Erlent

Faldi tvö kíló af kókaíni í gervibumbu

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
28 ára kanadísk kona á leið til Toronto var handtekin á flugvelli í Kólumbíu þegar hún reyndi að smygla tveimur kílóum af kókaíni í gervibumbu.

Konan sagðist vera komin sjö mánuði á leið þegar tollvörður spurði hana en þegar hann snerti bumbuna fann hann að hún var bæði hörð viðkomu og köld. Inni í bumbunni, sem var úr latexi og límd framan á konuna, fundust fíkniefnin og var konan handtekin í kjölfarið.

Verði hún sakfelld fyrir smygltilraunina á hún yfir höfði sér allt að átta ára fangelsisvist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×