Mörk Eriksen verið gulls ígildi fyrir Tottenham | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. janúar 2015 14:15 Christian Eriksen hefur fagnað nokkrum mörkum til þessa. vísir/getty
Christian Eriksen skoraði enn eitt markið fyrir Tottenham á lokamínútunum í gærkvöldi þegar hann skaut liðinu í úrslitaleik deildabikarsins á Wembley. Eriksen skoraði bæði mörk Tottenham gegn B-deildarliðinu Sheffield United, en það fyrra gerði hann úr stórkostlegri aukaspyrnu á 28. mínútu. Seinna markið, sem sendi Spurs í úrslitaleikinn, skoraði hann á 88. mínútu leiksins.Sjá einnig:Eriksen hetja Tottenham Þetta er í fjórða sinn á tímabilinu sem Eriksen skorar mark eftir 87. mínútu leiks, en hann hefur gert það þrívegis í deildinni og tryggt sínu liði með því níu mikilvæg stig í Evrópubaráttunni.vísir/gettyEriksen skoraði sigurmark gegn Hull í nóvember á 90. mínútu, endurtók leikinn gegn Swansea 14. desember þegar hann skoraði á 89. mínútu og tryggði Tottenham svo öll stigin þrjú gegn Sunderlannd með marki á 88. mínútu. Allir leikirnir fóru 2-1 fyrir Tottenham. Þess utan skoraði hann eina markið í 1-0 sigri á Southampton 5. október (40. mínúta) og sigurmarkið í 2-1 sigri gegn Leicester á öðrum degi jóla (71. mínúta). Í heildina hafa mörk Eriksens því tryggt Tottenham 15 stig í úrvalsdeildinni. Liðið er með 37 stig í sjötta sæti, þremur stigum frá Meistaradeildarsæti. Daninn magnaði hefur alltaf skorað reglulega enda mjög marksækinn og skotviss miðjumaður. Fjöldi stoðsendinga hjá honum hafa aftur á móti snarlækkað undanfarin ár. Síðasta tímabilið sitt hjá Ajax í hollensku úrvalsdeildinni gaf hann 17 stoðsendingar en skoraði tíu mörk. Á síðasta tímabili, hans fyrsta hjá Tottenham, gaf Daninn níu stoðsendingar og skoraði sjö mörk. Á yfirstandandi leiktíð í ensku úrvalsdeildinni hefur Eriksen aðeins gefið eina stoðsendingu í 22 leikjum en skorað átta mörk. Eins og komið hefur fram hafa þessi mörk verið gulls ígildi fyrir Tottenham og tryggt liðinu í heildina 15 stig (9 með mörkum á lokamínútunum) og komið liðinu á Wembley.
Enski boltinn Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Uppgjörið: FH-Apollon 1-0 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Fótbolti Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn