Erlent

Rannsaka risastórt hópsmit á tónlistarhátíð á Englandi

Árni Sæberg skrifar
Hátíðargestir skemmtu sér konunglega í miklu návígi hver við annan.
Hátíðargestir skemmtu sér konunglega í miklu návígi hver við annan. Jonny Weeks/Getty

Heilbrigðisyfirvöld í Englandi hafa hafið opinbera rannsókn eftir að 4.700 manns sem sóttu tónlistar- og brimbrettahátíðina Boardmasters sem haldin var í Cornwall á dögunum greindust smitaðir af kórónuveirunni.

Í frétt Sky um málið segir að um 76 þúsund manns hafi sótt hátíðina og smituðust því rúmlega sex prósent hátíðargesta. Til samanburðar má nefna að svipað smithlutfall á 20 þúsund manna Þjóðhátíð myndi skila sér í tólf hundruð smituðum. Hátíðarhaldarar segjast hafa fylgt öllum sóttvarnarreglum sem í gildi eru á Englandi.

Mikil mannmergð var á hátíðinni, ekki síst þegar Gorillaz stigu á svið með Damon Albarn í broddi fylkingar.Jonny Weeks/Getty

Öllum gestum hátíðarinnar, ellefu ára og eldri, var gert að sýna fram á einn þriggja valmöguleika: Bólusetningarvottorð, sem sýnir að seinni skammtur hafi verið gefinn minnst tveimur vikum fyrir hátíð, neikvæða niðurstöðu úr hraðprófi sem er ekki meira en sólarhringsgamalt eða jákvæða niðurstöðu um fyrri sýkingu úr PCR-prófi.

Þeir gestir sem gistu á tjaldsvæði hátíðarsvæðisins þurftu einnig að undirgangast hraðpróf þegar hátíðin var hálfnuð. Gestir voru beðnir um að koma með sín eigin hraðpróf.

Engin grímuskylda var á hátíðinni en gestir voru hvattir til grímunotkunar.

Fáir virðast hafa hlustað á hvatningu um grímunotkun.Jonny Weeks/Getty

Louis Gardner, bæjarstjóri Newquay þar sem hátíðin fór meðal annars fram, segir orsök fjölda smitaðra í Corwall orsakast af metfjölda ferðamanna í sýslunni og skort á sóttvörnum.

„Gististaðirnir okkar eru fullir, samkomustaðir eru fullir, það eru engar fjarlægðartakmarkanir í gildi. Ég held að þetta hafi allt samverkandi áhrif,“ segir Gardner.

Sóttvarnalæknir hefur varað við tilslökunum

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði í viðtali við fréttastofu á dögunum að honum litist ekki á blikuna vegna afléttinga sóttvarnaraðgerða á Bretlandseyjum.

Þórólfur reyndist sannspár um ástandið á Englandi.Vísir/Vilhelm

„Ég held að þetta sé mjög óvarlegt hjá Bretum að gera þetta svona. Þeir gætu átt eftir að fá þetta í bakið á næstunni. Það er mögulegt,“ segir Þórólfur.

Nú nokkrum dögum seinna virðist Þórólfur hafa haft rétt fyrir sér.

Þórólfur sagði jafnframt í viðtali í gær að hann teldi ekki rétt að fara sömu leið og nágrannaþjóðir okkar. Hann segir áhættu tekna með afléttingu fjöldatakmarkanna.

„Ég bendi á það, til dæmis, úrslitaleikurinn á Wembley, Íslendingar sem komu þaðan voru smitaðir og eiga stóran þátt í þessari bylgju sem við erum núna að ganga í gegnum,“ segir Þórólfur.

Hann segir betra að við nýtum okkur okkar eigin reynslu í baráttunni við faraldurinn.


Tengdar fréttir

Vinnur að endurskoðun á reglum um sóttkví

Sóttvarnalæknir vinnur að endurskoðun á reglum um sóttkví. Hann telur mjög mikilvægt að halda skólunum opnum í haust en einnig að hægt verði að lágmarka hversu marga þurfi að setja í sóttkví. Nýtt afbrigði veirunnar gæti þó gert þetta erfitt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×