Erlent

Grunsamlegt lát blaðamanns

Lát rússnesks blaðamanns sem féll út um glugga á föstudag þykir grunsamlegt að mati sumra fjölmiðla í Rússlandi. „Af einhverri ástæðu eru það þeir blaðamenn sem yfirvöldum er illa við sem deyja í þessu landi,“ stóð í dagblaðinu Moskovsky Komsomlets í gær.

Ivan Safronov, fyrrverandi ofursti, var gagnrýninn á stjórnvöld í skrifum sínum um hermál og hafði oft verið yfirheyrður af rússnesku leyniþjónustunni.

Nefnd um vernd blaðamanna tilkynnti í janúar að þrettán rússneskir blaðamenn hefðu verið myrtir síðan 2006 sem gerir Rússland þriðja mannskæðasta land í heimi fyrir blaðamenn á eftir Írak og Alsír.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×