Fleiri fréttir

Festu sprengju við starfsmann

Þrír menn eru eftirlýstir í Svíþjóð fyrir að ræna starfsmanni gjaldeyrisbanka, festa sprengju við hann og ræna svo bankann. Þegar maðurinn kom heim til sín eftir vinnu í gærkvöld biðu hans þar þrír ókunnir menn og höfðu sambýliskonu hans í haldi.

Sendiráði Breta ekki lokað

Breska sendiráðið á Íslandi er ekki eitt af þeim sem Bretar ætla að loka vegna niðurskurðar. Greint var frá því í mars að sendiráðið væri ofarlega á lista yfir þau sem loka ætti. Nú hefur listinn verið birtur og eru það níu sendiráð sem verður lokað, í Afríku og Asíu. Auk þess verður nokkrum ræðismannsskrifstofum lokað.

Samið um viðbótarframlag

Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og BSRB hafa undirritað samkomulag um viðbótarframlag borgarinnar í lífeyrissjóði starfsmanna hennar. Það felur í sér að Reykjavíkurborg greiðir viðbótarframlag í lífeyrissjóð; allt að tveggja prósenta framlag gegn jafnháu framlagi starfsmanns.

Skrifað undir vegna sýningarskála

Borgarstjóri skrifaði í dag undir kaupsamning vegna kaupa fasteignafélagsins Stoða hf. á þúsund fermetra sýningarskála fornminja, sem staðsettur er undir Aðalstræti 16. Kaupverðið er 160 miljónir króna. Einnig var skrifað undir leigusamning sem kveður á um leigu Reykjavíkurborgar á húsnæðinu fram til árisins 2030.

Reykbúr flutt vegna dópsala

Reykaðstaða sjúklinga á geðsviði Landspítala háskólasjúkrahúss við Hringbraut verður flutt á næstunni. Ástæðan er meðal annars sú að dópsalar hafa stundað að bjóða fíkniefni til sölu þar og fólk hefur jafnvel sofið þar. </font /></b />

Eggjakaup af konum á gráu svæði

Landlæknir segir það "á mjög gráu svæði" að kaupa egg af konum til tæknifrjóvgunar eins og boðað hefur verið hér á landi. Hann segir þó ekkert í lögum sem banni það. Embættið mun ræða málið við forráðamenn Art Medica. </font /></b />

Kvartanir vegna umönnunar aldraðra

Landlæknisembættinu berast árlega kvartanir vegna ónógrar umönnunar og hjúkrunar aldraðra sem dvelja á stofnunum, að sögn Matthíasar Halldórssonar aðstoðarlandlæknis.

Sátt um Lund

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti einróma skipulagstillögur Lundar í Fossvogsdal. Fyrri tillögur sem gerðu ráð fyrir 460 íbúðum á lóðinni reyndust mjög umdeildar og var mótmælt af íbúum í nágrenni lóðarinnar.

640 þúsund til Palestínu

Hagur heyrnardaufra barna í Palestínu kann að vænkast á næstunni því senn verða sendar 640 þúsund krónur til kaupa á sérstökum búnaði þeim til handa. Um helmingur fjárins hefur safnast í hlutaveltum sem íslensk börn hafa efnt til um stræti og torg en hinn helmingurinn kemur frá Leikskólum Reykjavíkur. </font /></b />

Verður varðveitt í Vestmannaeyjum

Ríkið kaupir teikningar Sigmunds fyrir 18 milljónir króna. Ætlunin er að varðveita þær í óreistu meningarhúsi í Vestmannaeyjum.

Hópuppsagnir fyrirhugaðar

Uppsagnir eru fyrirhugaðar hjá Ratsjárstofnun vegna aukinnar sjálfvirkni í rekstri ratsjárstöðva stofnunarinnar. Ólafur Örn Haraldsson, sem unnið hefur að verkefnum hjá Ratsjárstofnun og tekur við forstjórastöðunni um áramótin, segir að hvorki liggi fyrir hversu mörgum verði sagt upp né hvenær. 

Fischer fær dvalarleyfi á Íslandi

Íslensk stjórnvöld hafa orðið við beiðni Bobby Fischers um að veita honum dvalarleyfi hér á landi. Útlendingastofnun mun tilkynna nánar um málið á eftir. Sendiráð Íslands í Japan mun koma þessu á framfæri við Fischer og veita honum aðstoð við að komast hingað til lands óski hann þess.

Refurinn er erfiður

Loðdýraræktendur eru bjartsýnir á framtíð minkaræktunar á Íslandi. Horfurnar eru ekki eins góðar fyrir refaskinn. Verð til framleiðanda er óvenju lágt þessa dagana vegna lágs gengis dollara.

Fékk nætursjónauka að gjöf

Slysavarnafélagið Landsbjörg fékk í gær afhenta nætursjónauka að gjöf frá tryggingafélaginu Sjóvá-Almennum. Nætursjónaukinn mun fara í björgunarskip félagsins til að auðvelda áhöfnum þeirra leit og björgun að nóttu til.

Ferðum Herjólfs fjölgi

Forsvarsmenn útvegsbænda og fiskvinnslufyrirtækja í Vestmannaeyjum funduðu með Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra og Hjálmari Árnasyni alþingismanni til að ræða samgöngumál Eyjamanna.

500 handsprengjum eytt

Sprengjudeild Landhelgisgæslunnar eyddu 500 handsprengjum fyrir Varnarliðið á þriðjudag. Handsprengjurnar höfðu skemmst í geymslum Varnarliðsins og var því tekið til þess ráðs að eyða þeim með tveimur sprengingum.

Hinn grunaði yfirheyrður

Lögreglan yfirheyrði í dag manninn sem er grunaður um að hafa valdið dauða Ragnars Björnssonar í Mosfellsbæ um helgina. Búið er að yfirheyra öll vitni í málinu og telur lögregla sig hafa heildstæða mynd af atburðarrásinni.

Ekki tillit til jöfnunarsjóðs

Við breytingar lögum um tekjuskatt og eignarskatt var ekki tekið tillit til umsagnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þar kom fram að sé tekið mið á þeim forsendum sem frumvarpið byggði á má gera ráð fyrir að árlegar tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga skerðist varanlega um 400 milljónir króna eftir árið 2007. 

Sykurleðjuna úr sjónvarpinu

Nokkrir þingmenn Samfylkingarinnar vilja takmarka auglýsingar á óhollum mat þar sem að offitu barna megi að hluta rekja til þeirra. Auglýsendur benda á að skilin á milli holls og óholls matar séu afar óljós.

7 enn í haldi

Mannræningjar halda enn sjö gíslum í rútu í Aþenu en hafa sleppt sextán. Þeir krefjast einnar milljónar evra í lausnargjald fyrir klukkan sex í nótt og að fá að komast með flugi til Rússlands.

Fischer fær dvalarleyfi

Stjórnvöld hafa ákveðið að veita Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistara í skák, dvalarleyfi hér á landi en hann hefur verið í gæsluvarðhaldi í Japan svo mánuðum skiptir. Bandarísk yfirvöld hafa óskað eftir því að fá Fischer framseldan til Bandaríkjanna.

15% hverfa frá háskólanámi

Nær fimmtán prósent nemenda á háskólastigi hættu eða gerðu hlé á námi sínu milli haustanna 2002 og 2003. Brottfall er meira meðal karla en kvenna.

Tónlistarkennarar í Karphúsinu

Tónlistarkennarar og sveitarfélögin sátu sinn sautjánda fund með ríkissáttasemjara í gær. Stefnt er að því að ná samningum fyrir jól.

Skriður á sölu Landsvirkjunar

Viðræður um sölu hluta Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun til ríkisins halda áfram. Fundað var með iðnaðarráðherra, Valgerði Sverrisdóttur, á þriðjudag.

Stjórnsýslukæru vísað frá

Stjórnsýslukæru sem barst landbúnaðarráðuneytinu vegna niðurskurðar búfjár í Biskupstungum hefur verið vísað frá þar sem kærandi eigi ekki aðild að málinu.

Selur á 160 milljónir og leigir

Reykjavíkurborg hefur selt fyrirtækinu Stoðum sýningarskála í kjallara hótels við Aðalgötu sem fyrirtækið byggir fyrir 160 milljónir króna. Borgin leigir kjallarann fyrir tæplega 1,7 milljónir króna á mánuði næstu 25 árin.

Hægt að sérsníða forvarnarráð

Greina má niðurstöður í rannsókn um vímuefnaneyslu skólanema í Evrópu eftir skólum. Sjá rannsakendur það sem gott tækifæri til að bregðast við vandamálum á réttan hátt í hverju bæjarfélagi.

Fá nú greiðslu fyrir egg

Konur, sem vilja aðstoða barnlaus pör, geta selt egg úr sér og fengið greiðslu fyrir. Skortur er á eggjum, en árlega þurfa allt að fjörutíu konur hér á landi á eggjagjöf að halda. Tæknifrjóvgunarstofan Art Medica hefur ákveðið að óska eftir eggjum og koma upp lista með eggjagjöfum.

18 milljónir fyrir teikningar

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir mikil verðmæti fólgin í teikningum Sigmunds, sem birst hafa í Morgunblaðinu undanfarin fjörutíu ár. Halldór og Sigmund undirrituðu í dag samning um kaup ríkisins á öllum teikningum listamannsins fyrir átján milljónir króna.

Útiloka ekki málshöfðun

Öryrkjabandalagið útilokar ekki að höfðað verði mál fyrir hönd einhverra einstaklinga sem Tryggingastofnun hefur krafið um endurgreiðslu vegna bótagreiðslna í fyrra. Arnþór Helgason, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands, segir að Tryggingastofnun ríkisins hafi gert alvarleg mistök.

