Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sindri Sverrisson skrifar 23. september 2026 17:45 Sunna Rún Sigurðardóttir og stöllur í Breiðabliksliðinu máttu sín lítils í dag. vísir/Guðmundur Ballið er svo gott sem búið hjá Íslandsmeisturum Breiðabliks í Evrópu þetta árið eftir skelfilegt tap gegn pólsku meisturunum í Czarni á heimavelli í dag, 6-2. Gestirnir komust í 4-0 í fyrri hálfleik og þó að Blikakonur næðu að minnka muninn um leið og hálfleiksflautið gall þá náðu þær engan veginn að svara fyrir sig í seinni hálfleiknum. Auk þess voru Blikar manni færri síðasta korterið eftir að Líf Joostdóttir Van Bemmel fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt, fyrir pirringsbrot. Liðin mætast aftur í Póllandi eftir viku og þar þarf Breiðablik kraftaverk til þess að komast áfram í 16-liða úrslit Evrópubikarsins. Klaudia Milek, fljótur og góður framherji gestanna, kom þeim verðskuldað yfir eftir tuttugu mínútna leik með sínu fyrsta marki af fjórum. Karlina Miksone tvöfaldaði forskotið eftir skelfileg mistök Taylor Kane og þarna virtist hreinlega slokkna á Blikum sem gáfu tvö mörk til viðbótar áður Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir minnkaði muninn á síðustu sekúndu fyrri hálfleiks. Þetta mark frá Úlfu hefði átt að gefa Blikum kraft inn í seinni hálfleik en þá skoraði Milek sitt þriðja mark eftir stungusendingu og kom Czarni í 5-1. Karitas Tómasdóttir minnkaði muninn með skalla eftir hornspyrnu en aftur voru Blikar slegnir niður með marki frá Milek strax í kjölfarið. Líf var svo rekin af velli og manni færri voru Blikar hreinlega heppnir að tapa ekki stærra. Atvik leiksins Ég ætla að segja að annað mark Czarni, sem var ekkert annað en gjöf frá Taylor Kane, hafi verið atvik leiksins. Það hafði alveg verið nokkuð jafnræði með liðunum en þetta kjaftshögg virtist hreinlega rota Blika og skömmu síðar fylgdu tvö mörk sem hreinlega gerðu út um einvígið. Stjörnur og skúrkar Klaudia Milek var mögnuð í fremstu víglínu gestanna og nýtti sér framliggjandi vörn Breiðabliks ítrekað. Hún endaði á að skora fernu af mikilli fagmennsku og ótrúlegt en satt þá hefðu mörkin getað orðið fleiri frá henni. Karlina Miksone var einnig frábær á miðjunni hjá Czarni, stór og líkamlega mjög sterk svo hún gat nánast dustað Blikakonur af sér auk þess að vera með góð skot og skora eitt mark. Natalia Chudzik var einnig mjög góð með baneitraðan vinstri fót og fleiri mætti nefna hjá gestunum. Aftur á móti gekk líklega enginn Bliki stoltur af velli í gær þó að tína megi til eitthvað á borð við það að Karitas Tómasdóttir var hættuleg í föstum leikatriðum í seinni hálfleik. Blikaliðið allt verður hreinlega að fá á sig skúrkastimpilinn eftir svona úrslit. Taylor Kane átti martraðarleik og gerði skelfileg mistök þegar hún gaf boltann beint út á Miksone í öðru marki gestanna. Það hafði mikil áhrif. Svo verða Blikar auðvitað að gera betur í föstum leikatriðum, bæði í vörn og sókn. Þýðir ekki að fá á sig tvö skallamörk eftir aukaspyrnur utan af velli í svona einvígi en vissulega endaði ein hornspyrna Blika svo loksins einnig með marki í seinni hálfleik. Þá er vörninni auðvitað enginn greiði gerður með því að hafa hana svona framarlega gegn greinilega stórhættulegu sóknarliði. Líf Van Bemmel gerði Blikaliðinu svo óleik með því að sækja sér tvö algjörlega óþörf spjöld og þar með rautt. Hvað svo sem segja má um dómgæsluna þá verða leikmenn að sýna meiri skynsemi í Evrópuleik. Dómarinn Hin þýska Karoline Wacker var ágæt í fyrri hálfleik og gerði rétt í að dæma ekki víti í vafaatriðum á sitt hvorum enda vallarins. Í seinni hálfleik missti hún tökin og átti nokkra furðulega dóma en Líf getur sjálfri sér um kennt fyrir seinna gula spjaldið og þar með það rauða. Stemning og umgjörð Fínasta stemning hjá ungum Blikum sem mættu á leikinn. Auðvitað hefði mætingin mátt vera betri en leiktíminn, klukkan 16 á vinnudegi, hjálpar ekki til. Breiðablik kann svo allt upp á tíu varðandi Evrópuleiki og ekkert út á umgjörðina að setja. Fótbolti Íslenski boltinn Breiðablik Evrópubikar kvenna í fótbolta