Erlent

Ungdomshuset rifið

Trúfélagið sem keypti húsið af borginni árið 2001 segist ætla að reisa trúarlega menningarmiðstöð á reitnum.
Trúfélagið sem keypti húsið af borginni árið 2001 segist ætla að reisa trúarlega menningarmiðstöð á reitnum. MYND/AFP

Fleiri hundruð manns mótmæltu niðurrifi Ungdomshuset á Norðurbrú sem hófst í gærmorgun. Verkamenn sem störfuðu við niðurrifið huldu andlit sín til að þekkjast ekki.

„Þetta er okkar hús, burt með fingurna,“ hrópaði fólkið að því er fréttavefur Politiken greindi frá. Lögreglan bjóst ekki við að mótmælin myndu fara úr böndunum en var með mikinn viðbúnað til öryggis.

Meira en 650 manns hafa verið handteknir frá því að lögregla rýmdi húsið að morgni 1. mars og 25 manns hafa særst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×