Gylfi Þór: Skrítið að spila undir stjórn mesta grínarans í liðinu Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. október 2015 09:30 Gylfi Þór Sigurðsson. vísir/getty „
Það var stór leikmannahópur hjá Tottenham og ég vildi ekki eyða öðru tímabili sitjandi á bekknum.“ Þetta segir Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, um ástæðu þess að hann yfirgaf Tottenham í nýrri bók, Atvinnumaðurinn Gylfi Sigurðsson. Gylfi spilaði með Tottenham frá 2012-2014 en þurfti að sætta sig við mikla bekkjarsetu seinna tímabilið. Ef hann fékk svo að spila var það úti á vinstri kantinum. „Ég þurfti því að taka ákvörðun um hvort ég vildi vera áfram hjá Tottenham og vona að ég fengi að spila sem mest eða fara til minna félags á borð við Swansea þar sem ég fengi stærra hlutverk. Ég ákvað að fara og lét forsvarsmenn hjá Tottenham vita. Fljótlega kemur svo Swansea inn í myndina,“ segir Gylfi í bókinni.Gylfi Þór spilaði sína fyrstu Evrópuleiki með Tottenham.vísir/gettyGylfi var staddur inn í búningsklefa með Tottenham-liðinu í Seattle í Bandaríkjunum sumarið 2013 þegar hann fær skilaboð frá umboðsmanni sínum um að Tottenham sé búið að taka tilboði Swansea í hann. Hann lét Mauricio Pochettino, þjálfara liðsins, vita og flauk rakleiðis til Wales til að fara í læknisskoðun. „Það voru þrjú eða fjögur önnur lið í ensku úrvalsdeildinni sem voru inni í myndinni hjá mér áður en Swansea kom til, en eftir að þeir gerðu tilboð ýtti ég öllu öðru til hliðar,“ segir Gylfi. Gylfi Þór sló fyrst í gegn í ensku úrvalsdeildinni með Swansea þegar hann var á láni þar seinni hluta tímabils 2012. Hann skoraði sjö mörk í 18 leikjum og var fyrstur Íslendinganna verðlaunaður sem leikmaður mánaðarins í stærstu deild heims.Garry Monk á hliðarlínunni er Gylfi fær rautt í bikarleik.vísir/gettyBrendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, var ekki lengur við stjórnvölinn hjá Swansea heldyr fyrrverandi liðsfélagi Gylfa, Garry Monk. Monk er enn stjóri Swansea og er að gera mjög góða hluti með liðið. „Það var skrítið fyrir mig að koma aftur til Swansea þar sem fyrrum liðsfélagi minn, Garry Monk, var orðinn þjálfari. Sem leikmaður var hann aðalgrínarinn í hópnum, alltaf að segja brandara og var mjög hávær. En sem þjálfari er hann öðruvísi,“ segir Gylfi. „Þá er hann mjög skipulagður og alvarlegur, mjög vinnusamur og á stóran þátt í velgengni liðsins á tímabilinu. En ég verð að viðurkenna að fyrstu þrjár vikur fjórar vikurnar var mjög skrítið að hafa hann sem þjálfara. En hann hefur tekið sig vel út í nýju hlutverki og stimpla sig rækilega inn,“ segir Gylfi Þór í bókinni Atvinnumaðurinn Gylfi Sigurðsson.
Enski boltinn Mest lesið Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Fótbolti Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Dagskráin í dag: Arsenal og Liverpool stimpla sig inn í Meistaradeildina. Sport Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Enski boltinn „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Fótbolti Fleiri fréttir Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Sjá meira