Erlent

Átök í Eistlandi

Einn maður lét lífið og tæplega 60 slösuðust í átökum lögreglu og rússneska minnihlutans í Tallin, höfuðborg Eistlands í gær. Ólætin brutust eftir að þarlend stjórnvöld ákváðu að taka niður bronsstyttu sem reist var til minningar um sigur Sovétmanna í seinni heimsstyrjöldinni. Stóðu þau í alla nótt og fram á morgun en um þrjú hundruð mótmælendur voru handteknir.

Aðgerðir Eistneskra yfirvalda hafa verið harðlega gagnrýndar og í morgun hvatti forseti rússneska þingsins til þess að stjórnmálasambandi við Eistland yrði slitið.

Um 20 prósent íbúa Eistlands tilheyra rússneska minnihlutanum en fyrir þeim hafði styttan tilfinningalegt gildi. Fyrir Eista var styttan hins vegar tákn um meira en hálfra aldar hersetu Rússa í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×