Fleiri fréttir

Rykið dustað af friðarferlinu

Vonir eru bundnar við það að friðarviðræður fari aftur af stað nú þegar Jasser Arafat er fallinn frá. Palestínumenn hafa 59 daga til að kjósa sér arftaka.

ÓB með lægsta verðið

Orkan bauð í gær lægsta verðið á 95 oktana bensíni. Lítrinn kostaði 102,6 krónur við Eiðistorg en athygli vekur að stöðin býður sama verð í Njarðvík og á Súðavík en þar opnaði Orkan nýja stöð fyrir skömmu.

492 spilakassar í Reykjavík

Alls eru 492 spilakassar í Reykjavík að því er fram kemur í svari borgaryfirvalda við fyrirspurn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, segist telja að þúsundir spilafíkla séu í borginni og ástandið sé mjög alvarlegt.

Vilja fá dómi hnekkt

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hyggst freista þess að fá hnekkt fyrir Hæstarétti þeim dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem heimilar fimm manna fjölskyldu að eiga lögheimili í sumarbústað. Oddvitinn segir slíkt ekki ganga upp við núverandi aðstæður.

Garðabær braut stjórnsýslulög

Garðabær braut stjórnsýslulög með því að ganga ekki frá fráveitukerfinu við iðnaðahverfið í Molduhrauni á viðunandi hátt.

Tæknimál yfir kjúklingum

Félagar í Skýrslutæknifélaginu koma saman til hádegisverðarfundar á Grand hóteli í dag og spjalla um tungutak í tæknigeiranum. Er það í tilefni af degi íslenskrar tungu sem er á morgun. Erindi verða flutt og meðal annars kynntur staðallinn ÍST 130:2004 Upplýsingatækni - Íslenskar kröfur.

Verkfall kennara bannað með lögum

Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra lagði í gær fram frumvarp á Alþingi sem gerir ráð fyrir því að nærri 7 vikna löngu verkfalli kennara verði bannað þannig að kennsla í grunnskólum geti hafist á mánudag. Alþingi lögfestir frumvarpið væntanlega í dag.

Láta eigið fé duga til framfærslu

Fimmtán hundruð manns sem náð hafa 67 ára aldri hafa aldrei sótt um ellilífeyri til Tryggingastofnunar ríkisins. Í þeim hópi eru tveir sem verða aldargamlir á árinu. Ástæður þessa eru helst þær að viðkomandi eigi nóg til hnífs og skeiðar en ellilífeyrir er tekjutengdur og skerðist þegar fólk hefur 143 þúsund krónur í atvinnutekjur á mánuði og/eða fjármagnstekjur upp á 286 þúsund.

Jarðsettur í skugga óvissu

Leiðtogi Palestínumanna var jarðsettur í skugga sorgar og átaka í dag. Enginn veit hvað varð Jassir Arafat að aldurtila, og þó að hann hafi verið grafinn hefur hann ekki enn verið lagður til hinstu hvílu.

Katri hin finnska slær í gegn

Katri Raakel Tauriainen hefur breytt mörgum heimilum í Innlit/Útlit á Skjá einum. Hún er sögð fyrsti útlendingurinn sem slær í gegn í íslenskum sjónvarpsþætti. </font /></b />

Krefst um eins árs fangelsis

Saksóknari krafðist þess að tuttugu og eins árs maður, sem framdi vopnað bankarán í útibúi Búnaðarbanka Íslands á Vesturgötu í Reykjavík 17. nóvember fyrir ári síðan, fengi í kringum tólf mánaða fangelsisdóm. Aðalmeðferð málsins lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Krefst refsingar

Aðalmeðferð var í máli gegn Jóni Ragnarssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra og stjórnarformanni Lykilhótela, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Jón var ákærður af ríkislögreglustjóra fyrir umboðssvik um 37 milljón króna lán í nafni Lykilhótela.

Áfram í varðhaldi

Gæsluvarðhald hefur verið framlengt um tvær vikur yfir manni sem handtekinn var í lok október vegna rannsóknar á einu stærsta fíkniefnamáli síðari ára. Maðurinn var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald í lok október.

Málið sent saksóknara

Lögreglurannsókn á líkamsárás í Öxnadal aðfaranótt fimmta ágúst er lokið og verður málið sent ríkissaksóknara eftir helgi. Sá grunaði er talinn hafa barið annan mann með hafnaboltakylfu í höfuðið þannig að hann slasaðist alvarlega.

Ekki ráðskast með Olíudreifingu

Forsvarsmenn Olíufélagsins settu það skilyrði fyrir samvinnu við Samkeppnisstofnun, að ekkert yrði ráðskast með Olíudreifingu. Þetta kom fram við yfirheyrslur Ríkislögreglustjórans yfir stjórnarformanni Olíufélagsins.

Fordómar aukast hér á landi

Fordómar í garð útlendinga fara vaxandi hér á landi samkvæmt nýrri könnun. Svo virðist sem fordómarnir aukist eftir því sem útlendingum fjölgar. Alþjóðahús kynnti nýja könnun sem Gallup gerði um afstöðu Íslendinga til útlendinga. Um póstkönnun nvar að ræða, endanlegt úrtak var tæplega 2600 manns og fjöldi svarenda tæplega 1100 eða 66%.

Mikil óánægja með frumvarpið

Talsmenn kennara og sveitarfélaga virðast jafnóánægðir með frumvarp ríkisstjórnarinnar. Birgir Björn Sigurjónsson, formaður samninganefndar sveitarfélaga, telur frumvarpið hins vegar auka líkur á að samningar takist á næstu vikum. Hann segir ljóst að sveitarfélögin vildu ekki afskipti ríkisins af deilunni og heldur ekki að henni yrði vísað í gerðardóm.

Enn umfangsmeira en ráðgert var

Orkuveita Reykjavíkur, en ekki Landsvirkjun, fær raforkussamning vegna enn frekari stækkunar Norðuráls, samkvæmt viljayfirlýsingu sem undirrituð verður í næstu viku. Stóriðjuframkvæmdir á Suðvesturhorni landsins verða umfangsmeiri en áður var ráðgert, samkvæmt henni.

Fullt samráð verður haft

Nýr yfirmaður Varnarliðsins segir að allar breytingar á starfseminni á Keflavíkurflugvelli verði gerðar í samráði við íslensk yfirvöld. Samdráttur í starfsemi varnarliðsins hér á landi tengist breytingum á skipan Bandaríkjaflota í Evrópu og er einnig í takti við minnkandi umsvif á Keflavíkurflugvelli.

Gríðarlegar loftslagsbreytingar

Norðurheimsskautsísinn bráðnar hratt með ógnvænlegum afleiðingum fyrir íbúa norðurhvels jarðar. Hitastig á þessum slóðum hefur hækkað tvisvar sinnum meira en annars staðar og er meginástæðan mengun af mannavöldum. Grípa verður til aðgerða þegar í stað, eigi það ekki að verða um seinan.

Sautján létust í jarðskjálftum

Sautján létust og á annað hundrað slösuðust þegar hrina öflugra jarðskjálfta reið yfir Aloreyju, austarlega í Indónesíu, og höfðu sjúkrahús vart undan við að gera að sárum fólks. Hundruð heimila eyðilögðust þegar skjálftarnir riðu yfir, en styrkleiki öflugasta skjálftans mældist 7,3 á Richterkvarða.

Tyrkir vilja miðla málum

"Tyrkland er reiðubúið, hvenær sem er, að miðla málum í friðarferlinu og mun halda áfram að vinna að þessum málum," sagði Recep Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, þegar hann bauð fram hjálp sína og lands síns við að koma á friði milli Ísraela og Palestínumanna.

Handtóku 29 í áhlaupi

Hollenskir lögreglumenn handtóku 29 manns þegar þeir gerðu áhlaup á þjálfunarbúðir Kúrdíska verkamannaflokksins sem er útlægur í Tyrklandi vegna vopnaðrar baráttu hans gegn stjórnvöldum.

200 milljarða framúrkeyrsla

Kostnaður við Ólympíuleikana í Aþenu fer minnst 200 milljarða króna fram úr kostnaðaráætlun og verður að lágmarki um 800 milljarðar króna, þriðjungi meira en stefnt var að. Í þessum tölum er þó ekki talinn með kostnaður vegna umfangsmikilla samgönguframkvæmda þar sem voru meðal annars byggð ný lestakerfi.

Stærstur hluti Falluja hertekinn

Bandarískar og íraskar hersveitir hafa náð 80 prósentum Falluja á sitt vald, að sögn yfirmanna Bandaríkjahers. Enn er þó barist hús úr húsi á þeim svæðum sem hermenn hafa náð á sitt vald. Þar er verið að leita uppi og fella þá vígamenn sem hafa falið sig þegar fremstu hersveitirnar hafa sótt fram.

Haldið föngnum vegna brota annarra

"Við viljum ekki vera gíslar," stóð á borða sem skipverjar á víetnömsku skipi breiddu yfir borðstokkinn. Þeim hefur verið haldið nauðugum í höfn í Tansaníu í fjóra mánuði vegna deilna sem þeir og fyrirtækið sem þeir vinna hjá eiga engan þátt í.

Vill sjá Berlusconi í fangelsi

Ítalskur saksóknari krafðist átta ára fangelsisdóms yfir Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, og vildi að honum yrði bannað ævilangt að sækjast eftir opinberu embætti. Kröfuna setti Ilda Boccassini fram þegar réttað var í máli þar sem Berlusconi er ásakaður um að hafa mútað dómurum.

Fleiri farsímanúmer en fólk

Farsímanotkun í Tékklandi er svo útbreidd að í þarlendum símaskrám er að finna fleiri farsímanúmer en landsmenn í þjóðskránni. Fyrirtækin þrjú sem bjóða farsímaþjónustu eru nú með 10,24 milljónir farsímanúmer á skrá en landsmenn eru 10,21 milljón eða 30 þúsund færri en farsímanúmerin sem eru í notkun.

Þúsundir fylgdu Arafat til grafar

Mikið öngþveiti myndaðist í Ramallah þegar Jasser Arafat var borinn til grafar. Einungis ættingjar og framámenn áttu að vera viðstaddir greftrun hans við höfuðstöðvar sínar en meira en tíu þúsund manns brutu sér leið þangað inn til að votta fyrrum forseta sínum virðingu og kveðja hann í hinsta sinn.

Einstakt tækifæri

"Ég held að það sé sanngjarnt að segja að við eigum góða möguleika á að stofna palestínskt ríki og ég ætla að nota næstu fjögur árin til að eyða pólitískri inneign Bandaríkjanna í slíkt ríki. Ég tel það í þágu heimsins að sannarlega frjálst ríki þróist í Palestínu," sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti.

Vilja ekki aðra ólympíuleika

Norsk stjórnvöld neituðu í gær að styðja umsókn borgaryfirvalda í Tromsö um að fá að halda ólympíuleikana í vetraríþróttum árið 2014. Ráðherrar sögðu of dýrt að halda ólympíuleikana og að of stutt væri frá því að vetrarólympíuleikarnir voru haldnir í Lillehammer 1994 til að verjandi væri að ráðast í slíkt stórvirki.

Kennarar æfir

Megn óánægja er í röðum grunnskólakennara með frumvarp ríkisstjórnarinnar um að binda enda á verkfallið. Samninganefndir hafa mánuð til að semja, ella verður gerðardómi falið að ákveða launin. Formaður Kennarasambandsins segir að þetta sé svartur dagur og að menntamálaráðherra sé rúinn öllu trausti.

Andstaðan ósátt

Stjórnarandstaðan segir að ríkisstjórnin beri mikla ábyrgð á þeim ógöngum sem deila kennara og sveitarfélaga sé komin í. Lagafrumvarpið sem bannar verkfall kennara var rætt í rúmlega fimm klukkustundir á Alþingi í dag.

Þarf að setja lög

Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi segir að það sé ekki í verkahring Ríkisendurskoðunar að gera athugun á fjármálum flokkanna eða styrkjum til þeirra.

Á skrifborðsæfingu um hryðjuverk

Þrír fulltrúar Víkingasveitarinnar fylgdust með æfingu norrænna lögregluyfirvalda nýlega þar sem verið var að æfa og samhæfa viðbrögð og samstarf við árás hryðjuverkamanna á farþegaskip á siglingu milli landanna þar sem gert var ráð fyrir að hryðjuverkamennirnir væru með sprengju um borð.

Launanefndin neitar samráði

Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, formaður launanefndar sveitarfélaganna, harmar lagasetningu á verkfall Kennarasambands Íslands.

Kallar ekki á endurskoðun

Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, telur koma til greina að Ríkisendurskoðun skoði styrki til stjórnmálaflokka sem fá framlög á fjárlögum en hyggst þó ekki beita sér fyrir því.

Óánægja með dragnótina

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur samþykkt að fara þess á leit við sjávarútvegsráðuneytið að veiðar dragnótabáta yfir 15 metra stærð verði bannaðar í Norðfjarðarflóa, Norðfirði, Hellisfirði, Viðfirði, Sandvík, Vöðlavík, Reyðarfirði og Eskifirði.

Stóraukinn nautakjötsinnflutningur

Nautakjöt er flutt inn til landsins í mun meiri mæli en í fyrra, segir Landssamband kúabænda eftir að hafa kannað gögn frá Hagstofu Íslands.

Breytingar ekki fyrirhugaðar

Robert S. McCormick ofursti tók í gær við stöðu yfirmanns Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli af Noel G. Preston flotaforingja. Við athöfnina voru fluttar ræður en í þeim voru ekki boðaðar breytingar á starfsemi Varnarliðsins.

Auknir fordómar í garð útlendinga

Á fimm árum hafa viðhorf fólks breyst á þá leið að færri vilja hleypa fleira flóttafólki inn í landið og fleiri eru andsnúnari því að fólk sem hingað flytur haldi siðum sínum og venjum. Um leið telja þó fleiri að landinn hafi gott af erlendum áhrifum. </font /></b />

Sjá næstu 50 fréttir