Hækkunin meiri en ráðherra segir

Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur segir hækkun raforkuverðs vegna nýrra raforkulaga meiri en iðnaðaráðherra geri ráð fyrir. Valgerður Sverrisdóttir segir útreikninga Orkustofnunar sýna að Orkuveitan þurfi ekki að hækka verðið nema um eitt prósent.

Margir þjásta af kvíða um jólin

Atvinnumissir, hjónaskilnaður og fjárhagsvandi getur valdið miklum kvíða hjá fólki, ekki síst nú fyrir hátíðarnar. Samtök gegn kvíða ætla að halda sérstakan fund fyrir jólin til að fólk finni til samkenndar og geti rætt allt sem því liggur á hjarta.

Bretar loka sendiráðum

Bretar hafa ákveðið að loka nítján sendinefndum sínum erlendis, þeirra á meðal níu sendiráðum. Með þessu hyggjast þeir spara sér andvirði rúmra tólf milljarða króna sem verða notaðar til að berjast gegn hryðjuverkum og útbreiðslu kjarnorkuvopna auk þess að vinna að orku- og umhverfismálum.

Fischer fær dvalarleyfi

"Stórkostlega ánægður," segir Sæmundur Pálsson, vinur Bobby Fischer, um að skáksnillingurinn fær dvalarleyfi hér. Bandaríski sendiherrann ræddi við íslensk stjórnvöld um málefni Bobby Fischer í gær. Enn á eftir að ákveða hvort Fischer fær almennt dvalarleyfi eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna. </font /></b />

Kálfaskortur í nautastöð

Framboð á nautkálfum til Nautastöðvar BÍ í Þorleifskoti hefur síðustu mánuði verið með minna móti en undanfarin ár, að því er fram kemur á vef Landssambands kúabænda.

Næstmesta eiturmagn sögunnar

Vísindamenn hafa aðeins einu sinni fundið dæmi þess að meira magn díoxíns hafi fundist í líkama manns en í tilfelli Viktors Júsjenkó, forsetaframbjóðanda og leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Úkraínu. Eiturefnamagnið í líkama Júsjenkós er 6.000 sinnum meira en eðlilegt getur talist.

Hótaði að sprengja allt í loft upp

Gíslatökumaður hótaði í gærkvöld að sprengja rútu með sex gíslum innanborðs í loft upp ef yfirvöld yrðu ekki við kröfu hans um andvirði 85 milljóna króna í lausnargjald og tryggingu fyrir því að flogið yrði með hann og félaga til Rússlands. Þá höfðu þeir sleppt sautján af 23 farþegum sem þeir hnepptu í gíslingu fyrr um daginn.

Fjarlægðin ver okkur fuglaflensu

Ólíklegt er talið að fuglaflensa geti borist hingað með farfuglum. Aðrir sjúkdómar sem berast með dýrum færast þó nær eftir því sem loftslag breytist og nýjar tegundir stinga sér niður hér. Nefndir eru bæði sniglar og blóðmaurar.

Slátrarar í verkfall

Fjögur þúsund starfsmenn dönsku sláturhúsakeðjunnar Danish Crown hófu verkfall í gær til að mótmæla því að 300 starfsmenn í einni framleiðsludeild fyrirtækisins voru lækkaðir í launum um fimmtán prósent.

Fyrrum KGB-maður í hungurverkfall

Fyrrum KGB-foringi, Victor Makarov, sem varði fimm árum í sovéskum fangabúðum á níunda áratug síðustu aldar eftir að upp komst að hann hafði njósnað fyrir Breta, hóf í gær hungurverkfall nærri aðsetri Tonys Blair, forsætisráðherra Bretlands.

Svíar hafna evrunni

Mun fleiri Svíar eru andvígir því að taka upp evruna en hlynntir því, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Samkvæmt henni myndu 49 prósent Svía greiða atkvæði gegn upptöku evrunnar ef kosið yrði í dag en 37 prósent myndu segja já við því að taka evruna upp í stað sænsku krónunnar.

Blunkett segir af sér

David Blunkett, innanríkisráðherra Bretlands, sagði í gær af sér embætti vegna ásakana um að hann hafi beitt sér óeðlilega til að tryggja barnfóstru þáverandi ástkonu sinnar dvalarleyfi á mun skemmri tíma en tekur venjulega að ganga frá slíkum leyfum.

Gæsluvarðhald framlengt

Héraðsdómur Reykjaness framlengdi í gær gæsluvarðhald yfir Magnúsi Einarssyni um tvo mánuði, til 15. febrúar.

Áhersla á jarðhita

"Í máli mínu hér mun ég mun fyrst og fremst leggja áherslu á hvað við erum að gera varðandi jarðhitamál og vetni, auk ýmislegs annars," sagði Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra sem nú situr ráðherrafund tíunda aðildarríkjaþings Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna.

Jórturdýrafita gegn offitu

Vísbendingar eru um að fitusýra í fitu jórturdýra geti veitt vörn gegn offitu, krabbameinum og hjartasjúkdómum, að því er segir í nýjasta tölublaði Bændablaðsins.

Sjá næstu 50 fréttir