Veður

Róleg suðvestanátt með éljum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Það er spáð rólegu veðri í dag.
Það er spáð rólegu veðri í dag. Vísir/Vilhelm

Það er spáð rólegri suðvestanátt með éljum í dag en væntanlega mun létta til á Norðaustur- og Austurlandi síðdegis. Hitinn ætti að skríða yfir frostmark víðast hvar en í nótt má svo búast við núll til fimm stiga frosti.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Á morgun er svo spá austan og norðaustan kalda eða stinningskalda og slyddu eða snjókomu með köflum.

Seinni partinn á svo að hvessa norðantil á landinu með talsverðri ofankomu og slæmum akstursskilyrðum.

Á föstudag verður síðan stíf norðanátt með snjókomu og éljum en þurrt sunnan heiða. Frost um allt land.

Veðurhorfur á landinu:

Suðvestlæg 3-10 m/s og él, en yfirleitt þurrt á NA- og A-landi síðdegis. Hiti 0 til 4 stig yfir daginn, en frost 0 til 5 stig í nótt.

Austlæg átt á morgun, víða 8-13 m/s og slydda eða snjókoma með köflum. Hiti um eða yfir frostmarki. Gengur í norðaustan hvassviðri eða storm um landið NV-vert seinni partinn með kólnandi veðri.

Á fimmtudag:

Austlæg átt, víða 8-13 m/s og slydda eða snjókoma með köflum. Hiti um eða yfir frostmarki. Gengur í norðaustan hvassviðri eða storm um landið NV-vert síðdegis og um kvöldið, kólnandi veður.

Á föstudag:

Hvöss norðanátt með snjókomu N-til á landinu, en mun hægari og úrkomulítið A-lands fram á kvöld. Frost 0 til 6 stig, en frostlaust við SA- og A-ströndina.

Á laugardag:

Austan og norðaustan 8-15 og dálítil snjókoma með köflum, en hvessir seinni partinn. Hiti um eða undir frostmarki.

Á sunnudag (pálmasunnudagur):

Norðaustanátt með rigningu eða snjókomu, en úrkomulítið SV-lands. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost á Vestfjörðum og N-landi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×