Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrír falla í Ísrael Þrír palestínskir vígamenn féllu á Gaza-ströndinni í gær eftir að hafa ráðist á ísraelska varðstöð og bifreiðar ísraelska hersins á miðvikudag. </font /> 16.12.2004 00:01
Segjast ekki í Írak George W. Bush, varaði Írani og Sýrlendinga við því að afskipti af Írak væri ekki í þeirra þágu. Sérstaklega ekki í undanfara kosninganna Írak. Viðvörunin kom degi eftir að varnarmálaráðherra Írak, Hazem Shaalan, sakaði ríkisstjórnir landanna tveggja um að skipuleggja hryðjuverk í Írak og sagði Teheran "hættulegasta óvin Írak." 16.12.2004 00:01
Vill vitnisburð Clintons og Blairs Slobodan Milosevic krafðist þess aftur að Bill Clinton og Tony Blair yrðu boðaðir sem vitni í réttarhöldunum yfir honum. Aftur var honum hafnað af dómurum stríðsdómstóla Sameinuðu þjóðanna. 16.12.2004 00:01
Réttarhöld Saddams síðust Dómsmálaráðherra Íraks hefur sagt að síðast verði réttað yfir Saddam Hussein af tólf leiðtogum gömlu stjórnar landsins. Einnig kom fram að þetta yrði ekki fyrr en "löngu eftir" kosningarnar í janúar. 16.12.2004 00:01
Páfi rekur tvo presta Tveir írskir prestar sem dæmdir hafa verið fyrir kynferðisofbeldi á börnum hafa verið sviptir hempu sinni, samkvæmt skipun frá Jóhannesi Páli II, páfa kaþólsku kirkjunnar. 16.12.2004 00:01
Ætlar að bjóða sig fram á ný David Blunkett, innanríkisráðherra Bretlands, sem sagði af sér í gær, ætlar að bjóða sig fram á ný í næstu kosningum. Blunkett naut mikils trausts Blairs forsætisráðherra, og þykir afsögnin mikið áfall fyrir hann. 16.12.2004 00:01
Fordæmi fyrir íhlutun stjórnvalda Georg Lárusson, forstjóri Útlendingastofnunar, segir fordæmi fyrir því að stjórnvöld hér á landi hafi beitt sér fyrir því að útlendingar fái fyrirgreiðslu hjá stofnuninni, líkt og í tilfelli Bobbys Fishers. Framsalssamningur er í gildi á milli Íslands og Bandaríkjanna og hann reiknar með að gengið hafi verið frá þeim málum áður en íslensk stjórnvöld ákváðu að verða við beiðni Fishers um dvalarleyfi. 16.12.2004 00:01
Ekki sjálfgefið að svara játandi Hansína Ásta Björgvinsdóttir verður næsti bæjarstjóri í Kópavogi. Bæjarstjórn Kópavogs mun staðfesta þetta formlega á fundi sínum milli jóla og nýjárs. Hansína Ásta tekur við embættinu um áramót. Hún er 58 ára, kennari að mennt, og hefur verið bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins síðan 1998. 16.12.2004 00:01
Glataður snillingur Líf Bobby Fischer hefur verið þyrnum stráð en líklega hefur hann sáldrað þeim flestum sjálfur. Vinir hans segja hann þó viðkvæmt ljúfmenni sem hefur gaman af Robbie Williams. 16.12.2004 00:01
Vegaframkvæmdir á Vesturlandsvegi Framkvæmdir við tvöföldun akreina á Vesturlandsvegi, frá Víkurvegi í Grafarvogi að Skarhólabraut í Mosfellsbæ, standa yfir. Verklok eru áætluð í október á næsta ári. 16.12.2004 00:01
Vilja auka velmegun Fyrsti fundur félagsmálaráðherra Evrópuríkja sem vinna að átaksverkefni um bætta lýðheilsu í Norður-Evrópu var haldinn í Tallinn í Eistlandi í fyrradag. 16.12.2004 00:01
Sveik út 650 þúsund Kona um þrítugt fær þriggja mánaða fangelsisdóm brjóti hún lög næstu tvö árin. Konan sveik út vörur og tölvubúnað á kostnað raunvísindadeildar Háskóla Íslands fyrir tæpar 650 þúsund krónur þegar hún vann þar sem deildarstjóri. 16.12.2004 00:01
Úkraínumanni vísað úr landi Úkraínumanni sem hafði verið hér sem námsmaður var vísað úr landi. Námsmannaleyfið var runnið út. Maðurinn kvæntist íslenskri konu og sótti um makaleyfi en því var synjað. 16.12.2004 00:01
Bin Laden hrósar vígamönnum Osama bin Laden hrósar hópi vígamanna sem réðust á ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna í Jeddah í Sádi-Arabíu í byrjun mánaðarins í nýrri hljóðupptöku á heimasíðu herskárra múslima. Níu manns létust í árásinni. 16.12.2004 00:01
Fékk 35 milljóna sekt Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi fyrrverandi stjórnarformann gjaldþrota fyrirtækis í 35 milljóna króna sekt og sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir undanskot á opinberum gjöldum á meðan fyrirtækið var í rekstri. Þau voru meðal annars virðisaukaskattur og og staðgreiðsla opinberra gjalda upp á samtals sautján milljónir króna. 15.12.2004 00:01
Tveir hafa yfirgefið strætisvagn Tveir farþegar hafa yfirgefið strætisvagn sem byssumenn rændu í Aþenu í Grikklandi í morgun. Byssugelt heyrðist á vettvangi en ekki hafa fengist neinar skýringar á því. Á þriðja tug farþega er í strætisvagninum, en strætisvagnabílstjórinn slapp og sagðist telja að mannræningjarnir væru Albaníumenn. 15.12.2004 00:01
Hámarkssektir þrefaldaðar Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur með nýrri reglugerð þrefaldað upphæð hámarkssekta við umferðalagabrotum. Þær hækka úr 100 þúsund krónum í 300 þúsund krónur. 15.12.2004 00:01
Fiskilifur olli nærri slysi Minnstu munaði að illa færi þegar tvö stór fiskkör, full af fiskilifur, losnuðu á palli vörubíls, sem var á leið niður Kambana í gærkvöldi, og féllu á veginn. Ökumanni bíls, sem komu úr gagnstæðri átt, tókst með naumindum að forða sér undan körunum, en annað þeirra lenti utan í bílnum og skemmdi hann eitthvað. 15.12.2004 00:01
Slasaðir eftir eld í kvikmyndahúsi Yfir hundrað manns slösuðust þegar eldur kviknaði í kvikmyndahúsi í Istanbúl í Tyrklandi í gærkvöldi. Hundruð gesta voru við frumsýningu nýrrar tyrkneskrar myndar þegar eldurinn kviknaði. Töluverður fjöldi gesta varð fyrir reykeitrun, en talið er að eldurinn hafi kviknað út frá kertum sem notuð voru sem skreyting á frumsýningunni. 15.12.2004 00:01
3 hermenn látnir eftir sprengingu Þrír afganskir hermenn fórust í sprengingu í borginni Kandahar í morgun, að sögn lögreglustjóra borgarinnar sem taldi líklegt að tala fallinna myndi hækka. Blaðamönnum var meinað að kanna vettvanginn. 15.12.2004 00:01
Réttað yfir eiturefna-Ali Réttarhöld yfir eiturefna-Ali, einum helsta samstarfsmanni Saddams Hússeins, hefjast í Bagdad í dag. Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks, tilkynnti í gær óvænt um að réttarhöld yfir nokkrum af fyrrverandi ráðamönnum Íraks hæfust von bráðar og fyrir stundu var greint frá því að eiturefna-Ali yrði fyrstur. 15.12.2004 00:01
Alli ríki hættur útgerð Alli ríki, eða Aðalsteinn jónsson útgerðarmaður á Eskifirði, er endanlega hættur útgerð og Elvar Aðalsteinsson, sem verið hefur starfandi stjórnarformaður Eskju hefur selt allan sinn hlut og lætur af stjórnarformennsku. 15.12.2004 00:01
Láta nótaskipin um veiðina Sjómenn á þremur stórum fjölveiði- og fullvinnsluskipum, sem eru á síldarmiðunum fyrir austan land, eru hættir að hafa fyrir því að veiða sjálfir. Nú láta þeir nótaskipin um það og dæla svo aflanum úr þeim yfir í stóru skipin til fullvinnslu. 15.12.2004 00:01
5 hafa verið látnir lausir Mannræningjar í Aþenu sem rændu rútu í morgun hafa látið fimm gísla lausa af þeim 26 sem þeir höfðu í haldi. Þeir segjast munu láta allar konur um borð lausar ef þeir fá bílstjóra um borð, ella fari þeira að taka gísla af lífi. Þeir vilja komast á flugvöllinn í Aþenu og fljúga þaðan til Rússlands. 15.12.2004 00:01
6 ráðherrum skipt út Ahmed Qureia, forsætisráðherra heimastjórnar Palestínumanna, ætlar að skipta um sex ráðherra í heimastjórninni. Ráðherrarnir voru allir nánir samstarfsmenn Yassers Arafats, forseta Palestínu, sem féll frá í nóvember. Það eru utanríkisráðherra og innanríkisráðherra sem fá að fjúka, auk fjármálaráðherra og þriggja annarra. 15.12.2004 00:01
