Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Máli Khodorkovskýs ekki vísað frá Dómstóll í Moskvu hafnaði því í dag að vísa frá máli sem höfðað hefur verið gegn Mikhaíl Khodorkovský, einum ríkasta manni Rússlands. Khodorkovský, sem var forstjóri Yukos olíurisans, hefur verið í haldi lögreglu og er ákærður fyrir svik. Lögmenn hans segja málið eiga sér pólitískar rætur. 19.8.2004 00:01
Flóttamönnum forðað frá lífshættu Lögreglan í Síerra Leóne stöðvaði í dag 500 flóttamenn sem ætluðu að sigla á manndrápsfleytu til Kanaríeyja. Yfirvöld í Sierra Leone, Gíneu og Spáni stóðu saman að aðgerðinni en talsmaður lögreglunnar segir skipið vera gamalt, óhæft til siglinga og ætti að fara beint í niðurrif. 19.8.2004 00:01
Hundur át 380 evrur Kona nokkur í Þýskalandi hélt að hún hefði verið rænd þegar kom að bíl sínum í dag í borginni Aschaffenburg í vesturhluta landsins. Í bílnum var hundur hennar ælandi og 380 evrur sem voru í bílnum voru horfnar. 19.8.2004 00:01
Leynd yfir heimsókninni Bill og Hillary Clinton koma hingað til lands á þriðjudaginn en ennþá virðist algjört leyndarmál hvað þau ætla sér að gera. Þingmannanefndin sem Hillary er í för með, ætlar hins vegar að kynna sér umhverfisvæna orku og hugmyndir um notkun vetnis hér á landi. 19.8.2004 00:01
Lokaárás yfirvofandi Lokaárás er yfirvofandi í Najaf í Írak þar sem harðlínuklerkurinn al-Sadr ögrar stjórnvöldum og neitar að gefast upp. Orrustuþotur og skriðdrekar láta sprengjum rigna í kringum Imam Ali moskuna þar sem al-Sadr heldur til. 19.8.2004 00:01
Tekjumunur landshluta mikill Svo virðist sem tekjumunur milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar hafi fest sig í sessi á undanförnum árum. Nú eru skattgreiðendur á höfuðborgarsvæðinu með um fimm prósent hærri tekjur en landsmeðaltal en landsbyggðarfólk er að meðaltali tíu prósentum undir meðaltali. 19.8.2004 00:01
Krefst fangelsisdóms Sækjandi, í máli gegn Þjóðverja sem verið hefur verið í farbanni grunaður um manndráp af gáleysi, fór fram á maðurinn yrði dæmdur í fangelsi. Þjóðverjinn ók ölvaður bíl sem hann velti á Krísuvíkurvegi 24. júlí síðastliðinn, einn farþeganna í bílnum lést af áverkum sínum fimm sólarhringum eftir slysið. 19.8.2004 00:01
Hannes vann lögbannsmálið Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði að siðanefnd Háskóla Íslands væri óheimilt að fjalla um kæru, dætra Halldórs Laxness, á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni vegna ritunar hans á fyrsta bindi ævisögu Halldórs Laxness, áður en niðurstaða fæst hjá dómstólum um frávísunarkröfuna. 19.8.2004 00:01
Umfjöllun siðanefndar bönnuð Vafi leikur á hvort siðanefnd Háskóla Íslands hefur nægilega stoð í lögum til að fjalla um ágreiningsmál að mati dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Nefndinni var í dag bannað að fjalla um kæru erfingja Halldórs Laxness á hendur Hannesi Hólmsteini vegna útgáfu bókarinnar <em>Halldórs</em>, fyrsta bindis ævisögu skáldsins. 19.8.2004 00:01
Siv hverfur úr ríkisstjórn Siv Friðleifsdóttir hverfur úr ríkisstjórn 15. september. Hún er ekki sátt við það og telur ákvörðun þingflokksins brjóta í bága við nær öll möguleg viðmið. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, boðar frekari breytingar á ráðherraliði flokksins vorið 2006. 19.8.2004 00:01
Ítalir afneita upprunanum Ítalskir fjölmiðlar fara háðulegum orðum um frammistöðu landsliðs síns í knattspyrnu í gær. Íslendingar upplifðu sögulega stund, en eins og fréttamaður Stöðvar 2 komst að vilja Ítalir búsettir hér á landi varla kannast við að vera Ítalir. 19.8.2004 00:01
Sharon og Arafat fara halloka Ariel Sharon og Jassir Arafat virðast báðir standa höllum fæti eftir pólitísk átök við eigin bandamenn undanfarna daga. Stjórnarslit og nýjar kosningar virðast óumflýjanlegar í Ísrael og palestínska þingið frestaði í dag fundi í mótmælaskyni við Arafat. 19.8.2004 00:01
Margir fóru sökum troðnings "Þetta var alveg á grensunni hjá okkur, ég efast um að við förum aftur í svona framkvæmdir á næstunni," segir Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, um áhorfendafjöldann á landsleik Íslands og Ítalíu á miðvikudagskvöld. Rúmlega tuttugu þúsund manns sóttu leikinn, sem er met, en margir kusu að hverfa frá sökum troðnings. 19.8.2004 00:01
Söfnun lokið á Patreksfirði "Við dæmum þetta sem svo að þetta sé komið, það vantar einhverja örfáa þúsundkalla upp á," segir Geir Gestsson sem efndi til samskota á Patreksfirði til að fjármagna sendi til að ná útsendingum Skjás eins. Vesturbyggð lögðu 200 þúsund krónur til í söfnunina og var þá nærri því búið að safna þeim 900 þúsund krónum sem stefnt var að. 19.8.2004 00:01
Stórar sprengingar í Najaf Að minnsta tíu stórar sprengingar urðu í írösku borginni Najaf í gærkvöld, stuttu eftir að Ayad Allawi, forsætisráðherra Íraks, sendi sjíaklerknum Muqtada al-Sadr lokaákall um að afvopnast. 19.8.2004 00:01
Bæjarstjóri neitar sjónhverfingum Bæjarstjóri Seltjarnarness frábiður sér ásakanir um sjónhverfingar við kynningu á nýju skipulagi á Seltjarnarnesi. Andstæðingar íbúðablokka segja of lítið gert úr þeim á kynningarmyndum. 19.8.2004 00:01
Götumynd Aðalstrætis gjörbreytt Götumynd Aðalstrætis, elstu götunnar í Reykjavík, er gjörbreytt og nýja hótelið þar er að taka á sig mynd. Fréttamaður Stöðvar kynnti sér framkvæmdirnar í dag, meðal annars í kjallara hússins þar sem talið er að rústir landnámsbæjar Ingólfs Arnarsonar sé að finna. 19.8.2004 00:01
Ráðstefna um málefni daufblindra Félagsleg einangrun er eitt erfiðasta vandamálið sem daufblindir eiga við að stríða. Norræn ráðstefna um málefni þeirra er nú haldin í Reykjavík. 19.8.2004 00:01
Ráðstefna um heilsuhagfræði Alþjóðleg ráðstefna um heilsuahagfræði mun fara fram í Reykjavík dagana 20. og 21. ágúst þar sem á annað hundrað vísindamanna frá fjölda þjóða kynna nýjustu rannsóknir sínar á þessu sviði. 19.8.2004 00:01
5. sæti í samkeppnishæfni Ísland er í fimmta sæti yfir samkeppnishæfustu ríki veraldar á nýjum lista svissnesku rannsóknarstofnunarinnar IMD sem kynntur var í gær. Ofar eru Bandaríkin, Singapúr, Kanada og Ástralía. Ísland er raunar samkeppnishæfasta ríki Evrópu samkvæmt listanum. 18.8.2004 00:01
Mikil spenna í Najaf Mikil spenna ríkir í Najaf í Írak eftir að harðlínuklerkurinn Muqtada al Sadr neitaði að eiga fund með sendinefnd írakskra stjórnmála- og trúarleiðtoga í gær. 18.8.2004 00:01
Ekki inn fyrir lögsögu Norðmanna Íslensku skipin þrjú sem eru við síldveiðar á Svalbarðasvæðinu fara ekki inn fyrir lögsögu Norðmanna á nýjan leik fyrr en skýr skilaboð þess efnis berast frá útgerðarfélögum. Þetta segir Markús Jóhannesson, fyrsti stýrimaður á Vilhelm Þorsteinssyni EA, eins skipanna þriggja. 18.8.2004 00:01
Olíuverð nær enn hámarki Olíuverð náði enn á ný nýju hámarki í gær þegar verð á hráolíufati náði fjörutíu og sjö dollurum. Ástæða hækkunarinnar er sú að hátt eldsneytisverð hefur ekki enn haft áhrif á efnahagslíf í Bandaríkjunum og því telja sérfræðingar að eldsneytisþörf þar muni ekki minnka með þeim afleiðingum að verð lækki. 18.8.2004 00:01
Hjón villtust á Fimmvörðuhálsi Björgunarsveitir á Suðurlandi voru sendar af stað í gærkvöld eftir að neyðarlínunni barst símtal frá þýskum hjónum sem óskuðu aðstoðar upp á Fimmvörðuhálsi. Þau sögðust villt sökum mikillar þoku á Hálsinum og óskuðu aðstoðar við að komast í öruggt skjól. 18.8.2004 00:01
Fimm fórust í Gasa-borg Fimm fórust í árás Ísraelshers í Gasa-borg snemma í morgun. Árásin var gerð á svæði þar sem íslamskir öfgamenn eiga sér bakland og eru þeir sem féllu sagðir hryðjuverkamenn. Að auki liggja sjö alvarlega slasaðir á sjúkrahúsi. 18.8.2004 00:01
Skorað á Halldór að þyrma Siv Stjórn fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði hefur skorað á formann Framsóknarflokksins og þingflokk framsóknarmanna að taka tillit til þess að oddviti framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi hafi flest atkvæði á bak við sig af þingmönnum flokksins, þegar gerðar verða breytingar á ráðherraliði flokksins þann 15. september næstkomandi. 18.8.2004 00:01
Hryðjuverkamenn fyrir dóm Átta hryðjuverkamenn, sem lögreglan í Bretlandi hefur haft í haldi í tvær vikur og voru í gær ákærðir fyrir að eiga aðild að morðum, koma fyrir dóm í dag. Þrír mannanna eru einnig ákærðir fyrir að hafa undir höndum gögn sem tengjast fyrirætluðum hryðjuverkum á fjármálafyrirtæki í New York, Washington og New Jersey. 18.8.2004 00:01
Ísland - Ítalía í kvöld Í dag, 18. ágúst, er 218 ára afmæli Reykjavíkurborgar. Stefnt er að því að fylla Laugardalsvöll í tilefni dagsins en landslið Ítala sækir okkar menn heim í kvöld. 18.8.2004 00:01
Tilræði við Blair og Berlusconi? Lögreglan á Ítalíu aftengdi í morgun sprengju nálægt sumarhúsi Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu. Aðeins fáeinum klukkustundum áður hafði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, yfirgefið sumarhúsið en hann var þar í heimsókn ásamt konu sinni, Cherrie. 18.8.2004 00:01
Magnús hlýtur lýðheilsuverðlaunin Magnús Scheving hlýtur Norrænu lýðheilsuverðlaunin í ár en þau eru veitt einstaklingi, samtökum eða stofnun sem hafa lagt fram mikilvægan skerf til að bæta lýðheilsu á Norðurlöndum. 18.8.2004 00:01
Handteknir vegna fylgis við páfa Átta rómversk-kaþólskir prestar hafa verið handteknir í Kína. Handtökurnar eru hluti herferðar kínverskra stjórnvalda gegn þeim sem hliðhollir eru páfa en Kínverjar rufu öll tengsl við Páfagarð árið 1950 og hafa síðan bannað aðrar kaþólskar kirkjur en þá sem stjórnvöld komu sjálf á fót. 18.8.2004 00:01
Fá nokkurra klukkustunda frest Varnarmálaráðherra Íraks segir skæruliða harðlínuklerksins Muqtada al-Sadrs hafa nokkurra klukkustunda frest til þess að leggja niður vopn og gefast upp. Að öðrum kosti megi þeir eiga von á ærlegri ráðningu. Ráðherrann segir að hersveitir yfirvalda og Bandaríkjahers séu reiðubúnar að láta til skarar skríða gegn skæruliðasveitunum. 18.8.2004 00:01
Vopn notuð í fíkniefnaviðskiptum Vopnabúr sem lögregla í Hafnarfirði og Reykjavík fann við húsleit í fyrrinótt var notað sem greiðsla í fíkniefnaviðskiptum. 18.8.2004 00:01
Olíuverð aldrei hærra Metverð fékkst fyrir olíufatið í gær, fjörutíu og sjö dollarar. Sérfræðingar sjá engin teikn um verðhjöðnun á næstunni og víða um heim er stefnt að neyðaraðgerðum til að draga úr eldsneytisnotkun. 18.8.2004 00:01
Konan á gjörgæsludeild Kona á sjötugsaldri, sem var í fólksbíl sem lenti í hörðum árekstri við jeppa við Kotströnd á Suðurlandsvegi um Verslunarmannahelgina, er enn á gjörgæsludeild en er komin úr öndunarvél. Karlmaður á sama aldri, sem einnig var í fólksbílnum, hefur hins vegar verið útskrifaður af sjúkrahúsi. Hann var einnig í öndunarvél fyrst eftir slysið. 18.8.2004 00:01
Árni víki úr ríkisstjórn Formaður fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði segir að Árni Magnússon eigi að víkja þegar ráðherrum Framsóknarflokksins verður fækkað um einn þann fimmtánda september. Sjálfur segir Árni að ákvörðunin sé þingflokksins og hann muni hlíta henni þegar þar að kemur. 18.8.2004 00:01
Fólksfjölgun næstu áratugi Fólksfjölgun er spáð um allan heim næstu áratugi nema í Evrópu. Ísland er þó undantekning hér á landi er gert ráð fyrir fjölgun um tuttugu og tvö prósent. 18.8.2004 00:01
Skólasókn 16 ára aldrei betri Skólasókn 16 ára ungmenna hefur aldrei verið betri hér á landi en á síðasta ári. Heldur fleiri stúlkur en drengir eru í skóla og er munurinn mestur á Austurlandi. 18.8.2004 00:01
Friðarumleitanir út um þúfur Harðir bardagar geisa í hinni helgu borg Najaf. Friðarumleitanir fóru út um þúfur þegar klerkurinn Muqtada al-Sadr neitaði að hitta friðarsendinefnd í gær. Varnarmálaráðherra Íraks hótar harkalegum viðbrögðum, gefist uppreisnarmenn í borginni ekki upp innan nokkurra stunda. 18.8.2004 00:01
Tíundi hver lögreglumaður er kona Nærri einn af hverjum tíu lögreglumönnum er kona og hefur hlutfall lögreglumenntaðra kvenna aukist verulega undanfarin ár. Fyrir sjö árum, eða árið 1997, var hlutfall lögreglumenntaðra kvenna 4,3%, en í upphafi síðasta árs voru 75 konur starfandi í lögreglunni á móti 728 körlum, eða 9,3%. 18.8.2004 00:01
Lítil áhrif á síldarvertíðina Brotthvarf íslenskra skipa af Svalbarðasvæðinu hefur lítil áhrif á síldarvertíðina í ár því síldin er á leið inn í efnahagslögsögu Norðmanna, þar sem þeir sjálfir veiða hana. Markmið þeirra með aðgerðum sínum undanfarið er því ekki að vernda síldarstofninn, segir framkvæmdastjóri LÍÚ. 18.8.2004 00:01
Leita að rúbínum á Grænlandi Kanadískt námufélag hóf nýlega leit að rúbínum á svæðinu við Qeqertarsuatsiaat á Grænlandi. Miklar vonir eru bundnar við verkefnið eftir því sem sagt er frá í grænlenska útvarpinu KNR. 18.8.2004 00:01
Auðveldara að skipta um kennitölu Norrænu samstarfsráðherrarnir ákváðu á fundi sínum, sem haldinn var á Íslandi í síðustu viku, að endurskoða norræna samninginn um þjóðskrá. Markmiðið með endurskoðuninni er það að koma á samstarfi um rafræn skipti á upplýsingum úr þjóðskrá, þannig að auðveldara verði fyrir Norðurlandabúa að fá nýja kennitölu þegar þeir flytjast á milli Norðurlandanna. 18.8.2004 00:01
Tvær milljónir í bætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag útgerðarfélagið Vísi til að greiða manni sem slasaðist við löndum úr skipi félagsins tæpar tvær milljónir króna í bætur. Slysið varð í Grindavíkurhöfn árið 1999 og meiddist maðurinn á hendi. 18.8.2004 00:01
Sadr gengst við kröfum stjórnvalda Sjíta klerkurinn Múktada al-Sadr hefur ákveðið að gangast við kröfum stjórnvalda í Írak um að enda uppreisnarástand í borginni Najaf. Bréf frá skrifstofum al-Sadr í Bagdad, var lesið upphátt á ráðstefnu þar í borg þar sem valið verður þjóðarráð Íraka. Þar sagði að hann hefði ákveðið að yfirgefa Imam Ali Moskuna sem hefur verið hersetin í lengri tíma. 18.8.2004 00:01