Erlent

Stephen Hawking fékk langþráðan draum uppfylltan

Stephen upplifði þyngdarleysi.
Stephen upplifði þyngdarleysi. MYND/AFP

Breski stjarneðlisfræðingurinn Stephen Hawking fékk langþráðan draum uppfylltan í gær þegar hann upplifði þyngdarleysi um borð í flugvél bandaríska fyrirtækisins Zero Gravity Corp. Frá unga aldri hefur Stephen verið haldinn hreyfitaugungahrörnun og er í dag bundinn hjólastól. Stephen er fyrsti fjölfatlaði einstaklingurinn sem upplifir þyngdarleysi.

„Þyngdarleysið var yndislegt og ég átti ekki neinum vandræðum með aukið þyngdarafl," sagði Stephen, kampakátur, að lokinni flugferðinni. „Ég hefði hæglega geta haldið áfram. Næst fer ég út í geim."

Flugvélin fór upp í 32 þúsund feta hæð og tók síðan snarpa dýfu sem veldur tímabundnu þyngdarleysi í um hálfa mínútu. Alls fór vélin átta dýfur og því upplifði Stephen þyngdarleysi í tæpar fjórar mínútur.

Hópur hjúkrunarfræðinga fylgdist vandlega með líðan Stephen á meðan á flugferðinni stóð en um borð í vélinni var einnig hópur eðlisfræðinga.

Fyrirtækið Zero Gravity Corp var stofnað árið 2004 og er eina fyrirtækið sem býður almenningi upp á flugferðir af þessu tagir. Á þeim þremur árum sem fyrirtækið hefur starfandi hefur það flogið með hátt í 3 þúsund einstaklinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×