Erlent

Líktist Samuel L. Jackson

Samuel L. 
Jackson
Samuel L. Jackson

Bandaríkin Maður í Chicago var handtekinn á dögunum fyrir að líkjast leikaranum Samuel L. Jackson. Hann var ákærður fyrir vopnað rán eftir að 37 ára maður var rændur við hraðbanka og skorinn með hnífi.

„Ræninginn leit út alveg eins og Samuel L. Jackson,“ sagði fórnarlambið við lögregluna. Maðurinn fannst á nálægu gistiheimili eftir að öryggisvörður benti á að einn gestanna væri líkur leikaranum.



Annar gestur á gistiheimilinu sagði ræningjann ekki líkjast Samuel L. Jackson. „Hann er líkari Danny Glover.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×