Kynntu nýja 6.800 kílómetra járntjaldshjólaleið Atli Ísleifsson skrifar 30. júlí 2014 14:39 Hjólaleiðin hefst á landamærum Noregs og Rússlands við Barentshaf og liggur um Evrópu alla leið að Svartahafi. Vísir/Getty
Áætlun um opnun 6.800 kílómetra hjólaleiðar meðfram járntjaldinu svokallaða var kynnt í húsi Evrópusambandsins í Vínarborg á mánudaginn. „Stóra vandamálið í Evrópu er að við vitum svo lítið um hvort annað sem leiðir til gremju meðal fólks,“ sagði Johannes Hahn, framkvæmdastjóri byggðamála ESB í tilefni af kynningunni. Segir hann verkefnið muni skila sér í auknum skilningi Evrópubúa á hver öðrum. Hjólaleiðin mun ganga undir heitinu „Járntjaldsleiðin“ og mun liggja frá norðurhluta Noregs og alla leið til Svartahafs, meðfram hugmyndafræðilegri skiptingu Evrópu á tímum kalda stríðsins. Michael Cramer, formaður samgöngunefndar Evrópuþingsins, kom fyrst fram með hugmyndina að hjólaleiðinni árið 2005. „Á hjóli ferðu nógu hratt yfir til að sjá margt, en nægilega hægt til að horfa virkilega á það sem þú ferð framhjá.“ Leiðin á að vera þægileg yfirferðar, tiltölulega laus við bílaumferð og liggja framhjá eins mörgum merkilegum og sögufrægum stöðum og hægt er. Á vef Guardian segir að leiðin muni hefjast á landamærum Noregs og Rússlands við Barentshaf, fylgja rússnesku og finnsku landamærunum, strönd Eystrasaltsríkjanna og Póllands og fyrrum landamærum Vestur- og Austur-Þýskalands. Þá mun leiðin fylgja landamærum Tékklands, Austurríkis, Slóveníu, Ungverjalands, Serbíu, Rúmeníu og Búlgaríu og klárast svo við strönd Svartahafs. Cramer segir kostnað við gerð hjólaleiðarinnar ekki verða mikla þar sem hún mun liggja um vegi og stíga sem þegar eru til. „Í raun þarf einingis að koma upp merkingum með nafni og merki Járntjaldsleiðarinnar.“ Hugtakið „járntjaldið“ kom fyrst fram í ræðu Winstons Churchills sem hann flutti í Westminster háskólanum í Fulton í Bandaríkjunum árið 1946. Búið er að koma upp heimasíðu fyrir hjólaleiðina. Þá má einnig hlaða niður korti af fyrirhugaðri hjólaleið.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Fleiri fréttir Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Sjá meira