Þeir eru örugglega með kökupartý í Leicester í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2016 11:30 Claudio Ranieri. Vísir/Samsett mynd
13. júlí er góður dagur fyrir Leicester City og ætti í raun að öllu eðlilegu að vera hátíðardagur í borginni. Það var nefnilega á þessum degi fyrir ári síðan sem félagið gekk frá samningi við ítalska knattspyrnustjórann Claudio Ranieri. Ranieri tók við liði sem var að hefja sitt annað tímabil í ensku úrvalsdeildinni og hafði verið í neðsta sæti deildarinnar stærsta hluta tímabilsins á undan. Það hefði verið stórfrétt hefði Ranieri tekist að halda Leicester í toppbaráttunni allt tímabilið eða þá að koma liðinu í Meistaradeildina. Hann gerði hinsvegar enn betur og undir hans stjórn vann Leicester City enska meistaratitilinn í fyrsta sinn í sögu félagsins. Það kom mörgum á óvart að Leicester City veðjaði á Claudio Ranieri fyrir ári síðan enda var hann útbrunninn í augum flestra eftir ófarir sínar með gríska landsliðinu sem tapaði meðal annars fyrir Færeyjum undir hans stjórn. Ranieri gat vissulega byggt ofan á starf Nigel Pearson sem hafði komið Leicester-liðinu upp og tekist að bjarga því frá falli með frábærum endaspretti þá um vorið. Pearson var hinsvegar óvænt rekinn eftir samstarfserfiðleika við eigendurna. Hinn 64 ára gamli Ítali, sem hafi kynnst deildinni sem stjóri Chelsea á árunum 2000 til 2004, mætti með góða skapið og alla sína reynslu á King Power Stadium og stýrði einu mesta ævintýri í sögu fótboltans. Leicester City vann ekki ensku deildina á einhverri heppni. Liðið var í forystu nær allt tímabilið og vann á endanum með 10 stiga mun. Leicester City fékk fimmtán stigum meira en Manchester-liðin, 21 stigi meira en Liverpool og 31 stigi meira en fráfarandi Englandsmeistarar Chelsea. Það skiptir ekki öllu hvort Claudio Ranieri takist að fylgja þessu eftir á komandi tímabil því hann mun alla tíð verða goðsögn með stuðningsmenna Leicester City. Honum tókst eitthvað sem enginn sá fyrir og mjög líklega enginn getur leikið eftir. Það kemur örugglega bara eitt svona ævintýri á hverri öld.
Enski boltinn Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Uppgjörið: FH-Apollon 1-0 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Fótbolti Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn