Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. maí 2026 12:47 Myles Lewis-Skelly á ferðinni í leik Arsenal og Fulham. getty/Mark Leech Myles Lewis-Skelly fékk góða dóma fyrir frammistöðu sína á miðjunni í 3-0 sigri Arsenal á Fulham á laugardaginn. Meðal þeirra sem hrifust af spilamennsku Lewis-Skellys var Thierry Henry og hann væri til í að sjá strákinn í byrjunarliðinu í leiknum gegn Atlético Madrid í kvöld.
Hinn nítján ára Lewis-Skelly byrjaði aðeins sinn þriðja deildarleik á tímabilinu þegar Arsenal sigraði Fulham í ensku úrvalsdeildinni. Hann spilaði inni á miðjunni í fyrsta sinn í leik með aðalliði Arsenal en Mikel Arteta, knattspyrnustjóri liðsins, hafði jafnan notað hann sem vinstri bakvörð. Henry sagði að Lewis-Skelly hefði átt frábæran leik gegn Fulham og vill sjá hann oftar á miðjunni. „Eins og öllum fannst mér Declan Rice aftur stórkostlegur en Myles var á öðrum stað. Hann var ekki bara góður með boltann heldur las hann leikinn vel, stöðvaði sóknir og bauð sig,“ sagði Henry í Monday Night Football á Sky Sports. „Hann spilaði mjög vel. Það er eitt að vera þolinmóður og pirraður yfir stöðunni en hann var tilbúinn. Það leit ekki út fyrir að hann hefði ekki spilað í langan tíma. Hann stjórnaði leiknum og sótti fram. Það var frábært.“ Klippa: Frammistaða Lewis-Skelly gegn Fulham Eftir frammistöðuna gegn Fulham hefur verið rætt um að Arteta ætti að veðja á Lewis-Skelly í stað Martíns Zubimendi í seinni leiknum gegn Atlético í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. „Vegna stærðar leiksins veit ég ekki hvort hann ætlar að setja öryggið á oddinn en hann [Lewis-Skelly] sýndi að þetta gæti verið ný staða fyrir hann fyrir næsta tímabil,“ sagði Henry. „Hann gerði ótrúlega vel og ég er ekki mótfallinn því að hann byrji inn á en ég skil, í ljósi þess hversu stór leikurinn er og hvernig Zubimendi spilar, að hann vilji vera varkár. En myndi ég vilja sjá hann á morgun [í dag]? Já, af hverju ekki? En Mikel Arteta er stjórinn.“ Arsenal og Atlético gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leik liðanna sem fór fram í Madríd. Bæði mörk leiksins komu úr vítaspyrnum. Viktor Gyökeres kom Arsenal yfir á 44. mínútu en Julián Álvarez jafnaði á 56. mínútu. Arsenal freistar þess að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrsta sinn í tuttugu ár. Atlético spilaði síðast til úrslita í keppninni fyrir tíu árum. Leikur Arsenal og Atlético Madrid hefst klukkan 19:00 og verður sýndur beint á Sýn Sport Viaplay. Upphitun hefst hálftíma fyrir leik.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Arsenal FC Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira