Fleiri fréttir

Geislavirkni minnkar

Geislavirkni á norðurskautssvæðinu fer nú minnkandi, mörgum árum eftir að Sovétmenn hættu að stunda kjarnorkutilraunir ofanjarðar og kjarnorkuslysið varð í Tsjernóbyl 1986.

Afríka illa rekin

Afríkubúar gáfu ríkisstjórnum í 28 löndum heimsálfunnar slæma einkunn í opinberum rekstri í könnun sem gerð var meðal 50 þúsund fjölskyldna og tvö þúsund sérfræðinga. Könnunin var unnin fyrir tilstuðlan Sameinuðu þjóðanna og er sú fyrsta sinnar tegundar.

Telja sjálfstæðismann vanhæfan

Vinstri grænir í sveitarstjórn Skagafjarðar telja að Bjarni Maronsson, sveitarstjórnarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem lagði fram tillögu um að fara með Villinganesvirkjun í kynningu, sé vanhæfur í málinu.

Kirkjan styrkir stöðu sína

Meirihluti landsmanna telur stöðu Þjóðkirkjunnar sterka enda þótt stór hluti þjóðarinnar segi að greina eigi á milli ríkis og kirkju. Fleiri telja sig eiga mikla samleið með kirkjunni en áður en þátttaka hennar í þjóðfélagsumræðum er hins vegar umdeild.

Tvö rússnesk herskip á leiðinni

Tvö rússnesk herskip sem tóku þátt í rússnesk-bandarísku heræfingunni á Norður-Atlantshafi munu slást í hóp þeirra fjögurra herskipa sem enn halda til úti af Langanesi.

Gruna að ein byssan sé illa fengin

Fjöldi vopna fundust í þremur húsleitum á Hellissandi um síðustu helgi. Leitarheimild var fenginn eftir að par, á fertugs og fimmtugsaldri, var handtekið grunað um fíkniefnamisferli. Parið hafi húsin, þrjú sem leitað var í, til umráða.

Rótleysið eykst með degi hverjum

Lítil hætta er talin á að kennaraverkfallið leiði til brottfalls á meðal grunnskólanema. Sérfræðingar óttast þó að ákveðinn hluti nemenda muni eiga í vaxandi erfiðleikum eftir því sem líða tekur á verkfallið.

Sögð hafa flutt 14 kíló af hassi

37 ára kona er ákærð af ríkissaksóknara fyrir innflutning á tæpleg fjórtán kílóum af hassi. 25 ára gamall maður er ákærður fyrir að hafa staðið að, ásamt konunni, að innflutningi á tæpum níu kílóum af hassinu. Hassið var flutt til landsins með tveimur fraktsendingum, bæði með skipi og flugi, í febrúar síðastliðinn.

Próföstum og prestssetrum fækkað

Kirkjuþing hefst á sunnudaginn en samkoman fer með æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar. Ýmis mál liggja fyrir þinginu og má búast við heitum umræðum um sum þeirra.

Fundur í undanþágunefnd á morgun

Að öllum líkindum verður haldinn fundur í undanþágunefnd vegna verkfalls grunnskólakennara á morgun, eftir vikuhlé. Fyrir nefndinni liggja tuttugu undanþágubeiðnir sem allar eru vegna fatlaðra barna. Fulltrúi sveitarfélaga í nefndinni segist ítrekað hafa óskað eftir fundi frá 4. október, en þá lágu tíu umsóknir fyrir.

Samskiptin versna ef Bush vinnur

Hætt er við því að samskiptin milli Evrópu og Bandaríkjanna versni enn, verði Bush endurkjörinn forseti Bandaríkjanna. Á hinn bóginn myndi kosning Kerrys geta bætt andrúmsloftið til muna. Þetta segir franskur blaðamaður og háskólakennari, sem staddur er hér á landi.

Lögbann á aðgerðir Sjómannasamtaka

Lögbann var sett á aðgerðir sjómannasamtakanna vegna Sólbaks í dag. Formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar segist hryggur yfir þessari niðurstöðu, en að baráttunni sé alls ekki lokið. Útgerðarmaður Sólbaks segir þetta staðfesta rétt útgerðarinnar í málinu og að Sólbakur landi á Akureyri á morgun.

Ekki í höndum sveitarfélaga

Sveitarstjórnarmenn taka ekki afstöðu í kennaradeilunni og skýla sér á bak við Launanefnd Sveitarfélaganna, segir formaður Kennarafélags Reykjavíkur. Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi bendir á að samningagerð sé ekki í höndum sveitarstjórnarmanna og segist bera fullt traust til samninganefndarinnar.

Kennarar út fyrir sitt svið

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að forystumenn kennara skipti sér af starfsemi utan verkfallsins í þeim tilgangi að valda sem mestum óþægindum og formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að átök eigi eftir að verða á bryggjunni vegna útgerðar Sólbaks.  

Bera þau kjarnavopn?

Óljóst er hvort rússnesku herskipin sem verið hafa við æfingar norðaustur af Íslandi beri kjarnorkuvopn. Eitt skipanna er þó kjarnorkuknúið og hefur getu til að bera tuttugu kjarnorkuflaugar. Líklegt er að herskipin verði við Íslandsstrendur í einhverja daga til viðbótar.  

Óttast ekki fjárhaginn

Karl Sigurbjörnsson biskup segist ekki óttast um fjárhag kirkjunnar þótt ríki og kirkja yrðu skilin að eins og helmingur landsmanna vill. Kirkjan gerði þá kröfu til hundraða gamalla kirkjujarða. Hann segist hinsvegar óttast um siðinn í landinu og þau grunvallargildi sem tilvera þjóðarinnar byggist á.

Stal senunni á Alþingi í dag

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra stal senunni í utandagskrárumræðum á Alþingi í dag um táknmálstúlkun þar sem lág fjárframlög og óvissa um túlkaþjónustu voru til umræðu. Ráðherrann lýsti því yfir að hún hefði þegar tryggt að tíu milljónum yrði árlega varið til táknmálstúlkunar.

40 dagar liðnir

Í dag lauk formlegu fjörtíu daga sorgartímabili vegna fórnarlamba hryðjuverkanna í barnaskólanum í Beslan í Rússlandi. Óttast er að átök kunni að blossa upp í bænum í kjölfarið. 340 létust í hryðjuverkunum, þar af helmingurinn börn. Í dagv var þögn í Beslan til þess að minnast atburðanna, kerti mátti víða sjá og blóm voru lögð í skólastofur.

Viðbúnaður vegna smygls

Tollgæslan hafði töluverðan viðbúnað við Sundahöfn í dag vegna smygls í fóðurflutningaskipi. Skipið heitir Sylvia og er skrá á Gibraltar. Það er hefur um skeið flutt fóður hingað til lands, en í morgun þótti sérstök ástæða til að skipta sér af af skipverjum.

Kirkjuþing ræðir peningaprestinn

Séra Guðjón Skarphéðinsson á Staðastað á Snæfellsnesi vill að Kirkjuþing ræði málefni séra Láru G. Oddsdóttur á prestssetrinu Valþjófstað. Lára fékk rúmar átta milljónir króna í eigin vasa af fimmtán milljóna bótum sem Landsvirkjun greiddi til Valþjófsstaðar. Lára er í fríi á Spáni en Guðjón mætir á Kirkjuþing.

Innrásin ýtti undir hryðjuverk

Innrásin í Írak gróf undan stríðinu gegn hryðjuverkum og ýtti undir uppgang margra hryðjuverkahópa. Þetta er niðurstaða Jaffee-herfræðistofnunarinnar við Tel Aviv-háskóla í Ísrael. Stofnunin er ein helsta hugmyndaveita Ísraela í varnarmálum.

Eftirlaunin í hættu

Breska eftirlaunakerfið er ekki í takt við raunveruleikann og hefur í för með sér að margir kunna að búa við fátækt þegar þeir fara á eftirlaun á næstu áratugum. Þetta er niðurstaða nefndar á vegum breskra stjórnvalda sem hefur kannað eftirlaunakerfið og framtíð breskra launþega þegar þeir fara á eftirlaun.

Spánverji þjálfaði hryðjuverkamenn

Spænska lögreglan telur að Spánverji að nafni Emilio Suarez Trashorras, sem er fyrrum námaverkamaður, hafi þjálfað hryðjuverkamenn í notkun sprengiefna áður en þeir gerðu árásir í Madríd sem kostuðu 191 mann lífið.

