Jarðsettur í skugga óvissu 12. nóvember 2004 00:01
Leiðtogi Palestínumanna var jarðsettur í skugga sorgar og átaka í dag. Enginn veit hvað varð Jassir Arafat að aldurtila, og þó að hann hafi verið grafinn hefur hann ekki enn verið lagður til hinstu hvílu. Útför Arafats fór fram í Kæró í morgun og voru tugir þjóðarleiðtoga viðstaddir hana. Almenningi var þó haldið fjarri. Að útförinni lokinni var flogið með kistu Arafats til Vesturbakkans, þar sem öryggisverðir urðu að skjóta upp í loft til að bægja mannfjöldanum frá kistunni. Hafsjór syrgjenda réðst að líkburðarmönnunum en að lokum tókst þó að flytja leiðtogann til höfuðstöðva sinna í Ramalla, þar sem hann var jarðsettur í steinkistu í flýti. Upphaflega átti hann að liggja á viðhafnarbörum svo að syrgjendur gætu vottað honum virðingu sína, en í ljósi múgæsingarinnar var snarlega hætt við það. Tugir þúsunda klifruðu yfir veggi og vegtálma í kringum greftrunarstaðinn og ljóst er að pílagrímar munu heimsækja hann á næstunni. Palestínskir embættismenn sögðust í viðtölum við fjölmiðla vera mjög hissa á viðbrögðum almennings. Uppgjör ævi Arafats er hafið, og ýmis atriði koma upp á yfirboðið sem fáir vissu um, til að mynda að Arafat var með efnuðustu leiðtogum heims og var í sjötta sæti tímaritsins Forbes yfir ríkustu konunga, drottningar og einræðisherra. Þar var talið að hann ætti allt að þrjúhundruð milljónir dollara á leynilegum bankareikningum. Suha Arafat, ekkja Arafats, fékk í sumar tæplega ellefu milljónir dollara í greiðslu frá honum og sögusagnir eru um háar fjárhæðir á leynireikningum víða um lönd. Ráðgjafar og samstarfsmenn Arafats vísa þessu þó á bug og segja hann ekki hafa verið efnaðann, en hann var þekktur fyrir fábrotinn lífsstíl.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fleiri fréttir Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Sjá meira