Vilja komast til Rússlands Mannræningjar sem rændu strætisvagni í Aþenu í morgun krefjast einnar milljónar evra í lausnargjald fyrir á þriðja tug gísla sem þeir hafa enn í haldi. Þeir hafa látið fimm lausa, en segjast munu halda hinum þar til þeir komast með flugi til Rússlands. 15.12.2004 00:01
Jón frá Pálmholti látinn Jón Kjartanson frá Pálmholti er látinn, 74 ára að aldri. Jón frá Pálmholti var formaður Leigjendasamtakanna um árabil, sat í stjórn Rithöfundafélags Íslands og einnig í stjórn Ásatrúarfélagsins. Eftir Jón liggja fjölmörk ritverk, á þriðja tug bóka auk blaða- og tímaritagreina. 15.12.2004 00:01
15% brottfall af háskólastigi Brottfall nemenda af háskólastigi var tæp 15 prósent milli áranna 2002 og 2003. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Íslands hefur tekið saman. Niðurstöðurnar sína meðal annars að brottfall er minna meðal nemenda í dagskóla og fjarnámi en talsvert meira meðal nemenda í kvöldskólum. 15.12.2004 00:01
3 Pólverjar dóu er þyrla hrapaði Þrír pólskir hermenn fórust þegar herþyrla hrapaði í Írak í dag. Fjórir aðrir særðust. Svo virðist sem einhverskonar vélarbilun hafi orðið til þess að þyrlan hrapaði með þessum afleiðingum. 15.12.2004 00:01
Misnotaði systurdóttur sína Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær rúmlega þrítugan karlmann í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir kynferðisbrot gegn systurdóttur sinni. Stúlkan var aðeins níu ára gömul þegar maðurinn braut fyrst gegn henni, en brotin áttu sér stað á árunum 1998 til 2002. 15.12.2004 00:01
Bjargaði lífi ungs Dana Þrítugur Íslendingur, Einar Helgason, sýndi mikið snarræði þegar hann bjargaði ungum Dana sem hafði dottið niður á lestarteinana í Österport-stöðinni í Kaupmannahöfn seint á laugardagskvöldið, og lá þar ósjálfbjarga rétt áður en lestin brunaði inn á stöðina. 15.12.2004 00:01
Hóta að krefjast skaðabóta Skeljungur hótar Kópavogsbæ að krefjast skaðabóta ef bærinn heimilar Atlantsolíu að reisa bensínstöð í grennd við bensínstöð Skeljungs við Dalbraut. Framkvæmdastjóri Atlantsolíu segir þetta vera samkeppnislegt skemmdarverk. 15.12.2004 00:01
Fá nú borgað fyrir egg Konur geta selt egg sín til tæknifrjóvgunarstofunnar Art Medica, vegna skorts á eggjum. Slíkt hefur ekki áður tíðkast hér landi. Þrátt fyrir að kallað hafi verið eftir gjafaeggjum hefur það litlu skilað hingað til. Um 15 tæknifrjóvganir eru framkvæmdar árlega en talið er að þörfin sé tvöfalt meiri. 15.12.2004 00:01
Vaxandi hópur með jólakvíða EA-samtökin halda sinn árlega fund um jólakvíða í Hallgrímskirkju á morgun en vaxandi hópur berst við mikinn kvíða fyrir hátíðarnar. EA samtökin, eða Emotions Anonymous starfa eftir sömu hugmyndafræði og AA samtökin. Unnið er eftir tólf spora kerfi en í stað áfengis er það andleg vanlíðan sem félagar í EA kljást við. Samtökin funda í hverri viku í Reykjavík en ástæða þótti til að halda opinn fund í aðdraganda jólanna. Kristbjörg Árnadóttir, talsmaður félagsins, segir hátíðarnar mörgum erfiðar og ýmislegt komi til, eins og hjónaskilnaðir, sjúkdómar og ekki síst fjárhagsörðugleikar. Hún segir þá hugmynd hafa myndast að allir þurfi að eyða mjög miklu um jólin og því séu jólin erfiður tími fyrir þá sem eiga minnst. Fundurinn, sem haldinn verður í Hallgrímskirkju klukkan fjögur á morgun er öllum opinn og að sjálfsögðu verður nafnleyndar gætt. Fólki gefst þar kostur á að ræða um eigin tilfinnignar eða hvað eina sem því liggur á hjarta. Kristbjörg segir að fundurinn verði öðruvísi en venjulega að því leyti að fólki verði leyft að tjá sig um það sem það vill á þessum fundi. 15.12.2004 00:01
Hluti Stokkhólms girtur af Lögreglan í Stokkhólmi í Svíþjóð hefur girt af stóran hluta borgarinnar vegna tilraunar til þess að sprengja upp gjaldeyrisbanka í miðborg Stokkhólms fyrr í dag. Starfsmaður gjaldeyrisbankans gekk inn í hann með sprengju bundna við bringuna. 15.12.2004 00:01
