Íslenski boltinn

Lof og last 14. um­ferðar: Lennon, Sindri Kristinn, sóknar­leikur KR, and­leysi Fylkis og fljót­færir Blikar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Steven Lennon elskar að spila við ÍA.
Steven Lennon elskar að spila við ÍA. Vísir/HAG

Fjórtándu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld. Það hefur mikið gengið á undanfarna tvo daga og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof, hvað á skilið last og hvað flokkast sem hvorki né.

Taka skal fram að þetta er eingöngu skoðun blaðamanns og er aðallega gert til skemmtunar.

Lof

Steven Lennon

Skotanum líður einkar vel upp á Skipaskaga en hann skoraði öll þrjú mörkin er FH vann þægilegan 3-0 sigur á ÍA. Vissulega komu tvö mörkin af vítapunktinum en það þarf að skora úr þeim til að þau telji. Er þetta annað árið í röð sem Lennon skorar þrennu upp á Skaga og ljóst að hann kann vel við sig í rokinu.

Sindri Kristinn Ólafsson

Keflavík vann nokkuð óvæntan 2-0 sigur á lærisveinum Óskars Hrafns Þorvaldssonar í Breiðablik um liðna helgi. Gestirnir úr Kópavogi spiluðu nokkuð vel í leiknum og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Sindri Kristinn var hins vegar í banastuði í marki heimamanna og varði allt sem á markið kom, þar á meðal nokkur dauðafæri.

Oliver Haurits

Þegar menn opna markareikning sinn í Pepsi Max deildinni með marki yfir aftan miðju eiga þeir lof skilið. Oliver Haurits skoraði eitt af mörkum sumarsins er Stjarnan tapaði 2-3 fyrir Víking.

Hálfleiksræða Heimis

Íslandsmeistarar Vals voru heppnir að vera 1-0 yfir er flautað var til hálfleiks í Kórnum. HK höfðu verið mikið mun betri aðilinn en gestirnir komust yfir undir lok fyrri hálfleiks. Svo virðist sem Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, hafi látið nokkur vel valin orð falla í hálfleik en það var allt annað að sjá Val í síðari hálfleik. HK átti engin svör og Valur vann 3-0 sigur.

Sóknarleikur KR

KR lék sinn besta leik á tímabilinu og mögulega besta leik síðari ára er liðið pakkaði Fylki saman í Vesturbænum. Lokatölur 4-0 en sigurinn var síst of stór miðað við magnið af færum sem fóru forgörðum hjá heimamönnum í leiknum. Gestirnir úr Árbænum áttu engin svör við öflugum sóknarleik heimamanna og voru í raun heppnir hversu kærulausir KR-ingar voru oft á tíðum í aðgerðum sínum.

Last

Andleysi Fylkis

Fylkir hefur oftar en ekki mætt í Vesturbæinn og strítt KR-ingum undanfarin ár. Það er eins og leikmenn liðsins finni fyrir auknum vilja og krafti er þeir mæta á Meistaravelli. Það var svo aldeilis ekki staðan í leik liðanna í 14. umferð en gestirnir voru heppnir að vera aðeins 2-0 undir í hálfleik.

Það lifnaði aðeins yfir þeim sóknarlega í síðari hálfleik en varnarleikurinn var líkt og gatasigti. Gæti farið svo að Ragnar Sigurðsson komi inn í liðið fyrr en áætlað var ef næsti leikur verður svipaður.

Fljótfærir Blikar

Það vita allir og amma þeirra hvað leikplan Breiðabliks er þegar kemur að uppspili. Óskar Hrafn fór yfir það eftir leik að ekki sé hægt að hampa leikstíl liðsins og gagnrýna á sama tíma enda mun leikstíll sem einblínir jafn mikið á að spila boltanum í gegnum pressu fá á sig klaufaleg mörk við og við.

Blikar geta þó ekki verið sáttir við fyrra markið sem liðið fær á sig í Keflavík. Anton Ari Einarsson. markvörður, gefur á Viktor Örn Margeirsson áður en Viktor Örn er kominn í almennilega stöðu til þess að taka við knettinum. 

Miðvörðurinn tekur við boltanum og þá er hrægammurinn Joey Gibbs mættur í andlitið á honum sem endar með því að Viktor Örn – réttfættur varnarmaður spilandi vinstra megin – neglir tuðrunni í Gibbs og í netið. Smá þolinmæði og Viktor hefði getað fengið boltann dýpra á vellinum – eða betur undirbúinn – og leyst úr pressunni.


Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.


Tengdar fréttir

Umfjöllun og viðtöl: HK - Valur 0-3| Valsmenn styrktu stöðu sína á toppnum

Valur komust yfir rétt áður en flautað var til hálfleiks. Það má segja að mark Patrick Pedersen hafi verið gegn gangi leiksins en eftir að Valur komst á bragðið áttu heimamenn lítinn séns.Birkir Már Sævarsson gerði annað mark Vals með laglegu skoti í fjærhornið þegar síðari hálfleikur var ný farinn af stað.Andri Adolphsson var nýkominn inn á sem varamaður þegar hann spólaði upp hægri kantinn og þrumaði boltanum í slánna og inn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×