Fleiri
Bensín hækkar Bensínverð hækkaði í gær. 12.10.2004 00:01 Undarleg ósamstaða andstöðunnar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Menntamálaráðherra, segist hafa ákveðið að fjölga fulltrúum í fjölmiðlanefnd vegna þeirrar óánægju sem fram hafi komið hjá stjórnarandstöðunni vegna málsins. Hún segir að aldrei hafi komið til greina að fara af stað með nefnd sem væri ósætti um frá upphafi og því hafi verið sjálfsagt að bregðast við beiðni stjórnarandstöðunnar 12.10.2004 00:01 Nýr Ormur á MSN Ormur sem dreifir sér um MSN Messenger skyndiskilaboðaþjónustuna er kominn á kreik og reynir að koma notendum í samband við asískar klámsíður. Ormurinn kallast "Funner" 12.10.2004 00:01 Vilja takmarkað botnvörpubann Vernda þarf viðkvæm svæði á hafsbotni til að koma í veg fyrir tjón á lífríki nytjafiska í kringum landið. Þetta kemur fram í þingsályktunartillögu Vinstri grænna, sem lögð er fram í þriðja sinn á þingi nú í haust. Í tillögunni segir að stöðugt fjölgi vísbendingum um tjón á lífríki hafsbotnsins við hömlulitla notkun botnveiðarfæra. 12.10.2004 00:01 Lögbann á sjómenn Lögbann hefur verið sett á aðgerðir sjómannasamtaka og verkalýðsfélaga við löndun úr togaranum Sólbaki frá Akureyri. Útgerðarfélag skipsins fór fram á bannið hjá sýslumanninum á Akureyri í gær. 12.10.2004 00:01 Bandaríkjamenn sigra í tölvumóti Bandaríkjamenn fóru með sigur af hólmi á fjórða heimsmeistaramótinu í tölvuleikjum, World Cyber Games, sem haldið var í San Francisco um helgina. Keppt var í "Counter Strike" og Team 3-D frá Bandaríkjunum vann úrslitaviðureignina við liðið Titans frá Danmörku. Verðlaunaféð nam 50 þúsund dölum. 12.10.2004 00:01 25 milljónir í ferðastyrk Landsbanki Íslands mun styrkja Sinfóníuhljómsveit Íslands um 25 milljónir króna til utanferða. Í samkomulagi bankans og hljómsveitarinnar segir að í ferðum hljómsveitarinnar skuli faglegur metnaður og kynning íslenskrar tónlistar vera í fyrirrúmi. 12.10.2004 00:01 Ísland frjálsast og ríkast Íslendingar eru frjálsasta og ríkasta fólk í heimi, af því þeir skilja að smátt er fagurt og hafa staðið fyrir utan Evrópusambandið, segir breski Evrópuþingmaðurinn Daniel Hannan. Daniel Hannan er fyrrverandi ráðgjafi Michaels Howard, leiðtoga breska íhaldsflokksins, og einn leiðarahöfunda stórblaðsins Daily Telegraph. 12.10.2004 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Rússarnir komnir aftur Algjör óvissa ríkir enn um hversu lengi rússnesku herskipin verða hér við land. Skipstjórar þeirra gefa misvísandi upplýsingar og þau skip sem farin voru eru komin aftur. Rússneskir blaðamenn vita ekkert um æfinguna við Íslandsstrendur en jafnan er fjallað ítarlega um æfingar hersins í rússneskum fjölmiðlum. 13.10.2004 00:01
Afturför á íslenskum vinnumarkaði Nýr formaður Starfsgreinasambands Íslands verður kosinn á ársfundi þess á morgun. Halldór Björnsson, fráfarandi formaður, segir að átökin um Sólbak og uppsagnir flugliða hjá Iceland Express séu dæmi um áratuga afturför á íslenskum vinnumarkaði. 13.10.2004 00:01
Eiríkur gáttaður á sveitarfélögum "Ég á ekki til orð um hvað þeim er alveg sama um skólann," segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, sem er hneykslaður á framgöngu sveitarstjórnarmanna í kjaradeilu kennara. "Maður er farinn að trúa því sem maður hefur neitað hingað til, að þeir líti á þetta sem góða leið til að spara peninga." 13.10.2004 00:01