Líkur á öflugum skjálfta í Tokyó Jarðskjálftasérfræðingar í Japan segja miklar líkur á því að öflugur jarðskjálfti, sem gæti orðið allt að 13 þúsund manns að bana, muni ríða yfir Tokyo, höfuðborg Japans á næstu 30 árum. Í skýrslu frá yfirvöldum, sem lak til fjölmiðla, segir að 70 prósent líkur séu á að skjálfti upp á 7 á richter muni verða innan 30 ára. 15.12.2004 00:01
Starfsmannastjóri var varaður við Starfsmannastjóri Viktor Júsjenkó, forsetaframbjóðanda í Úkraínu, segist hafa fengið viðvaranir um að líf Júsjenkós kynni að vera í hættu fyrir meira en fjórum mánuðum síðan. Hann segist hafa fengið símtal frá fyrrverandi sérsveitarmönnum í júlí, sem sögðust ætla að koma frambjóðandanum fyrir kattarnef og líklegast væri að þeir myndu nota til þess eitur. 15.12.2004 00:01
Sigurður maður ársins Frjáls verslun hefur útnefnt Sigurð Helgason, forstjóra Flugleiða, sem mann ársins 2004 í íslensku atvinnulífi. Hann hlýtur þennan heiður fyrir einstaka hæfni við stjórnun félagsins. Sigurður hefur verið forstjóri Flugleiða frá því í júní árið 1985, eða í tæp tuttugu ár. 15.12.2004 00:01
SMS í heimasíma Fyrsta SMS skeytið var sent í heimasíma hér á landi í síðustu viku. Um var að ræða tilraunasendingu hjá Símanum en að undanförnu hafa tæknimenn fyrirtækisins unnið að uppsetningu SMS kerfis fyrir heimasíma. Búist er við viðskiptavinum Símans standi þessi þjónusta til boða strax í byrjun næsta árs. 15.12.2004 00:01
Reyna að koma í veg fyrir útboð Rússneski olíurisinn Yukos hefur farið þess á leit við dómsstóla í Bandaríkjunum að þeir reyni að koma í veg fyrir að meginhluti fyrirtækisins verði boðinn upp á sunnudaginn kemur. Til stendur að yfirvöld í Rússlandi bjóði út dótturfyrirtæki Yukos, sem framleiðir 60 prósent af allri olíu fyrirtækisins, á sunnudaginn, vegna vangoldinna skatta upp á 9 milljarða bandaríkjadala. 15.12.2004 00:01
5 í haldi vegna hryðjuverkahótana Fimm menn eru í haldi lögreglunnar á Spáni vegna gruns um aðild að skæruliðahóp sem hugðist sprengja hæstarétt Spánar og hótaði í síðustu viku sprengingu á Bernabeu-knattspyrnuvellinum á meðan á leik Real Madrid og Real Sociedad stóð. Flauta þurfti leikinn af, en ekki reyndist fótur fyrir hótuninni. 15.12.2004 00:01
Ætluðu að ræna gjaldeyrisbankann Sænska lögreglan leitar að hópi manna sem grunaðir eru um að hafa gert tilraun til að ræna gjaldeyrisbanka í höfuðborginni fyrr í dag. Mennirnir komu sprengju fyrir á starfsmanni bankans og fyrirskipuðu honum að fara til vinnu í morgun og krefjast peninga. Til að fá vilja sínum framgengt héldu þeir sambýliskonu hans fanginni á heimili þeirra. 15.12.2004 00:01
Aðildarviðræður verði samþykktar Jose Manuel Barosso, forseti framkvæmdastjórnar evrópusambandsins, segir rétt að gefið verði grænt ljós á aðildarviðræður Tyrkja að sambandinu á föstudaginn, þegar formleg ákvörðun þar að lútandi verður gerð heyrinkunn. 15.12.2004 00:01
Óskað eftir aðstoð í Rússlandi Á fundi félagsmálaráðherra Evrópuríkja sem haldinn var í Tallinn í gær óskaði fulltrúi Rússlands eftir tafarlausri sérfræðiaðstoð og samstarfi sjúkrahúsa til að hefta útbreiðslu eyðni í Rússlandi. Talið er að 300 þúsund manns séu eyðnismitaðir í landinu. Þeir sem smitast nú eru nær eingöngu gagnkynhneigðir einstaklingar. 15.12.2004 00:01
Hafa látið 12 lausa Mannræningjar sem rændu strætisvagni í Aþenu í morgun krefjast einnar milljónar evra í lausnargjald fyrir tólf gísla sem þeir hafa enn í haldi. Þeir hafa látið aðra tólf lausa, en segjast munu halda hinum þar til þeir komast með flugi til Rússlands. Um þjóðerni mannræningjanna er ekkert vitað, en talið er að þeir séu annað hvort Rússar eða Albanar. 15.12.2004 00:01