Man United örugg­lega í úr­slit eftir sigur á For­est

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þessir gerðu gæfumuninn í kvöld.
Þessir gerðu gæfumuninn í kvöld. Robbie Jay Barratt/Getty Images

Manchester United mætir Newcastle United í úrslitum enska deildarbikarsins. Man United vann Nottingham Forest 2-0 í kvöld og einvígi liðanna því samtals 5-0.

Man United var 3-0 yfir í einvíginu fyrir leik kvöldsins og bar hann þess merki. Gestirnir pössuðu sig á að halda andliti á meðan leikmenn Rauðu djöflanna vildu sparka orku þar sem liðið á urmul leikja framundan í febrúar.

Úr varð einn hundleiðinlegur fótboltaleikur. Á endanum lauk honum með 2-0 sigri Man United en varamaðurinn Anthony Martial skoraði á 73. mínútu eftir að boltinn hrökk til hans af öðrum varamanni, Marcus Rashford.

Þremur mínútum síðar fékk Rashford sendingu frá Jadon Sancho, gaf fyrir á Fred sem lagði boltann snyrtilega í netið með lærinu. Lokatölur 2-0 og Man United mætir því Newcastle á Wembley þann 26. febrúar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira