Pellegrini kemur Toure til varnar: Getur gert gæfumuninn Anton Ingi Leifsson skrifar 9. janúar 2016 11:30 Toure og Pellegrini á góðri stundu. vísir/getty
Manuel Pellegrini, stjóri Manchester City, hefur stigið til varnar Yaya Toure, miðjumanni City, og sagt að hann geti enn gert gæfumuninn hjá City ætli liðið sér að verða meistari. Toure hefur spilað nokkra fína leiki hjá City í vetur, en dottið langt niður á milli eins og gerðist í vikunni gegn Everton. „Hann er ekki svo gamall. Mér finnst hann vera leikmaður sem er mjög mikilvægur, reynslumikill og veit hvernig á að spila leikinn. Kannski yfir allt tímabilið er hann ekki klár í að spila þrisvar í viku, en ég held að hann geti gert gæfumuninn,” sagði Pellegrini í samtali við fjölmiðla. „Alltaf þegar fólk segir að við séum ekki með hópinn sem við þurfum þá lítur fólk á Yaya, en muniði það að hann skoraði í þremur af síðustu fimm leikjum.” Yaya átti dapran leik gegn Everton í 2-1 tapi í fyrri undanúrslitaleiknum í deildarbikarnum í vikunni, en eftir þann leik var Toure mikið gagnrýndur. Talað um að hann væri orðinn of hægur og of gamall. Pellegrini gefur lítið fyrir það. „Hann spilaði kannski ekki vel gegn Everton, en allir leikmenn spila stundum vel og stundum illa. Þú getur ekki alltaf sagt að það sé útaf hann sé eldri - allir eiga slæma leiki,” sagði Síle-maðurinn og bætti við að lokum: „Kannski er fólk bara að ímynda sér og skoða hann út frá því hvernig hann hreyfir sig, en ef þú lítur á tölurnar hjá Yaya þá hleypur hann jafn mikið í hverjum leik og næsti maður fyrir hliðina á honum,” sagði Pellegrini.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira