Innlent

Lögbann sett á aðgerðir

Sýslumaðurinn á Akureyri féllst í dag á að setja lögbann á aðgerðir sjómannasamtaka og verkalýðsfélaga sem stöðvuðu löndun úr togaranum Sólbaki. Lögbannið, sem var sett að kröfu útgerðarfélags skipsins, tekur gildi þegar í stað, en Útgerðarfélagið þarf að höfða mál því til staðfestingar innan viku. Guðmundur Kristjánsson, útgerðarmaður, segist fagna niðurstöðunni og segist alltaf hafa verið sannfærður um rétt sinn í málinu. Konráð Alfreðsson, formaður sjómannafélags Eyjafjarðar, segist hins vegar hryggur yfir niðusrstöðunni, en segir að sjómenn muni þó hlíta henni. Von er á Sólbaki til Akureyrar á morgun og ætti því að vera hægt að landa úr skipinu þá án vandræða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×