Erlent

Tævanar vilja ekki kínverskan kyndilbera

MYND/AFP

Yfirvöld í Tævan hafa ákveðið að meina kyndilbera ólympíuleikanna í Peking í Kína að fara í gegnum landið með ólympíueldinn. Ákvörðun Tævanskra stjórnvalda kom skipuleggjendum ólympíuleikanna í Peking í opna skjöldu enda ekki nema mánuður síðan Tævanar samþykktu að hleypa kyndilberanum í gegn.

Samþykki Tævana var þó háð þeim skilyrðum að leið kyndilberans myndi ekki liggja frá Tævan til Hong Kong eða Macau og þaðan inn á meginland Kína. Óttuðustu þeir að með því væru kínversk stjórnvöld að ýta undir þá skoðun að Tævan væri hluti af Kína en ekki sjálfstætt ríki. Á það vildu Kínverjar hins vegar ekki fallast.

Þrátt fyrir að tæplega sextíu ár séu liðin frá því Tævan lýsti yfir sjálfstæði líta kínversk stjórnvöld enn svo á að landið sé hluti af Kína.

Kyndilberar ólympíuleikanna mun leggja á sig 137 þúsund kílómetra leið yfir heiminn áður en eldurinn verður tendraður í Peking á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×