Markahæsti leikmaður ensku deildarinnar spilar úlnliðsbrotinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. október 2015 10:00 Jamie Vardy. Vísir/Getty
Jamie Vardy, framherji Leicester City, hefur verið sjóðheitur það sem af er tímabili og vann sér meðal annars sæti í enska landsliðshópnum sem var tilkynntur var í gær. Jamie Vardy hefur skorað sex mörk í sjö fyrstu umferðunum og er eins og er markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar með eins marks forskot á þá Riyad Mahrez og Callum Wilson. Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri Leicester City, hefur nú sagt frá því að Jamie Vardy sé að spila meiddur en hann vilji ekki taka sér frí af ótta við að „kólna" niður. Jamie Vardy er nefnilega úlnliðsbrotinn eftir að hafa meiðst í leik á móti Aston Villa 13. september síðastliðinn. „Hann er með tvö brotin bein í úlnliðinum en læknaliðið hefur gert vel í að passa upp á hann," sagði Claudio Ranieri við BBC Sport. Jamie Vardy skoraði tvö mörk í síðasta leik á móti Arsenal en hann hefur nú skorað í fjórum síðustu deildarleikjum Leicester liðsins. Vardy skoraði einnig á móti Bournemouth, Aston Villa og Stoke auk þess að skora í fyrstu umferð á móti Sunderland. Vardy hefur skorað eða lagt upp mark í öllum sjö leikjum Leicester City í ensku úrvalsdeildinni þar sem af er á þessu tímabili. „Það eru fullt af leikmönnum sem vilja spila þegar þeim líður vel. Við leyfum honum að spila á meðan það er öruggt að hann geri ekki illt verra. Ef svo er þá er þetta í góðu lagi," sagði Ranieri. Jamie Vardy er orðinn 28 ára gamall en hann hefur spilað með Leicester City frá 2012. Tímabilið í fyrra var hans fyrsta í ensku úrvalsdeildinni (5 mörk í 34 leikjum) og hann er þegar búin að gera betur í vetur.
Enski boltinn Mest lesið Hver sigrar Puffin-hlaupið? Sport Situr límdur við skjáinn yfir leikjum KR Íslenski boltinn Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti „Held að Valur sæki engan gríðarlegan styrk í það“ Íslenski boltinn Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Fótbolti Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Stútfullur laugardagur Sport Sjáðu mörkin síðast þegar Þór og KA áttust við Íslenski boltinn Haukur allt í öllu hjá Löwen Handbolti Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Enski boltinn Fleiri fréttir Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Sjá meira