Tilkynningar að vænta um brottflutning frá Írak 27. febrúar 2009 13:16 Barack Obama, forseti Bandaríkjanna.
Búist er við að Barack Obama Bandaríkjaforseti tilkynni í dag að allt nær allt bandarískt herlið verði komið heim frá Írak í ágúst á næsta ári. Þriðjungur verði eftir til að þjálfa íraska herinn. Það er í samræmi við kosningaloforð Obama. Búist er við að forsetinn tilkynni um heimkvaðninguna á fundi á herstöð í Norður Karólínuríki síðar í dag. Heimildir Reuters fréttastofunnar herma að Obama hafi greint þingmönnum frá áformum sínum í gær og þar hafi komið fram að á bilinu þrjátíu og fimm til fimmtíu þúsund hermenn verði eftir til að sjá um að þjálfa íraska hermenn og stjórna aðgerðum þeirra gegn hryðjuverka- og andspyrnumönnum. Hundrað fjörutíu og tvö þúsund bandarískir hermenn eru nú í Írak. Obama hét því í kosningabaráttunni að fjölga í herliði Bandaríkjamanna í Afganistan svo taka mætti að meiri festu á aðgerðum þar gegn Talíbönum. Búast má við að margir þeirra hermanna sem kallaðir verða heim frá Írak verði síðan sendir til Afganistans en Obama tilkynnti fyrr í þessum mánuði að hann ætlaði að fjölga í herliðinu þar um sem nemur sautján þúsund hermönnum. Sérfræðingar segja Obama fara milliveginn þegar kemur að heimkvaðningunni. Hún gangi nokkuð hægar en yfirlýsingar í kosningabaráttunni bentu til en nokkuð hraðar er hernaðarráðgjafar hefðu viljað.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Sjá meira