Tónlist

Júníus Meyvant fylgir Kaleo á tónleikaferðalagi um Evrópu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Júníus Meyvant mun hita upp fyrir Kaleo á væntanlegum Evróputúr hljómsveitarinnar.
Júníus Meyvant mun hita upp fyrir Kaleo á væntanlegum Evróputúr hljómsveitarinnar. Spessi Hallbjornsson

Tónlistarmaðurinn Júníus Meyvant mun hita upp fyrir íslensku hljómsveitina Kaleo á tónleikaferðalagi þeirra um Evrópu. Ævintýrið hefst 4. júní í Berlín og endar í Aþenu 6. júlí. Blaðamaður sló á þráðinn og tók púlsinn á Júníusi.

Júníus, eða Unnar eins og hann heitir réttu nafni, segist vel stemmdur fyrir þessu og þykir gaman að geta loksins spilað fyrir framan fjölda fólks.

„Þetta er bara frábært, eftir Covid og svona er fínt að fá kick start, sérstaklega sem upphitunar atriði.“

Hann segist hlakka mikið til og líður vel á sviðinu.

„Þegar þú ert upphitunar atriði færðu líka að fylgjast með hinum eftir á. Oft þegar ég er einn á sviði fæ ég að ráða tempó-inu og allt er undir mér komið. Mér finnst þetta mjög þægilegt.“

Júníus segir þetta ekki hafa staðið lengi til en hann þekkir Kaleo strákana og segir Ruben Pollock hafa heyrt í honum um daginn.

„Hann hafði bara samband við mig bara sem vinur og spurði hvort ég væri til í að hita upp.“

Júníus var ekki lengi að slá til. Þorleifur Gaukur Davíðsson, meðlimur Kaleo, er frændi hans og er ekki ólíklegt að þeir sameini krafta sína eitthvað á sviðinu.

„Ég fæ Gauk örugglega til að taka eitthvað í bassann með mér á sviðinu.“

Klippa: Júníus Meyvant - Neon Experience

Það er ýmislegt fleira á döfinni hjá Júníusi og daginn sem hann spilar fyrsta giggið með hljómsveitinni sendir hann frá sér glænýtt lag.

„Svo kemur plata í haust sem er fyrir löngu tilbúin en ég er að vinna í alls konar efni. Akkúrat núna er ég bara að rústa húsinu mínu og breyta þar, en samt alltaf að spila,“ segir Júníus að lokum léttur í lund.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×