Erlent

Ghana á afmæli í dag

AP

Í dag halda Ghanamenn upp á 50 ára sjálfstæðisafmæli landsins. Landið var áður bresk nýlenda en fékk sjálfstæði árið 1957, fyrst Afríkulanda sunnan Sahara. Meira en 20 þjóðhöfðingjar eru gestir sjálfstæðisafmælisins auk þess sem fótboltahetjan Pele er mættur til að taka þátt í hátíðahöldum. Yfirvöld í Ghana eyddu sem svarar 2,6 milljörðum króna í undirbúning hátíðarhaldana sem verður framhaldið næsta árið.

Þúsundir söfnuðust saman á Sjálfstæðistorgi í Akkra, höfuðborg landsins í morgun þar sem sjá máti leikgerð á sjálfstæðisyfirlýsingu landsins og glæsilega flugeldasýningu.

Ghana er í Vestur-Afríku, stendur við Atlantshafið og á landamæri að Fílabeinsströndinni til vesturs, Búrkina Fasó til norðurs og Tógó til austurs. Akkra er höfuðborg og stærsta borg landsins. Rétt rúmlega 20 milljónir manna búa í landinu. Friðvænlegt hefur verið þar undanfarin 15 ár þar sem lýðræðisfyrirkomulag hefur fest sig í sessi.

Frá Ghana kom ein vinsælasta sjálfstæðishetja Afríku, Kwame Nkrumah. Hann var kosinn forseti í kosningum þrátt fyrir að sitja í fangelsi snemma á sjötta áratugnum. Hann tók síðan við embættinu þegar landið fékk sjálfstæði árið 1957, fyrst Afríkuríkja. Honum var velt af stóli snemma árs 1966 í valdaráni sem að Bandaríkjamenn áttu hlut í. Hermt er að Lyndon B. Johnson, þá forseti Bandaríkjanna, hafi persónulega sagt leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA, að velta Nkrumah af stóli þar sem hann var orðinn of sósíalískur í stjórnarháttum.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×