Innlent

Elín Hall er fjall­konan í ár

Freyja Þórisdóttir skrifar
Elín Hall hefur risið hratt upp á stjörnuhimininn.
Elín Hall hefur risið hratt upp á stjörnuhimininn. Vísir/Lýður Valberg

Leikkonan og söngkonan Elín Sif Halldórsdóttir er fjallkonan í ár. Lýðveldi Íslands er áttatíu og tveggja ára í dag og af því tilefni var blásið til hátíðarhalda víða um land og þar á meðal í Reykjavík. Að vanda hvíldi mikil leynd yfir því hver myndi fara með hlutverk fjallkonunnar þar til hún gengi út úr Alþingishúsinu klædd skautbúningnum.

Elín var í glæsilegum skautbúningi, sem er árið um kring í vörslu Árbæjarsafns, og við hann er stokkbelti með víniðarmunstri úr silfri og brjóstnæla í stíl. Hún flutti ávarp eftir Braga Valdimar Skúlason.

Fjallkonan er tákn Íslands en hún var fyrst nefnd í kvæði Bjarna Thorarensen, Eldgamla Ísafold, sem var ort á fyrsta áratug 19. aldar. Hugmyndin um konu sem tákn Íslands kom þó fram fyrr, í kvæði Eggerts Ólafssonar, Ofsjónir, frá árinu 1752.

Elín hefur skinið skært síðustu misseri. Hún einna þekktust fyrir leik sinn sem Vigdís í samnefndum þáttum um frú Vigdísi Finnbogadóttur og hefur að sama skapi verið að fylgja kvikmyndinni Ljósbrot víða um heim.

Í desember 2024 fór hún í viðtal á Vísi þar sem hún opnaði sig um að hafa veikst alvarlega í kjölfar kulnunar en náð að hlúa vel að sér og nálgast listina upp á nýtt með nýrri nálgun. Síðan þá hefur hún meðal annars ferðast mikið um Evrópu og komið fram á fjölmörgum rauðum dreglum. 

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×