Erlent

Þrír menn létust í Pakistan

Þrír menn létu lífið í Pakistan í morgun þegar sprengja sem þeir voru að smíða sprakk í höndunum á þeim. Mennirnir lágu allir undir grun um að vera tengdir hryðjuverkasamtökunum al Qaeda. Atvikið varð skammt frá landamærum Afganistan en talið er að mennirnir hafi verið að undirbúa árás á heri bandamanna sem þar eru staðsettir.

Að sögn lögregluyfirvalda í Pakistan voru mennirnir búnir að sanka að sér miklu magni af sprengiefni og voru í þann mund að leggja lokahönd á áætlanir sínar þegar sprengingin varð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×