Rússarnir komnir aftur 13. október 2004 00:01
Algjör óvissa ríkir enn um hversu lengi rússnesku herskipin verða hér við land. Skipstjórar þeirra gefa misvísandi upplýsingar og þau skip sem farin voru eru komin aftur. Rússneskir blaðamenn vita ekkert um æfinguna við Íslandsstrendur en jafnan er fjallað ítarlega um æfingar hersins í rússneskum fjölmiðlum. Hálfgert stefnuleysi einkennir ferðalög rússnesku herskipanna. Þrjú þeirra, þar á meðal flugmóðurskipið Admiral Kuznetzov, yfirgáfu svæðið þar sem skipin hafa verið við æfingar í fyrradag og í gær en í morgun voru þau á ný komin á svæðið og var ekkert fararsnið á þeim. Skipherrann á kjarnorkuknúna beitiskipinu Pétri mikla hafði áður sagt við Landhelgisgæsluna að hann myndi halda frá Íslandi í gærkvöld, en af því varð ekki. Samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar í morgun stendur nú til að skipin verði á svæðinu í fjóra daga til viðbótar. Þau eru sem fyrr nokkrar mílur fyrir utan 12 mílna landhelgislínuna og fylgist varðskip með framvindu mála. Rússar segjast hafa viljað æfa í grennd við Ísland í öryggisskyni þannig að stutt væri í aðstoð, ef eitthvað færi úrskeiðis. Viðmælendur fréttastofunnar sem þekkja til hermála undrast ekki að Rússar vilji æfa í nánd við land en segja margt í fari Rússanna þó dularfullt í meira lagi. Undrum sæti að þeir skuli ekkert gefa uppi um hvað þeir hafist í raun að, upplýsingarnar sem rússneska sendiráðið fær þykja afar takmarkaðar og siglingar herskipanna fram og til baka vekja spurningar um hversu skipulagðar æfingarnar séu. Að auki gefa skipstjórar skipanna misvísandi upplýsingar um hvenær þeir hyggjast halda á brott, allt frá sólarhring til fjögurra daga. Rússneskir fjölmiðlar greindu einnig ítarlega frá sameiginlegum æfingum Bandaríkjamanna og Rússa fyrir um hálfum mánuði en hvergi er minnst orði á æfingarnar við Ísland. Rússneskir blaðamenn sem fréttastofan ræddi við í dag komu reyndar af fjöllum þegar þeir heyrðu af veru flotans hér við land og þótti það mikil tíðindi. Herskipin eiga að koma aftur í heimahöfn 25. október og nokkur rússnesk skip sem verið hafa í heimsókn í Evrópu eru nú á heimleið. Búist er við að þau bætist í hópinn, sem nú er úti af ströndum Íslands, á leiðinni.
Fréttir Innlent Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira