Guardian vill ekki að lögregla skoði gögnin Þorgils Jónsson skrifar 22. ágúst 2013 13:07 Glenn Grenwald og David Miranda sjást hér saman á góðri stund. Þeir hafa nú ásamt fjölmiðlinum Guardian höfðað mál til að koma í veg fyrir að lögregla fái að yfirfara gögn sem gerð voru upptæk hjá Miranda um síðustu helgi. Mynd/AP
Breska fjölmiðlafyrirtækið Guardian krafðist þess fyrir dómi í dag að lögbann yrði sett á til að koma í veg fyrir að lögregla fari yfir þau gögn sem tekin voru af David Miranda þegar hann var tekinn til yfirheyrslu á Heathrow-flugvelli um liðna helgi. Miranda er sambýlismaður blaðamannsins Glenn Greenwald og hefur aðstoðað hann við fréttaskrif um eftirlitsstarfsemi bandarískra stjórnvalda byggt á uppljóstrunum. Mikla athygli vakti því þegar Miranda var stöðvaður á leið frá Berlín til heimalands hans, Brasíliu, á grundvelli laga sem miða að því að koma í veg fyrir hryðjuverk. Ekki síst vegna þess að honum var haldið í rétt tæpar níu klukkustundir, sem er hámark þess sem lögin heimila. Einungis broti af þeim sem stöðvaðir eru á þessum forsendum er haldið lengur en eina klukkustund. Áður en Miranda var sleppt úr haldi gerði lögregla upptæka ýmsa muni sem hann hafði með sér, meðal annars tölvu og minnislykla. Lögmaður Miranda hefur sótt um lögbann á haldlagningu gagnanna, en lögmaður lögreglunnar, Jonathan Laidlaw að nafni, segir að lögregla hafi þegar hafið störf við að fara yfir gögnin. „Það sem við höfum þegar skoðað felur í sér, að mati lögreglunnar, afar viðkvæmar upplýsingar sem gætu haft alvarleg áhrif á öryggi almennings og þess vegna hefur lögregla hafið rannsókn á málinu. Það er því fullt tilefni til þess að halda áfram að skoða gögnin.“ Lögregla heldur því auk þess fram að afskiptin af Miranda hafi verið lögum samkvæmt, og innanríkisráðherra stendur með gjörðum þeirra.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Erlent Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Innlent Fleiri fréttir Hótar að gera Hormússundið af bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Sjá meira