 156 þúsund létust í hamförunum. 12.1.2005 00:01
Loðnukvótinn verði stóraukinn Hafrannsóknarstofnunin hefur lagt til við sjávarútvegsráðherra að loðnukvótinn verði aukinn um 556 þúsund tonn. Þetta er niðurstaðan eftir rannsóknarleiðangur Árna Friðrikssonar þar sem loðnuganga var mæld norður og austur af landinu. Stofnunin kynnti ráðherra tillögu sína í dag, en þar er lagt til að loðnukvótinn verði alls 985 þúsund tonn á vertíðinni. 12.1.2005 00:01
Geir á tvo fundi Geir H. Harde, fjármálaráðherra hleypur í skarðið fyrir Davíð Oddsson á tveimur fundum erlendis í forföllum utanríkisráðherra. 12.1.2005 00:01
Marktækt að spyrja um stuðning Ríkisstjórnin segir út í hött hjá Gallup að spyrja um lista staðfastra þjóða. Björn Bjarnason segir að marktækt hefði verið að spyrja um hernað Bandaríkjamanna í Írak.</font /></b /> 12.1.2005 00:01
Staðföst en tækifærissinnuð Leiðtogar staðfastra ríkja fá ekki háa einkunn í nýlegum greinaflokki Nicholas D. Kristof sem skrifar pistla tvisvar í viku á leiðaraopnu The New York Times. 12.1.2005 00:01
Flugleiðir kaupa vélar og leigja Flugleiðir hafa haslað sér völl á nýju sviði flugvélaleigu með stofnun fyrirtækis í samvinnu við Gunnar Björgvinsson og fleiri í Lichtenstein. Fyrirtækið hefur keypt þrjár notaðar Boeing 737-500 flugvélar af írska flugfélaginu Aer Lingus og leigir þær til litháiska flugfélagsins Air Baltic Latwia til fimm ára. 12.1.2005 00:01
Fundað um Kárahnjúkamál Boðað hefur verið til fundar í félagsmálanefnd Alþingis á föstudaginn kemur að ósk fulltrúa Samfylkingarinnar í nefndinni þar sem ræða á starfsmannamál á Kárahnjúkasvæðinu og framkvæmd á samningum við Impregilo. 12.1.2005 00:01
Mótmælir ásökunum um skattsvik Impregilo hefur sent frá sér tilkynningu vegna ásakana um að fyrirtækið hafi ekki greitt skatta hér á landi. Þar segir að fullyrðingar um skattsvik séu ósannar, ómaklegar og ósmekklegar og að fyrirtækið hafi greitt rúmlega 855 milljónir í skatta frá júlíbyrjun 2003 fram í nóvember 2004. 12.1.2005 00:01
Tvísköttunarsamningurinn í gildi Garðar Valdimarsson, lögmaður Impregilo og fyrrverandi ríkisskattstjóri, segir að tvísköttunarsamningur við Portúgali hafi tekið gildi þann 11. apríl 2002 og komið til framkvæmda 1. janúar 2003. 12.1.2005 00:01
Umhverfisráðuneytið hyggst áfrýja Umhverfisráðuneytið mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá í dag um að álver Alcoa í Reyðarfirði þurfi að fara í gegnum nýtt, sjálfstætt umhverfismat. Héraðsdómur ómerkti þar með úrskurð umhverfisráðherra frá árinu 2003 um að álverið þyrfti ekki að sæta nýju umhverfismati. 12.1.2005 00:01
Sömu réttindi til allra Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, styður það að allir fái sambærileg lífeyrisréttindi, hvort sem þeir starfa á almennum markaði eða hjá hinu opinbera. 12.1.2005 00:01
Búist við að kosningum verði flýtt Búist er við því að Anders Fogh Rasmussen boði til þingkosninga fljótlega þó að níu mánuðir séu enn eftir af kjörtímabili þingmanna. 12.1.2005 00:01
Milljónir í brotajárn Litlu munaði að norskur banki yrði nokkrum milljónum króna fátækari þegar verið var að taka gamla hraðbanka úr umferð og senda þá í brotajárn og bræðslu. 12.1.2005 00:01
Aldrei minni stuðningur við innrás Innrásin í Írak hefur aldrei notið minni stuðnings meðal Breta en nú um stundir samkvæmt nýrri skoðanakönnun Populus. Einungis 29 prósent aðspurðra sögðu það hafa verið rétta ákvörðun að steypa Saddam Hussein af stóli. Í apríl 2003, skömmu eftir fall einræðisherrans, voru 64 prósent Breta þessarar skoðunar. 12.1.2005 00:01
Ekki hægt að kjósa alls staðar Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnar Íraks, hefur í fyrsta sinn viðurkennt opinberlega að ekki verði hægt að kjósa á nokkrum stöðum í Írak vegna óaldarinnar sem ríkir þar. 12.1.2005 00:01
Best að treysta á heimamenn Ríki og samtök sem leggja fram fé til neyðarhjálpar í Asíu í kjölfar náttúruhamfaranna þar ættu frekar að verja því í vel þjálfaðar sveitir heimamanna en að senda erlendar hjálparsveitir á vettvang. Þetta sögðu talsmenn Rauða krossins í gær og sögðu að vel þjálfaðir heimamenn væru betur til þess fallnir að bjarga lífum en aðkomumenn. 12.1.2005 00:01