Hitinn gæti náð um þrjátíu stigum á Austurlandi Atli Ísleifsson skrifar 25. ágúst 2021 07:20 Hitamet gætu fallið á Norðausturlandi síðdegis í dag. Að ofan má sjá hitaspákort Veðurstofunnar fyrir klukkan 16. Veðurstofan Enn leika hlýjar sunnanátttir um landið með vætu og sólarleysi fyrir sunnan og vestan, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Ekki er útilokað að hitamet fyrir ágústmánuð sem slegið var í gær muni falla í dag.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að áhugavert verði að sjá hversu hár hiti mælist á norðaustanverðu landinu í dag, en í gær mældust 29,4 stig á Hallormsstað, sem er hæsti hiti sem mælst hefur í ágústmánuði. „Ekki ólíklegt að álíka hiti sjáist á einstaka veðurstöð norðaustanlands síðdegis, áður en og ef hafgolan nær sér á strik. Ferðamenn gæti að allhvössum eða hvössum sunnanvindstrengjum á norðanverðu Snæfellsnesi, sem geta valdið ökumönnum vandræðum ef þeir aka með aftanívagna eða á bílum sem taka á sig mikinn vind.“ Á morgun má svo búast við suðlægri átt, þremur til tíu metrum á sekúndu, og lítilsháttar væta víða um land, en bjart með köflum norðaustantil. Hvessir heldur suðvestanlands um kvöldið. Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Sunnan 5-13 m/s og skýjað með köflum sunnan- og vestanlands og sums staðar dálítil væta. Hiti 12 til 17 stig. Bjartviðri á Norður- og Austurlandi með hita að 23 stigum. Á föstudag: Sunnan og suðaustan 8-15 m/s, en 15-20 í vindstrengjum á vestanverðu landinu fram eftir degi. Víða rigning og hiti 12 til 16 stig, en þurrt og bjart NA-lands með hita 17 til 22 stig. Á laugardag og sunnudag: Ákveðin suðvestanátt og lítilsháttar væta á vestanverðu landinu, en yfirleitt léttskýjað eystra. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi. Á mánudag og þriðjudag: Suðlæg átt með smásúld, en léttskýjað og hlýtt norðan- og austanlands.
Veður Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira