Erlent

Reykjavík er sjöunda dýrasta borg heims

Það er betra að eiga nóg af seðlum í dýrustu borgum heims
Það er betra að eiga nóg af seðlum í dýrustu borgum heims

Reykjavík er sjöunda dýrasta borg í heimi. Fjórar höfuðborgir Norðurlanda eru á topp tíu listanum og Osló sú allra dýrasta. Þetta kemur fram í könnun tímaritsins Economist á verðlagi víða um heim.

Tokyo, sem lengi hélt toppsætinu, færist niður listann og er nú fimmta dýrasta borg heims. Ástæðan fyrir því að japanskar borgir færast nú niður listan er sú að þar er lítil verðbólga miðað við það sem gengur og gerist víðast hvar. Stórborgir Evrópu taka við af japönsku borgunum sem þær dýrustu í heimi og eru bæði París og London komnar upp fyrir Tokyo.

Höfuðborgir Norðurlanda eru áberandi á topp tíu listanum. Sem fyrr segir er Osló dýrasta borg heims, þá er Kaupmannahöfn í þriðja sæti á eftir París, Reykjavík í sjöunda sæti á eftir Tokyo og Osaka í Japan og Helsinki í því tíunda á eftir Zurich í Sviss og Frankfurt í Þýskalandi.

Gengi gjaldmiðla hefur talsverð áhrif á það hvernig raðast á listann og þannig hefur styrking evru gagnvart dollara þau áhrif að Evrópuborgir færast upp fyrir Bandarískar. Ódýrasta borg heims er Teheran í Íran, að búa þar er meira en fjórum sinnum ódýrara en að búa í Osló.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×