Sögulegar viðræður Bandaríkja og Norður-Kóreu 6. mars 2007 07:02
Viðræður erindreka Bandaríkjamanna og Norður-Kóreu sem hefjast í New York í dag marka þáttaskil. Þetta eru fyrstu opinberu tvíhliða viðræður ríkjanna síðan í Kóreustríðinu sem lauk árið 1953. Meðal þess sem rætt verður á fundinum er hvort Bandaríkjamenn taki Norður-Kóreu af lista yfir hryðjuverkaþjóðir og aflétti viðskiptabönnum á landið. Fundirnir nú eru haldnir eftir að Norður-Kóreumenn samþykktu fyrir hálfum öðrum mánuði að láta af kjarnorkuáætlunum sínum í viðræðum sex ríkja í Peking. Meðal þess sem samið var um að Norður-Kórea fengi í staðinn voru einmitt tvíhliða viðræður við Bandaríkinn. Þeir sem leiða munu samninganefndir ríkjanna eru varaforsætisráðherrarnir Christopher Hill og Kim Kye-gwan, en báðir hafa leitt viðræðurnar um kjarnorkumálin fyrir sínar þjóðir. Kim snæddi kvöldverð í gær með samtökum sem styðja jákvæð samskipti við Kóreuríkin og þar hitti hann meðal nanars tvo fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þau Madaleine Albright og Henry Kissinger. Albright sagði þau hafa átt í gefandi og vingjarnlegum samræðum. Sem fyrr segir markar fundurinn þáttaskil þó ekki sé á stefnuskránni að semja um opinbert og formlegt samkrull ríkjanna heldur einungis um hryðjuverkaklausuna annars vegar og þá efnahagsaðstoð sem Bandaríkjamenn lofuðu í sex ríkja viðræðunum hins vegar. Ekki eru nema fimm ár síðan George Bush forseti sagði í stefnuræðu að Norður-Kórea væri eitt af öxulveldum hins illa en nú er ljóst að það má vonast eftir komandi þýðu í samskiptum ríkjanna.
Mest lesið Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Árekstur á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Viðræður Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Genf Sjá meira