Sunderland klófesti Wickham Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. júní 2011 16:30 Wickham skallar boltann í leik með Ipswich. Nordic Photos / AFP
Einn eftirsóttasti táningur Bretlandseyja, Connor Wickham, gekk í dag til liðs við Sunderland sem keypti hann fyrir 8,1 milljón punda frá Ipswich. Kaupverðið getur hækkað upp í tólf milljónir punda ef honum gengur vel hjá Sunderland. Wickham er átján ára gamall og hefur verið orðaður við mörg önnur félög að undanförnu, til að mynda Liverpool. Wickham mun sjálfur hafa verið stuðningsmaður Liverpool í gegnum tíðina en Sunderland mætir einmitt Liverpool á Anfield í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í ágúst. „Ég er mjög spenntur fyrir þessu. Sunderland er stórt félag þar sem allar aðstæður eru frábærar. Ég get ekki beðið eftir því að fá að hefja æfingar með liðinu,“ sagði Wickham í viðtali á heimasíðu félagsins. Wickham lék sinn fyrsta leik með aðalliði Ipswich aðeins sextán ára gamall og varð þá yngsti leikmaður ensku B-deildarinnar frá upphafi. Hann var kjörinn besti ungi leikmaður deildarinnar á síðasta tímabili. Hann er hávaxinn sóknarmaður og skoraði þrettán mörk í alls 65 leikjum með Ipswich á undanförnum tveimur tímabilum. Hann skoraði einnig sigurmark U-17 liðs Englands í úrslitaleik EM U-17 liða gegn Spáni í fyrra.
Mest lesið „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ Íslenski boltinn Þvælu að starf Ole Gunnar sé í hættu Fótbolti Hato mættur á Brúnna Enski boltinn Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Enski boltinn „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Íslenski boltinn Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Enski boltinn Partey á leið til Villareal þrátt fyrir nauðgunar ákærur Fótbolti Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ Íslenski boltinn „Dómur af himnum ofan“ Íslenski boltinn Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Liðin sem verða að gera betur á markaðnum Sænska landsliðskonan Zigiotti til liðs við Rauðu djöflana Sjáðu mörkin fjögur hjá United í nótt Arsenal skoraði ekki og tapaði í fyrsta leik Gyokeres Fjórtán er vinsælasta númer sumarsins Eigendur Liverpool eyða meira í Isak en í að kaupa fótboltafélag í Madrid Sjá meira