Erlent

Vilja ekki geyma brottvikna hælisleitendur á Grænlandi

Kristján Már Unnarsson skrifar
Frá flotastöð danska hersins í Grønnedal á Suður-Grænlandi.
Frá flotastöð danska hersins í Grønnedal á Suður-Grænlandi. Árni Harðarson

Ríkisstjórn Danmerkur hafnar tillögu Danska Þjóðarflokksins þess efnis að brottviknir hælisleitendur verði sendir í aflagða herstöð á Grænlandi. Þetta kom fram í ræðu ráðherra málefna innflytjenda, sósíaldemókratans Mattias Tesfaye, í danska þinginu.

„Ég tel að lausnin sé ekki útgöngumiðstöð á Grænlandi. Og það er ekki hluti af þeirri áætlun stjórnvalda að fá fleiri brottvikna hælisleitendur til að snúa aftur heim,“ sagði ráðherrann, en grænlensku fréttamiðlarnir KNR og Sermitsiaq fjalla um málið.

Pia Kjærsgaard, þingmaður Danska þjóðarflokksins, Dansk Folkeparti, boðaði í vetur tillögu á danska þjóðþinginu þess efnis að húsakynni danska hersins í Grønnedal, afskekktum firði á Suður-Grænlandi, yrðu nýtt með þessum hætti.

Frá flotastöðinni í Grønnedal. Þegar mest var bjuggu þar um tvöhundruð manns, hermenn og fjölskyldur þeirra. Núna er neglt fyrir flesta glugga.Árni Harðarson

Hugmynd flokksins er að þeir sem synjað hefur verið um landvist í Danmörku, sem og hælisleitendur með afbrotaferil, verði sendir til Grænlands. Þetta verði tímabundin vistun þangað til hægt verði að koma þeim til eigin heimalands.

„Okkur finnst ekki skynsamlegt að búa til útgöngumiðstöð á Grænlandi. Og eins og ég hef skilið það frá heimastjórninni deilir hún þeirri skoðun,“ sagði ráðherrann Mattias Tesfaye síðastliðinn fimmtudag þegar málið var tekið fyrir. Hann taldi enga ástæðu til að bera það sérstaklega undir nýkjörna landsstjórn Grænlands.

Þingmenn Grænlendinga á danska þinginu, þær Aki-Matilda Høegh-Dam frá Siumut og Aaja Chemnits Larsen frá IA, hafa einnig hafnað hugmyndinni. Raunar lýsti enginn annar flokkur stuðningi við tillögu Dansk Folkeparti.

Pia Kjærsgaard, þingmaður Danska þjóðarflokksins, flutti tillöguna umdeildu. Hún var forseti danska þjóðþingsins þegar hún ávarpaði hátíðarfund Alþingis á Þingvöllum sumarið 2018.Vísir/getty

Framsögumaður tillögunnar, Pia Kjærsgaard, sagði í þingumræðunum að hún saknaði rökstuðnings gegn því að kanna möguleikann á útgöngumiðstöð á Grænlandi.

„Við viljum ekki neyða neitt upp á Grænlendinga. En það vekur undrun mína að menn hafi ekki einu sinni velt því fyrir sér að spyrja,“ sagði hún og bætti við að það yrði erfitt fyrir hælisleitendur að vera til vandræða á Grænlandi.


Tengdar fréttir

Hælisleitendur verði sendir í aflagða herstöð á Grænlandi

Pia Kjærsgaard, þingmaður Danska þjóðarflokksins, Dansk Folkeparti, hefur boðað tillögu á danska þjóðþinginu þess efnis að aflögð flotastöð danska hersins í afskekktum firði á Suðvestur-Grænlandi verði tekin undir brottvikna hælisleitendur. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×