Þjófar rændu minningarbókinni

Þjófar stálu bók sem vegfarendur höfðu ritað samúðarkveðjur í til fjölskyldu Kenneths Bigley. Minningarbókin lá frammi í mosku í Birmingham ásamt mynd af Bigley, sem myrtur var af gíslatökumönnum í Írak, kertum og samúðarkortum. Öllu þessu var stolið.

Lík fannst í legreit mafíunnar

Lögreglan í New York fann á dögunum lík á yfirgefinni lóð sem hefur um langt árabil verið kölluð grafreitur mafíunnar vegna gruns manna um að þar hafi verið grafin lík manna sem glæpaforinginn John Gotti lét myrða.

Clinton í kosningabaráttuna

Bandarískir kjósendur mega eiga von á símtali frá Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Þeim gefst reyndar ekki mikið færi á að rökræða við Clinton því símtalið verður upptaka Clintons þar sem hann hvetur fólk til að kjósa flokksbróður sinn, demókratann John Kerry, í forsetakosningunum í nóvember.

Kjarnorkubúnaður í Írak horfinn

Mohamed ElBaradei, yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar, lýsti áhyggjum af því við öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að búnaður sem nota má til gerðar kjarnorkuvopna er horfinn af þeim stöðum sem hann var geymdur á í Írak. ElBaradei sagði að ekki væri nóg með að búnaðurinn væri horfinn heldur líka þær byggingar sem hann var geymdur í.

Rændu hálfum milljarði úr banka

Tveir starfsmenn grísks banka hafa verið handteknir sakaðir um að hafa stolið andvirði um hálfs milljarðs króna úr bankanum. Annar starfsmaðurinn komst yfir lykla og lykilorð að fjárhirslum bankans og hinn, sem var öryggisvörður í bankanum, slökkti á þjófavarnakerfinu eina nóttina svo þeir gætu rænt öllu því fé sem þeir gátu borið í fjárhirslunum.

Skiptst á þungum höggum

Vinir George W. Bush Bandaríkjaforseta í olíuiðnaðinum hafa hagnast á hækkandi olíuverði meðan hækkunin bitnar harkalega á neytendum, sagði John Kerry, forsetaefni demókrata á framboðsfundum í gær, degi fyrir síðustu kappræður hans og George W. Bush Bandaríkjaforseta sem fram fara í kvöld.<font face="Helv"></font>

Hóta að framlengja verkfallið

Allsherjarverkfallið í Nígeríu sem hófst á mánudag og á að standa í fjóra daga verður hugsanlega framlengt ef stjórnvöld neita að íhuga kröfur verkalýðsfélaga eða ofbeldi brýst út, sagði helsti forystumaður verkfallsmanna. Fyrirhugað var að endurtaka verkfallið eftir þrjár vikur ef ekki verður gengið að kröfum verkfallsmanna um lægra bensínverð.

Undanþágunefnd fundar í dag

Tuttugu beiðnir um undanþágur vegna verkfalls kennara verða teknar fyrir á fundi undanþágunefndar síðdegis í dag.

Fengu blys í veiðarfæri

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar fjarlægðu og eyddu fosfórblysi sem kom upp með veiðarfærum fiskiskipsins Draupnis á Selvogsbanka suður af landinu. Skipverjar höfðu samband við Landhelgisgæsluna og sögðust hafa fengið upp "torkennilegan og illa lyktandi hlut".

Gæslan í sprengjuleit

Mikið fannst af sprengifimum hlutum, sprengjubrotum, skotfærum og púðri í leit sem Landhelgisgæslan stóð fyrir á svæðinu norðvestur af Stapafelli á Reykjanesi í síðustu viku. Svæðið er merkt með skiltum en ekki afgirt.

Heyrnarlausir fagna framlagi

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra tilkynnti í gær á fundi með fulltrúum heyrnarlausra að framlög til heyrnleysingjatúlkunar hefðu verið aukin um 2 milljónir í ár og 6 milljónir á næsta ári.

Konum fækkar í stétt blaðamanna

Konum fækkaði mikið í blaðamannastétt milli áranna 2002 og 2003 ef marka má tölur um aðild að Blaðamannafélagi Íslands og Félagi fréttamanna. Fækkunin nam tæpum 28 prósentum, meðan körlum fjölgaði um tæp 11 prósent, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Hagstofunnar, Konur og karlar 2004.

Sjá næstu 50 fréttir