Erlent

Saka samtök olíuútflutningsfyrirtækja um að styðja Rússa

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Frá fundi ríkjanna í Vín. Prins Abdulaziz bin Salman, orkumálaráðherra Sádí-Arabíu sést fyrir miðri mynd. Bandaríkjamenn eru æfir yfir ákvörðun samtaka olíuútflutningsríkja um að minnka framleiðslu.
Frá fundi ríkjanna í Vín. Prins Abdulaziz bin Salman, orkumálaráðherra Sádí-Arabíu sést fyrir miðri mynd. Bandaríkjamenn eru æfir yfir ákvörðun samtaka olíuútflutningsríkja um að minnka framleiðslu. EPA

OPEC+ samtök olíuútflutningsríkja ákváðu í dag að draga verulega úr olíuframleiðslu til að bregðast við lækkandi olíuverði. Áhrifin á heimshagkerfið eru talin mikil og búist er við hækkunum á olíuverði eftir langþráðar lækkanir síðustu vikur. Ákvörðunin er högg fyrir Joe Biden Bandaríkjaforseta sem segir ákvörðunina til marks um skammsýni og sakar samtökin um að styðja Rússa með ákvörðuninni.

Orkumálaráðherrar í samtökum olíuútflutningsríkja, OPEC+ tóku í dag ákvörðun um að skera niður framleiðslu um tvær milljónir olíutunna á dag frá og með nóvember. 

Ráðamenn segja ákvörðunina byggða á „óvissu sem umlykur efnahags- og olíumarkaðshorfur á heimsvísu.“ Orkuráðherra Sádi-Arabíu, Abdulaziz bin Salman, lagði áherslu á yfirlýst hlutverk hópsins sem verndari stöðugra orkumarkaða. 

„Við erum hér til að vera sem hófstillt afl, til að koma á stöðugleika,“ sagði hann við fréttamenn AP fréttaveitunnar

Olíuverð er langt undir sumartoppum sínum vegna ótta við samdrátt í helstu hagkerfum, Bandaríkja og Evrópu vegna verðbólgu, hækkandi vaxta og óvissu í kringum orkuútflugning. Ákvörðunin er sögð hagnast Rússum við að takast á við yfirvofandi bann Evrópusambandsins á stóran hluta rússneskrar olíu.

Joe Biden Bandaríkjaforseti er allt annað en sáttur við ákvörðunina. Samkvæmt tilkynningu frá Hvíta húsinu ætla Biden og bandamenn hans að beita öllum brögðum til að minnka áhrif samtaka olíuútflutningsfyrirtækja á olíuverð.

“Það er alveg ljóst að OPEC+ eru að taka hlið Rússlands með nýjustu ákvörðuninni ,” sagði Karine Jean-Pierre, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins.

Bin Salman vísaði því alfarið á bug að samtökin væru að aðstoða Rússa og sagði áherslu samtakanna vera skynsamlega stjórnun olíumarkaða.


Tengdar fréttir

Skerða framleiðslu um tvær milljónir tunna

Fulltrúar stærstu olíuframleiðenda heims komust í dag að þeirri niðurstöðu að draga olíuframleiðslu á heimsvísu um tvær milljónir tunna á dag. Þetta var ákveðið á fundi OPEC+ ríkjanna í Vínarborg en niðurstaðan mun líklegast leiða til hærra olíuverðs eða í það minnsta stöðva verðlækkun.

OPEC líklegt til að draga verulega úr framleiðslu

Fulltrúar OPEC-ríkjanna svokölluðu og Rússlands, munu funda í Vínarborg í dag og ræða olíuframleiðslu. Fastlega er búist við því að tekin verði ákvörðun um umfangsmikla framleiðsluskerðingu með því markmiði að hækka olíuverð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×