Hækkuðu boð sitt verulega Samningarnefnd sveitarfélaga setti fram hugmyndir að lausn kjaradeilu kennara í síðustu viku sem gerðu ráð fyrir talsvert meiri kostnaðaraukningu fyrir sveitarfélögin en sem nam tilboði þeirra þegar verkfallið hófst, segir Birgir Björn Sigurjónsson, formaður samninganefndar sveitarfélaga. 13.10.2004 00:01
Líklega ekki senditæki Bungan sem sást á bakinu á George Bush Bandaríkjaforseta í kappræðum á dögunum er að líkindum tilkomin vegna lélegs saumaskapar að mati skraddara á Skólavörðustíg. Þeir sem þekkja til hlustunarbúnaðar telja afar ólíklegt að bungan sé senditæki. 13.10.2004 00:01
Samþykktu eina undanþágubeiðni Einungis ein undanþágubeiðni var samþykkt á fundi undanþágunefndar kennara og sveitarfélaga í gær. Nítján beiðnum var hins vegar hafnað án umfjöllunar og einni beiðni, sem var frestað á fundi nefndarinnar 1. október, var frestað áfram. 13.10.2004 00:01
Heimasíða með nöfnum dópsala Maður í Breiðholti hefur sett upp heimasíðu þar sem hann nafngreinir tuttugu og fimm menn og heldur því fram að þeir séu viðriðnir eiturlyfjasölu. Maðurinn sem stendur á bak við síðuna segir handrukkara hafa rænt syni hans og upp úr því hafi hann farið að safna sér upplýsinga um eiturlyfjasala. 13.10.2004 00:01
Hætta matardreifingu vegna árása Aukin hætta á árásum í Darfur hafa leitt til þess að Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur neyðst til þess að fella niður matvæladreifingu í nokkrum hlutum Darfur-héraðs í Súdan. 13.10.2004 00:01
Takmarka fjölda pílagríma Ísraelar ætla að takmarka fjölda þeirra múslima sem fá að biðjast fyrir í helgireitnum Haram a-Sharif í Jerúsalem meðan á Ramadan, helgum mánuði múslima, stendur. Einungis 60 þúsund múslimar fá að heimsækja reitinn en venjulega skipta þeir hundruðum þúsunda. 13.10.2004 00:01
Sjöundi maðurinn í gæsluvarðhald Karlmaður sem var handtekinn í Reykjavík í fyrradag vegna rannsóknar á smygli mikils magns fíkniefna með Dettifossi var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 25. október næstkomandi. Hann er sjöundi maðurinn sem er handtekinn og dæmdur í gæsluvarðhald vegna málsins. Tveimur þeirra hefur verið sleppt. 13.10.2004 00:01
Álitshnekkir fyrir Hæstarétt Kjartan Ásmundsson segir það sorglegt að menn þurfi að fara út fyrir landsteinana til að leita réttar síns gagnvart íslenskum stjórnvöldum. Mannréttindadómstóll Evrópu dæmdi íslenska ríkið til að greiða honum bætur í gær eftir að Héraðsdómur og Hæstiréttur höfðu dæmt Kjartani í óhag. Kjartan segir dóm Mannréttindadómstólsins álitshnekki fyrir Hæstarétt. 13.10.2004 00:01
Grófu um 300 manns í fjöldagröf Talið er að um 300 lík kúrdískra karla, kvenna og barna sé að finna í fjöldagröf sem fannst í norðurhluta Íraks. Fórnarlömbin eru talin vera fólk sem myrt var þegar Saddam Hussein, fyrrum einræðisherra Íraks, fyrirskipaði herferð gegn Kúrdum á árunum 1987 og 1988. 13.10.2004 00:01
Bandaríkjamenn fá flest verðlaun Enn einu sinni voru Bandaríkjamenn fjölmennastir í hópi þeirra sem hlutu Nóbelsverðlaun í vísindagreinum. Evrópa hefur dregist langt aftur úr en leitar leiða til að vinna upp forskot Bandaríkjamanna. </font /></b /> 13.10.2004 00:01
Tugir létust í bílslysum Á annað hundrað manns létust eða slösuðust í umferðarslysum á Spáni frá síðasta föstudegi og fram að miðnætti aðfaranætur miðvikudags. Helgin er ein af mestu ferðahelgum ársins en á þriðjudag minntust Spánverjar þess að Kristófer Kólumbus fann Ameríku og héldu hátíðlegan dag jómfrúarinnar af Pilar. 13.10.2004 00:01
Alltof fáir hjúkrunarfræðingar Barnaspítali í Dublin er svo illa haldinn af skorti á hjúkrunarfræðingum að hann hefur tvívegis þurft að fresta hjartaaðgerðum á börnum síðustu daga. Spítalinn sætir rannsókn yfirvalda vegna láts tveggja ára stúlku í júní í fyrra. Hún lést degi eftir að hjartaaðgerð sem hún átti að gangast undir var frestað. 13.10.2004 00:01
Hafnfirðingar vilja nýja sundhöll Hafnfirðingar kölluðu á íbúaþingi sem haldið var síðasta laugardag eftir úrbætum vegna langra biðlista í tónlistarnámi. Einnig var kallað eftir nýrri sundhöll og bættri aðstöðu til iðkunar vetraríþrótta. 13.10.2004 00:01
Vökufólk afgreiði ekki Sólbak Stjórn Verkalýðsfélagsins Vöku beinir þeim tilmælum til félagsmanna sinna að afgreiða ekki Sólbak EA-7 komi skipið til hafnar á Siglufirði. 13.10.2004 00:01
Fordæmir vinnubrögð Brims "Reynt er að brjóta samstöðu sjómanna á bak aftur með stuðningi yfirvalda og lögreglunni sigað á verkfallsmenn, sem lýsir best útgerðarauðvaldi sem svífst einskis í samskiptum við launafólk," segir í yfirlýsingu Eflingar-stéttarfélags um vinnubrögð Útgerðarfélagsins Brims hf. í samskiptum við sjómenn. 13.10.2004 00:01
Ósáttur við hærri gjöld Ágúst Einarsson, prófessor við viðskiptafræðiskor Háskóla Íslands, gagnrýnir harðlega fyrirætlanir þær sem fram koma í fjárlagafrumvarpi næsta árs um að skrásetningargjöld við háskólann hækki í 45 þúsund krónur. Gjöldin eru nú 32.500 krónur. 13.10.2004 00:01
Ómetanleg landkynning Kynning á landi og þjóð á borð við þá sem nýverið fór fram í Frakklandi þar sem ísjaki úr Jökulsárlóni var fluttur til Parísar styrkir ímynd landsins og er ómetanleg fyrir markaðssetningu ferðaþjónustunnar, segir í ályktun Samtaka ferðaþjónustunnar. 13.10.2004 00:01
Sjávarhiti mildar norðanáttina Þjóðtrú segir að vetur verði mildur ef rignir þrisvar fyrir jól. Hlýrri sjór fyrir norðan land hitar vindinn þannig að fremur rignir en snjóar. Miklar sveiflur í hita sjávar valda loftslagsbreytingum á norðurhveli sem jafnast á við gróðurhúsaáhrif. 13.10.2004 00:01
Veikir skulu á sjóinn Í nýjum ráðningarsamningi sem útgerðarfélagið Þorbjörn-Fiskanes á Suðurnesjum hefur boðið sjómönnum er ákvæði um að "ekkert mæli á móti því" að veikur maður haldi út á sjó með skipi sínu ef ljóst má vera að hann verði orðinn vinnufær innan örfárra daga. 13.10.2004 00:01
Vilja landið af viljuga listanum Þjóðarhreyfingin - með lýðræði segir Alþingi hafa verið sýnd óvirðing með ákvörðun forsætis- og utanríkisráðherra um að setja Ísland á lista stuðningsþjóða innrásarinnar í Írak án þess að ákvörðunin væri borin undir utanríkismálanefnd Alþingis. 13.10.2004 00:01
Hafnargerð hófst í sumar Næstu tvö ár vinnur hafnasjóður Fjarðarbyggðar við gerð álvershafnar við Hraun í Reyðarfirði. "Bryggjan verður 380 metra löng með 14,3 metra dýpi, en það er mesta dýpi sem þekkist við bryggju hér á landi," segir í tilkynningu bæjarfélagsins. 13.10.2004 00:01
Meintir dópsalar taldir upp <strong><a href="http://dopsalar.blogspot.com">Vefsíða</a></strong> með lista yfir nöfn meintra eiturlyfjasala hefur verið sett upp á netinu. Fyrir síðunni stendur Björn Sigurðsson og lýsir hann þar ástæðum þess að hún var sett upp. 13.10.2004 00:01
Teflt á tæpasta vað Formaður samninganefndar sveitarfélaga segir teflt á tæpasta vað með tilboði í kennaradeilunni þar sem gengið sé lengra en í nokkrum öðrum samningum. Hann sakar kennara um óbilgirni í kjaraviðræðunum. Formaður Félags grunnskólakennara vísar því á bug. Næsti samningafundur í deilunni er ekki fyrr en á mánudaginn kemur. 13.10.2004 00:01
Bush og Kerry hrósa Reeve Forsetaframbjóðendurnir George Bush og John Kerry fara báðir fögrum orðum um leikarann Christopher Reeve, sem lést í gær. Bush sagði í gær að ofurmaðurinn fyrrverandi hefði verið tákngervingur hugrekkis, jákvæðni og ákveðni og það væri ekki að ástæðulausu að hann hefði verið fyrirmynd milljóna manna. 12.10.2004 00:01
Loks endurskoðun á menntasamningi Vonir standa til að stöðugleiki sé að komast á í menntamálum geðsjúkra. 12.10.2004 00:01
Vinnuslys í Árbænum Lögregla og sjúkralið var kallað út upp úr klukkan eitt vegna vinnuslyss í Árbænum. Vinnueftirlitið hefur verið sent á staðinn, en meiðsl á fólki liggja ekki fyrir að svo stöddu að sögn lögreglunnar í Reykjavík. 12.10.2004 00:01
Lukashenko vill 3. kjörtímabilið Hvít-Rússar kjósa nú um það hvort forseti landsins skuli sitja sitt þriðja kjörtímabil. Kosningarnar sjálfar fara fram á sunnudaginn, en þeir íbúar landsins sem ekki eiga heimakvæmt á kjörstað þá kjósa í dag. 12.10.2004 00:01
Yukos þarf að selja Yfirvöld í Rússlandi hyggjast fá yfirmenn Yukos olíufyrirtækisins til þess að selja hluta fyrirtækisins svo því reynist unnt að greiða 8 milljarða dollara skuld sína. Ekki hefur fengið staðfest hver kaupandinn verður, en búist er við að hugmyndin sé að koma þeim hluta fyrirtækisins sem seldur verður aftur undir hendur hins opinbera. 12.10.2004 00:01
Olían enn á uppleið Metverð á Olíu er í dag, sjötta daginn í röð. Á hádegi var verðið á olífatinu í Bandaríkjunum komið yfir 54 dollara í fyrsta sinn og í Bretlandi kostaði fatið 51 og hálfan dollara á sama tíma. Olíverð hefur hækkað um 66% á heimsmarkaði á þessu ári og er hætt við því að það haldi áfram að hækka á meðan olíuverkfallið í Nígeríu stendur yfir. 12.10.2004 00:01
Framlög til túlkaþjónustu hækkuð Ríkisstjórnin samþykkti í dag tillögu menntamálaráðherra um að hækka fjárframlög til túlkaþjónustu fyrir heyrnarlausa. Fjárframlögin verða hækkuð um 2 milljónir það sem eftir lifir þessa árs og í fjárlögum næsta árs hækka þau úr 4 milljónum króna í 10 milljónir. 12.10.2004 00:01
Fjölgað í nefndinni Tillaga menntamálaráðherra um að fjölga fulltrúum í fjölmiðlanefnd úr fimm í sjö var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Mikil óánægja var með það að stjórnarandstöðuflokkarnir þrír ættu að deila tveim sætum í nefndinni og nú hefur verið komið til móts við það og fær Frjálslyndi flokkurinn því líkast til sinn fulltrúa í nefndina. 12.10.2004 00:01
Lögbann sett á aðgerðir Sýslumaðurinn á Akureyri féllst í dag á að setja lögbann á aðgerðir sjómannasamtaka og verkalýðsfélaga sem stöðvuðu löndun úr togaranum Sólbaki. Lögbannið, sem var sett að kröfu útgerðarfélags skipsins, tekur gildi þegar í stað, en Útgerðarfélagið þarf að höfða mál því til staðfestingar innan viku. 12.10.2004 00:01
Á slysadeild eftir fall Karlmaður var fluttur á slysadeild um klukkan hálf tvö í dag, eftir að hafa fallið niður af tveggja metra háum vinnupalli í Árbænum. Maðurinn var að rétta verkfæri niður af pallinum, þegar pallurinn, sem var á hjólum fór af stað, með þeim afleiðingum að hann féll af honum og lenti á bakinu. 12.10.2004 00:01
Össur ánægður með breytingu Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar segist fagna því að menntamálaráðherra hafi séð að sér varðandi fjölda fulltrúa í fjölmiðlanefnd. Hún hafi farið afar ógætilega af stað í málinu, en samstillt viðbrögð stjórnarandstöðunnar hafi orðið til þess að hún hafi séð að sér. 12.10.2004 00:01
Undarleg ósamstaða andstöðunnar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Menntamálaráðherra, segist hafa ákveðið að fjölga fulltrúum í fjölmiðlanefnd vegna þeirrar óánægju sem fram hafi komið hjá stjórnarandstöðunni vegna málsins. Hún segir að aldrei hafi komið til greina að fara af stað með nefnd sem væri ósætti um frá upphafi og því hafi verið sjálfsagt að bregðast við beiðni stjórnarandstöðunnar 12.10.2004 00:01
Nýr Ormur á MSN Ormur sem dreifir sér um MSN Messenger skyndiskilaboðaþjónustuna er kominn á kreik og reynir að koma notendum í samband við asískar klámsíður. Ormurinn kallast "Funner" 12.10.2004 00:01
Vilja takmarkað botnvörpubann Vernda þarf viðkvæm svæði á hafsbotni til að koma í veg fyrir tjón á lífríki nytjafiska í kringum landið. Þetta kemur fram í þingsályktunartillögu Vinstri grænna, sem lögð er fram í þriðja sinn á þingi nú í haust. Í tillögunni segir að stöðugt fjölgi vísbendingum um tjón á lífríki hafsbotnsins við hömlulitla notkun botnveiðarfæra. 12.10.2004 00:01
Lögbann á sjómenn Lögbann hefur verið sett á aðgerðir sjómannasamtaka og verkalýðsfélaga við löndun úr togaranum Sólbaki frá Akureyri. Útgerðarfélag skipsins fór fram á bannið hjá sýslumanninum á Akureyri í gær. 12.10.2004 00:01
Bandaríkjamenn sigra í tölvumóti Bandaríkjamenn fóru með sigur af hólmi á fjórða heimsmeistaramótinu í tölvuleikjum, World Cyber Games, sem haldið var í San Francisco um helgina. Keppt var í "Counter Strike" og Team 3-D frá Bandaríkjunum vann úrslitaviðureignina við liðið Titans frá Danmörku. Verðlaunaféð nam 50 þúsund dölum. 12.10.2004 00:01
25 milljónir í ferðastyrk Landsbanki Íslands mun styrkja Sinfóníuhljómsveit Íslands um 25 milljónir króna til utanferða. Í samkomulagi bankans og hljómsveitarinnar segir að í ferðum hljómsveitarinnar skuli faglegur metnaður og kynning íslenskrar tónlistar vera í fyrirrúmi. 12.10.2004 00:01
Ísland frjálsast og ríkast Íslendingar eru frjálsasta og ríkasta fólk í heimi, af því þeir skilja að smátt er fagurt og hafa staðið fyrir utan Evrópusambandið, segir breski Evrópuþingmaðurinn Daniel Hannan. Daniel Hannan er fyrrverandi ráðgjafi Michaels Howard, leiðtoga breska íhaldsflokksins, og einn leiðarahöfunda stórblaðsins Daily Telegraph. 12.10.2004 00:01