Árás hraðar kjarnavopnavæðingu Írans 6. mars 2007 05:00 Íranar söfnuðust saman á fjöldafundi í Teheran, höfuðborg Írans, í gær til stuðnings kjarnorkuáætlun stjórnvalda. MYND/AP
Hernaðaraðgerðir gegn Íran gætu haft þveröfug áhrif og aukið til muna líkur á að Íranir komi sér upp kjarnavopnum, jafnvel innan tveggja ára. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu frá virtum kjarnavopnasérfræðingi, Frank Barnaby, sem telur líklegt að árás á Íran gæti skapað einingu hjá írönsku þjóðinni og aukinn stuðning almennings við kjarnavopnaeign landsins. BBC greindi frá niðurstöðum skýrslunnar á fréttavef sínum. Í skýrslunni segir Barnaby að takmarkaðar upplýsingar um kjarnorkuáætlun Írans þýði að jafnvel mörg hundruð árása myndi ekki ná að fullu að eyðileggja kjarnorkuáætlunina. Í kjölfar slíkra árása yrði síðan mun auðveldara fyrir Íran að segja sig frá samningnum gegn útbreiðslu kjarnavopna (NPT) og hefja af krafti vinnu við smíði kjarnavopna, hugsanlega með svartamarkaðsviðskiptum. Og við slíkar aðstæður gæti Íran komið sér upp kjarnavopnum innan tveggja ára sem er skemmri tími en gögn bendi til að Íran væri fært um í dag. Írönsk stjórnvöld hafa staðfastlega neitað því að til standi að þróa kjarnavopn heldur verði kjarnorkan einungis notuð í friðsamlegum tilgangi. Yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA), Mohamed ElBaradei, sagði í gær að þrátt fyrir fjögurra ára rannsóknir gæti stofnunin ekki staðfest að kjarnorkuáætlun Írana sé í friðsamlegum tilgangi eins og þeir haldi fram og að efasemdir muni áfram vera til staðar þangað til stjórnvöld í Íran fallist á að vinna með stofnuninni. Bandaríkin hafa íhugað hernaðaraðgerðir gegn ríkjum vegna kjarnorkuvæðingar áður en ekki er neitt beint fordæmi í sögunni fyrir að slíkt hafi verið gert. Næst hefur það legið við árið 1994 þegar rætt var á fundi í Hvíta húsinu hvort gera ætti árás á Norður-Kóreu en umræðu um það var hætt eftir að fréttir bárust af því að vilji væri hjá þarlendum stjórnvöldum til að semja um kjarnorkuáætlun sína.
Mest lesið Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Árekstur á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Viðræður Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Genf Sjá meira