Innlent

Meintir dópsalar taldir upp

Vefsíða með lista yfir nöfn meintra eiturlyfjasala hefur verið sett upp á netinu. Fyrir síðunni stendur Björn Sigurðsson og lýsir hann þar ástæðum þess að hún var sett upp. Björn lýsir því hvernig syni hans var rænt af handrukkurum og stungið í farangursgeymslu á bíl. Þaðan tókst honum að hringja í föður sinn og láta vita af því hvað gekk á. Hann kallaði til lögreglu og hélt svo á eftir handrukkurunum. Í kjölfarið segir Björn að hann hafi verið lagður í einelti af "íslensku mafíunni" í um hálft ár en látið hafi verið af ofsóknunum þegar hann hótaði að láta af hendi til lögreglu listann sem hann hefur nú tekið að birta á netinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×